FréttirPressaÞrír forsetaframbjóðendur í Pressu Steinunn Ólína, Arnar Þór, og Helga mætast í kappræðum í Pressu.
FréttirPressaLítur á sig sem listamann frekar en pólitíkus Jón Gnarr lítur á sjálfan sig sem sjálfstætt starfandi listamann, ekki pólitíkus. En með framboði Katrínar Jakobsdóttur er kosningabaráttan orðin pólitísk. Gagnrýni Jóns á Katrínu er hugmyndafræðileg, ekki persónuleg, að sögn Jóns. „Mér líkar mjög vel við Katrínu.“
FréttirPressa 1Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu Halla Hrund Logadóttir vill hvetja útlendinga til að „læra tungumálið okkar í gegnum söng og íslenskuna.“ Halla Hrund segir að við þurfum að vera aðeins meira skapandi í því hvernig við nálgumst viðfangsefni innflytjenda. Hún var meðal forsetaframbjóðenda sem mættu í pallborðsumræður í síðasta þætti Pressu.
FréttirPressa 1Baldur segist persónulega vera á móti íslenskum her Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi fullyrðir að hann sé á móti því að stofnaður sé her á Íslandi. „Við erum herlaus þjóð og við eigum að vera það,“ segir hann í nýjasta þætti Pressu. En Baldur hafði áður viðrað hugmyndina um varnarlið áður en hann fór í framboð.
FréttirPressa 5„Illmenni eru bara alltaf erfið“ Jón Gnarr var ekki reiðubúinn að svara með afgerandi hætti hvaða stjórnmálamenn eða þjóðarleiðtoga hann átti við þegar hann sagði, í viðtali við Heimildina, ekki munu kinka kolli í átt að illmennum verði hann kjörinn forseti Íslands.
FréttirPressa 1„Ég hef orðið fyrir blæstri úr ólíkum áttum“ Halla Hrund Logadóttir vék sér undan því í Pressu að svara spurningum um hvort hún hefði orðið fyrir þrýstingi frá ráðherra eða stjórnvöldum í starfi sínu sem orkumálastjóri þar sem áherslur hennar voru gjarnan á skjön við áherslur ríkisstjórnarinnar. Endurtekið sagðist hún tala fyrir almannahagsmunum.
FréttirPressa„Forsætisráðherrann Katrín er náttúrulega bara manneskjan Katrín“ Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra var meðal viðmælenda í Pressu í dag. Hún var spurð hvort hefði tekið nógu vel á ummælum þáverandi utanríkisráðherra um tjaldbúðirnar svokölluðu á Austurvelli fyrr á árinu. „Ég ætla bara að tala fyrir mín ummæli en ekki ummæli annarra,“ svaraði Katrín, líkt og áður.
FréttirPressa 1Fjögur fræknustu í Pressu Katrín, Baldur, Jón Gnarr og Halla Hrund mætast í fyrsta sinn í kappræðum í Pressu.
FréttirPressa 3Forsetaframbjóðendur mætast í Pressu Fjórir frambjóðendur til embættis forseta Íslands mæta í beina úsendingu í Pressu á föstudag. Þátturinn verður sendur út klukkan 10.00 frá ritstjórnarskrifstofu Heimildarinnar. Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir sitja fyrir svörum.
FréttirPressa 1Barist í bökkum velferðarsamfélags Í Pressu verður fjallað um versnandi fjárhagsstöðu fjölda heimila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kannanir hafa að undanförnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnumarkaði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við verulegan efnislegan skort eða sárafátækt.
FréttirPressaSamkeppnis-tríóið í Pressu Umdeild lagasetning sem heimilar afurðastöðvum í kjötiðnaði að hafa með sér mikla samvinnu og umfangsmikið samstarf verður til umræðu í Pressu í hádeginu á föstudag.
Áskrift hefur áhrif Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku. Ég vil fá áskrift Nei, takk Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.