
Barnamálaráðherra um fátæk börn: „Við erum að falla þarna“
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir í þættinum Pressu að þörf sé á miklu meiri pólitískri umræðu um þá staðreynd að börnum sem búi við fátækt á Íslandi hafi fjölgað. Rúmlega 10 þúsund börn eru fátæk hér á landi samkvæmt UNICEF, það er eitt barn af hverju átta. „Við þurfum að stíga inn í aðgerðir í meira mæli gagnvart þessum hópi,“ segir Ásmundur Einar.








