Menning

Skemmd­ar­verk á söfnum myndu hafa ráð­staf­anir í för með sér

Íslensk lista­söfn hafa sloppið við aðgerðir hópa sem berj­ast fyrir lofts­lags­málum en erlendis hafa heims­fræg mál­verk fengið yfir sig máln­ingu og súpu svo eitt­hvað sé nefnt. Safn­stjórar hér­lendis segj­ast sýna mál­staðnum ákveð­inn skiln­ing en benda jafn­framt á að þeirra helsta hlut­verk er að standa vörð um lista­verkin. Ekki hefur verið gripið til sér­stakra ráð­staf­ana á íslenskum lista­söfnum vegna mót­mæla­gjörn­inga erlendis.

13 mín. lestur

FréttirHvalveiðar

Lagðist á mal­bikið til stuðn­ings mót­mæl­end­unum í möstr­unum

Ásgeir Brynjar Torfason var staddur á segl­báti á milli Færeyja og Íslands þegar mótor báts­ins fór að hiksta. Það leið ekki á löngu þar til hvalir voru farnir að synda í kringum bát­inn. Það gerðu þeir næstu tvær klukku­stundir, á meðan Ásgeir og skips­fé­lagi hans komu mót­ornum í lag. Ásgeir, sem er eftir þessa reynslu mik­ill hvala­vinur, lagð­ist á hart mal­bikið fyrir framan lög­reglu­borð­ann sem skildi mót­mæl­endur og hval­veiði­skip að síð­degis í gær til þess að sýna kon­unum tveimur sem klifrað höfðu niður úr möstrum hval­veiði­skipa skömmu áður stuðn­ing.
Aðsent

Anna Dóra Sæþórsdóttir og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir

Mið­há­lendi Íslands – fjöreggið og ferða­þjón­ustan

Það er mið­há­lend­inu og ferða­mennsku á hálend­inu til heilla til fram­tíðar að stigin verði mark­viss skref til að tryggja heild­stæða umsýslu um rekstur og upp­bygg­ingu á hálend­inu. Það verður best gert með mið­há­lend­is­þjóð­garði þar sem almanna­hags­munir og nátt­úru­vernd verði höfð að leið­ar­ljósi en pen­inga­öflin ráði ekki för.
Fréttir

Fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna verður fram­kvæmda­stjóri Land­verndar

Björg Eva Erlends­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Hún hefur störf í októ­ber. Björg Eva hefur verið fram­kvæmda­stjóri Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs síðan árið 2016. Hún fetar hér í fót­spor Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, vara­for­manns VG, sem yfir­gaf stöðu sína sem fram­kvæmda­stjóri Land­verndar árið 2017 til að verða umhverf­is­ráð­herra utan þings.
FréttirSamráð skipafélaga

Ölgerðin skoðar að sækja skaða­bætur - „Reið­ar­slag fyrir íslenska neyt­endur“

For­stjóri Ölgerð­ar­innar skoðar að sækja skaða­bætur vegna ólög­mæts sam­ráðs Samskipa og Eimskips, og kallar sam­ráðið svik við íslenska neyt­endur. Samskip voru á dög­unum sektað um 4,2 millj­arða vegna þess. Skýrsla Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hafi afhjúpað við­skipta­hætti sem séu Ölgerð­inni óskilj­an­legir.
Aðsent

Magnea Marinósdóttir

Flótta­fólk á göt­unni, brott­vís­un­ar­búðir eða lög um umborna dvöl og sam­fé­lags­lega ábyrgð við mót­töku flótta­fólks?

Það er áhyggju­efni að harð­línu­stefnan í Danmörku sé að verða helsta fyr­ir­mynd íslenskra stjórn­valda í stað þess að líta til ann­ara ESB landa sem hafa sett lög og reglur um umborna dvöl sem eru mun lausn­a­mið­ari, upp­byggi­legri og mann­úð­legri en að senda fólk á göt­una eða í brott­vís­un­ar­búðir.

9 mín. lestur

ViðtalReitur 13

Hafnar því að Vina­byggð hafi fengið að vera í bíl­stjóra­sæt­inu

Annar eig­enda Vina­byggðar ræðir skipu­lags­ferlið á reit 13 í sam­tali við Heim­ild­ina. Þórir Kjart­ans­son segir alrangt að skipu­lags­yf­ir­völd í Kópavogi hafi legið flöt fyrir vilja fjár­festa, í and­stöðu við hags­muni íbúa. Þvert á móti hafi sam­ráð verið meira en gengur og ger­ist. Þórir segir að þrjá­tíu ára vin­átta hans við Ármann Kr. Ólafsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra, hafi ekki haft áhrif á fram­gang máls­ins.

10 mín. lestur

ÚttektSamráð skipafélaga

Þurfti að vernda stöðu Samskipa sem „cash cow“ í kjöl­far veð­kalla vegna Kaup­þings­bréfa

Ólafur Ólafsson eign­að­ist Samskip á skraut­legan hátt á tíunda ára­tugnum og varð síðar næst stærsti ein­staki eig­andi Kaup­þings­banka. Snemma á árinu 2008 var hann í miklum vand­ræðum vegna veð­kalla sem leiddu til þess að Kaupþing þurfti að taka á sig mark­aðs­á­hættu af bréfum Ólafs. Sam­keppn­is­eft­ir­litið rekur upp­haf sam­ráðs Samskipa og Eimskip til þessa tíma.

Mest lesið undanfarið ár