Greining

Fluttu úr landi og fengu fyrr pláss á leik­skóla

Á öllum Norð­ur­lönd­unum nema Íslandi er börnum tryggður réttur til leik­skóla­göngu þegar fæð­ing­ar­or­lofi for­eldra lýkur. Hér­lendis bíða for­eldrar gjarnan upp á von og óvon eftir leik­skóla­plássi í marga mán­uði eftir fæð­ing­ar­or­lof og eru dæmi um að þeir hafi flutt til Norð­ur­land­anna til þess að börnin þeirra fái fyrr pláss á leik­skóla. „Millj­óna­þjóðir sinna þessu miklu betur en við,“ segir Anna Magnea Hreins­dóttir, aðjúnkt við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands.

9 mín. lestur

Greining

Útgerð­ar­menn loks tengdir sjálfum sér

Umtals­verðar breyt­ingar eru fyr­ir­sjá­an­legar á eign­ar­haldi stórra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, sam­kvæmt til­lögum starfs­hóps­ins Auð­lindin okkar. Herða á og skýra reglur um hámarks­kvóta­eign og tengda aðila. Samherji þarf að minnka hlut sinn og yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni í Nes­kaup­stað veru­lega frá því sem verið hefur. Það gæti Guð­mundur í Brimi líka þurft að gera við aðra hvora af sínum útgerðum.
FréttirSamráð skipafélaga

Sagðist hata for­stjór­ann sem hann átti í ólög­legu sam­ráði við

„Það er svona hatur meira heldur en eitt­hvað annað sko,“ sagði Gylfi Sig­fús­son, þáver­andi for­stjóri Eimskips þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið spurði hann um tengsl hans við Ásbjörn Gíslason, þáver­andi for­stjóra Samskipa. Samt höfðu þeir félagar spilað saman golf, veitt, farið í skemmti­ferðir til útlanda og Gylfi jafn­vel „manað“ Ásbjörn til þess að mæta á fjöltefli. Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði hæstu sekt sína frá upp­hafi á Samskip í gær vegna ólög­mæts sam­ráðs fyr­ir­tækj­anna tveggja.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár