Fréttir

Rekstartap Alvotech var 25 millj­arðar á fyrri hluta árs og laust fé helm­ing­að­ist

Alvotech bók­færði umtals­vert nýt­an­legt skatta­legt tap sem tekjur á fyrri hluta árs­ins. Félagið hefur ítrekað sótt sér fé frá lokum síð­asta árs en hratt gengur á lausafé þess. Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefur tví­vegis hafnað umsóknum Alvotech um mark­aðs­leyfi fyrir afar verð­mætt lyf, sem átti að skila félag­inu í hagnað fyrir árs­lok.
Greining

Kosn­ing­arnar sem hanga í loft­inu en margir flokk­arnir vilja ekki strax

Rík­is­stjórnin logar í deilum, stuðn­ingur við hana hefur aldrei mælst minni og flokk­arnir sem hana mynda standa allir frammi fyrir afhroði ef kosið yrði í dag. Þá eru kyn­slóða­skipti yfir­vof­andi í for­ystu sumra þeirra og framundan eru erfið við­fangs­efni sem gætu auð­veld­lega aukið óvin­sæld­irnar enn frekar. Það er erfitt að sjá hvaða hag flokk­arnir ættu að hafa af því að sprengja rík­is­stjórn­ina við þessar aðstæður.
ViðtalSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Bauð kjörnum full­trúa fjár­hags­að­stoð í skiptum fyrir póli­tískan stuðn­ing

Leó Árnason, fjár­festir og for­svars­maður fast­eigna­fé­lags­ins Sigtúns á Selfossi, gerði bæj­ar­full­trúa til­boð árið 2020. Bæj­ar­full­trú­inn, Tómas Ellert Tómasson, átti að beita sér fyrir því að sveit­ar­fé­lagið hætti við að kaupa hús Lands­bank­ans. Tilboðið fól í sér að Sigtún myndi greiða fyrir kosn­inga­bar­áttu Mið­flokks­ins.

12 mín. lestur

FréttirSamráð skipafélaga

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektar Samskip um 4,2 millj­arða

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ákveðið að leggja 4,2 millj­arða króna stjórn­valds­sektir á Samskip, vegna sam­ráðs við Eimskip á fyrsta og öðrum ára­tug ald­ar­innar. Sam­an­lagt er um að ræða lang­hæstu sekt­ar­á­kvarð­anir sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lagt á eitt fyr­ir­tæki vegna rann­sóknar eins máls. Samskip ætlar ekki að una nið­ur­stöð­unni.
FréttirHvalveiðar

Dýra­vel­ferð­ar­sjón­ar­mið ekki lengur aðal­málið hjá Svandísi

Dýra­vel­ferð­ar­sjón­ar­mið sem urðu til þess að mat­væla­ráð­herra ákvað að banna hval­veiðar í júní voru ekki í for­grunni þegar ráð­herr­ann tók ákvörðun um að leyfa þær að nýju frá og með morg­un­deg­inum, að sögn Henrys Alex­and­ers Henrys­sonar, full­trúa Sið­fræði­stofn­unar HÍ í fagráði um vel­ferð dýra. Enn er ekki hægt að tryggja mann­úð­lega aflífun stór­hvela, segir Henry.
PistillHátekjulistinn 2023

Sigríður Haraldsd. Elínardóttir

Ójöfn­uður í heilsu og vellíðan

Ójöfn­uður í heilsu er til staðar á Íslandi, hann er kerf­is­bund­inn og síst minni en í öðrum Evr­ópu­löndum. Nýjar íslenskar tölur sýna að árið 2021 gátu þrí­tugar konur með háskóla­menntun vænst þess að lifa 3,6 árum lengur en kyn­systur þeirra með skemmstu skóla­göng­una. Munurinn var enn meiri hjá körlum, eða 4,9 ár.

8 mín. lestur

Skýring

Spænska feðra­veldið molnar: „Þessi hegðun á bara ekki heima í fót­bolt­anum og hvergi“

Fót­bolta­heim­ur­inn hefur logað síðan að Spán­verjar unnu heims­meist­ara­mót kvenna og Luis Rubiales, for­seti spænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, kyssti marka­skorar­ann Jenni Hermoso. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir for­maður KSÍ segir svona hegðun ekki í boði. Sótt er að Rubiales úr öllum áttum sem neitar að segja af sér en hann er nú í 90 daga banni frá knatt­spyrnu­tengdum störfum.
Fréttir

Vill „staldra við“ aukna ferða­þjón­ustu á hálend­inu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra seg­ist vilja „staldra við“ aukna skipu­lagða ferða­þjón­usta á hálend­inu og ræða hvort víð­erni eigi að fá að vera í friði. Málið teng­ist stjórn­ar­skrá og að stjórn­völdum hafi ekki „auðn­ast að ná þar saman um ákvæði um umhverfi og auð­lindir,“ umræðan hafi öll snú­ist um sjáv­ar­út­veg.

Mest lesið undanfarið ár