
Þetta er staðan í frosnu aðildarviðræðunum við ESB
Sex samningskaflar eru óopnaðir í aðildarviðræðum við ESB og í fjórum þeirra liggur samningsstaða ekki fyrir, þar á meðal um sjávarútveg og landbúnað. Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn ESB líta svo á að umsóknin frá 2009 sé enn gild en suma kafla gæti þurft að opna sem áður var lokað.


