Fréttir

Íslenskri her­ferð beint að fólki með kyn­ferð­is­legan áhuga á börnum

Nýrri vit­und­ar­vakn­ingu Neyð­ar­lín­unnar, rík­is­lög­reglu­stjóra og þjón­ust­unnar Taktu skrefið er beint að full­orðnu fólki sem hefur áhuga á kyn­ferð­is­legu efni af börnum. „Hefur þú eitt­hvað að ótt­ast?“ er spurt í aug­lýs­ingu sem er hluti af átak­inu. Sál­fræð­ingur hjá Taktu skrefið hvetur fólk með þessar hvatir til að leita sér aðstoðar áður en það er of seint. Frá 2021 hafa um 60 manns leitað sér þar með­ferðar.
ViðtalHátekjulistinn 2023

„Ég kvarta ekki undan því að borga skatt“

Ólafur Jóhann Ólafsson rit­höf­undur hefur verið kall­aður athafna­skáld fyrir að bæði skrifa bækur en líka stunda „biss­ness“. Ólafur er staddur í Banda­ríkj­unum þegar hann tekur sím­ann en hann var í 26. sæti yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana árið 2023. Ef hann fengi því ráðið myndi hann borga mestan sinn skatt á Íslandi enda búinn að borga nóg „fyrir vestan“.
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.
Fréttir

Katrín um hval­veiði­bann: „Enginn boðað að slíta rík­is­stjórn“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki hafa áhyggjur af því að rík­is­stjórnin springi vegna hval­veiði­banns­ins. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur sagt að málið hafi sett stjórn­ar­sam­starfið ,,allt í loft upp“. Vinstri-græn hafa ítrekað lagst gegn hval­veiðum við Íslands­strendur og yfir­skrift flokks­ráðs­fundar hreyf­ing­ar­innar 2018 var „Nei við hval­veiðum!“

Mest lesið undanfarið ár