ViðtalReitur 13

Skortur á heild­ar­sýn galli á Kárs­nesmód­el­inu

Fyrr­ver­andi for­stjóri Skipu­lags­stofn­unar telur að Kópa­vogs­bær hafi ekki unnið nægi­lega grunn­vinnu í aðdrag­anda þess að reitir á Kársnesi fóru á deiliskipu­lags­stig. Ásdís Hlökk Theo­dórs­dóttir, aðjunkt í skipu­lags­fræði við HÍ, segir að bær­inn hafi ekki verið í stöðu til að setja skýra umgjörð um þær for­sendur sem gilt hafi á hverjum og einum upp­bygg­ing­ar­reit. „Við viljum ekki að bygg­inga­geir­inn bara valsi frjáls,“ segir hún við Heim­ild­ina.
Úttekt

„Dísilknúnu raf­bíl­arnir“ senni­lega um ell­efu tals­ins

Í sumar hefur því verið haldið fram, m.a. af ráð­herra, að „góðar líkur“ séu á því að raf­magns­bílar á Vest­fjörðum séu hlaðnir með raf­magni fram­leiddu úr olíu. Orku­stofnun reikn­aði út fyrir Heim­ild­ina að dísilknúnu raf­bíl­arnir hafi verið mjög fáir enda fór lang­mest af þeirri olíu sem notuð var á vara­afls­stöðvar til hús­hit­unar.

11 mín. lestur

AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkra­ínskt orku­fyr­ir­tæki flutt af nafni ólíg­arka í skúffu­fé­lag í Smá­í­búða­hverf­inu

Íslenskur banka­maður, Karl Kon­ráðs­son, er sagður hafa keypt helm­ings­hlut í úkra­ínsku orku­fyr­ir­tæki nýverið af Aleksander Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manni Íslands og ólíg­arka í Belarús. Áður hafði Karl eign­ast breskt félag Mos­hen­skys fyrir slikk. Þá og nú átti Mos­hen­sky á hættu að sæta við­skipta­þving­unum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
FréttirSigtún, Selfoss og nýi miðbærinn

Tómas boð­aður í skýrslu­töku vegna til­boðs Leós

Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Árborg, hefur verið boð­aður í skýrslu­töku hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vegna frétta af til­boði sem hann fékk sem kjör­inn full­trúi. Tilboðið kom frá Leó Árnasyni fjár­festi og for­svars­manni Sigtúns þró­un­ar­fé­lags. Tómas segir að erindi skýrslu­tök­unnar sé að ræða um „mögu­legt mútu­brot“.
13:56
FréttirHvalveiðar

Martrað­ar­kennt ástand fyrir sam­starfs­mann­inn

„Enginn vildi þetta. Fyrir mig er þetta martrað­ar­kennt ástand,“ sagði kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Micah Garen þar sem hann fylgd­ist með sam­starfs­konu sinni Anahitu Babaei sem hafði hlekkjað sig við mastur hval­veiði­skips­ins Hvals 9 í Reykja­vík­ur­höfn í morgun. Garen og Babaein komu hingað til lands til þess að skapa heim­ild­ar­mynd um það hvernig fólk getur tekið höndum saman og breytt heim­inum. Nú er útlit fyrir að myndin verði um það hvernig fólk hættir lífi sínu fyrir ástand sem aldrei breyt­ist.
Fréttir

Hat­ursá­róður gegn sam­kyn­hneigðum í sum­ar­búð­unum

Móðir er ósátt eftir að starfs­maður sum­ar­búð­anna við Ástjörn sagði dóttur hennar að sam­kyn­hneigð væri synd. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem for­eldrar greina frá slíkri inn­ræt­ingu í sum­ar­búð­unum. Sum­ar­búð­irnar eru reknar af hinum kristi­lega Sjón­ar­hæð­ar­söfn­uði sem telur 35 manns. Sum­ar­búða­stjóri reyndi að forð­ast sam­tal við blaða­mann.
VettvangurReitur 13

„Mark­að­ur­inn getur ekki skipu­lagt sam­fé­lag“

Reitur 13 á Kárs­nes­inu hefur verið umdeildur árum saman. Íbúar í grennd­inni telja gengið á hags­muni sína og hið sama telja sumir bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Kópavogi. Fjár­festar eru sagðir hafa verið við stýrið í deiliskipu­lags­gerð þrátt fyrir að eiga ein­ungis hluta reits­ins. Í fyrra seldi félagið Vina­byggð reit­inn og fyr­ir­hug­aðar upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á honum á 1,5 millj­arða króna, til félags í eigu Mata-systk­in­anna, sem hafa nú fengið bygg­ing­ar­rétt á allri lóð­inni án aug­lýs­ingar með sam­komu­lagi við Kópa­vogsbæ.

13 mín. lestur

Skýring

Bangsa­fé­lagið boðar mik­inn fögnuð – „Ég er sökker fyrir stórum strákum“

Bangsap­artí og bangsa­brönsj er meðal þess sem var á dag­skrá bangsa­há­tíð­ar­innar Reykja­vík Bear um helg­ina. Þar voru saman komnir stórir og loðnir hinsegin karl­menn hvaðanæva að úr heim­inum til að eiga saman góðar stundir. Á föstu­dag var sér­stakt Top off partí þar sem menn voru hvattir til að skemmta sér berir að ofan, og þá skipti engu máli hvernig þú lítur út – lík­ams­skömmin var skilin eftir heima.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár