FréttirHinsegin bakslagið

Reykja­vík­ur­borg til­kynnir Samtökin 22 til lög­reglu

Skóla- og frí­stunda­ráð Reykja­víkur hefur gert skóla­stjórn­endum í grunn­skólum Reykja­víkur við­vart um að óboðnir gestir frá Sam­tök­unum 22 hafi komið í Lang­holts­skóla síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Eru skóla­stjórn­endur beðnir að und­ir­búa starfs­fólk fyrir slíkar upp­á­komur. Fólkið frá sam­tök­unum 22 tók meðal ann­ars upp mynd­bönd af starfs­fólki skól­ans. Málið hefur verið til­kynnt til lög­reglu.
FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.
35:36
ViðtalHvalveiðar

Tvær konur í möstrum á móti körlum með skut­ul­sprengjur

Elissa Bijou hefur aldrei séð lif­andi lang­reyði. En hún hefur séð fjöl­margar dauðar og segir það mann­skemm­andi reynslu. Þegar hún heyrði af því að leyfa ætti veiðar á þeim að nýju hér á landi var hún ákveðin í að gera eitt­hvað í mál­inu. Örfáum dögum seinna var hún stödd í mast­urstunnu íslensks hval­veiði­skips. Nokkrum metrum frá henni var kona sem hún hafði aðeins þekkt í tæpa þrjá sól­ar­hringa. Anahita Babaei. Þær ræða reynsl­una við Heim­ild­ina í ítar­legu mynd­bands­við­tali.
Fréttir

Yfirvöld vita ekki hve mörg þeirra sem svipt voru þjón­ustu eru á land­inu

Góð­gerð­ar­sam­tök hafa síð­ustu vikur skotið skjóls­húsi yfir tugi ein­stak­linga sem ann­ars hefðu endað á göt­unni eftir að hafa verið synjað um vernd og svipt allri þjón­ustu. Lögmaður segir að yfir­völd varpi ábyrgð yfir á félaga­sam­tök og ein­stak­linga. Þá geti bóta­skylda rík­is­ins gagn­vart þessum hópi fallið niður eftir að þeim hafi verið komið í skjól.
ViðtalBrot Kjartans Adolfssonar

Bera ör barn­æsk­unnar ævi­langt: „Við vorum með sár úti um allt“

Linda ólst upp á heim­ili með dæmdum barn­a­níð­ingi og konu sem var síðar dæmd fyrir mis­þyrm­ingar gagn­vart börn­unum. Frá því að alsystir hennar leit­aði til lög­reglu leið eitt og hálft ár þar til Linda komst í fóstur. Á þeim tíma versnuðu aðstæður á heim­il­inu. Enn lengri tími leið þar til yngri systk­ini þeirra voru fjar­lægð þaðan.

21 mín. lestur

FréttirSamráð skipafélaga

ASÍ segir sam­ráðið til marks um „sjúk­legt hug­ar­far spill­ingar og græðgi“

Stærsta fjölda­hreyf­ing launa­fólks í land­inu segir sam­ráð Eimskips og Samskipa vera sam­særi gegn almenn­ingi í land­inu. Sami almenn­ingur muni lík­lega að greiða 4,2 millj­arða króna sekt Samskipa þar sem það verði ekki gert með lægri arð­sem­is­kröfum, lækkun ofur­launa eða upp­sögnum þeirra sem skipu­lögðu sam­særið.
Greining

Snemm­búin arð­greiðsla frá Orku­veit­unni gjör­breytti upp­gjöri Reykja­vík­ur­borgar

Tap þess hluta rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skattfé var mun minna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en það var á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Ástæðan er ekki stór­kost­legur við­snún­ingur í und­ir­liggj­andi rekstri höf­uð­borg­ar­innar heldur það að 5,1 millj­arða króna arð­greiðsla frá Orku­veitu Reykja­víkur, sem borgin á að stærstum hluta, var fyrr á ferð­inni en venja er fyrir.
Fréttir

Sorp­kvarnir alls engin töfra­lausn

Umhverf­is­stofnun, Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur og Veitur leggj­ast öll gegn notkun sorp­kvarna til að losa sig við líf­rænan úrgang. Áhugi á sorp­kvörnum hefur auk­ist í kjöl­far nýs sorp­flokk­un­ar­kerfis þar sem líf­rænn úrgangur er flokk­aður sér. Sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun segir að setja megi spurn­ing­ar­merki við lög­mæti þess að nota kvarn­irnar frekar en að flokka. Sölu­að­ili neitar að tjá sig.

Mest lesið undanfarið ár