Greining

Íslensku bank­arnir hag­ræddu og fengu skatta­lækkun en stungu ávinn­ingnum í vas­ann

Vaxta­munur íslensku við­skipta­bank­anna hefur ekk­ert lækkað þrátt fyrir að þeir hafi hag­rætt mikið í rekstri, meðal ann­ars með upp­sögnum og lokun úti­búa, og að lækkun banka­skatts hafi sparað þeim tólf millj­arða króna. Vaxta­mun­ur­inn er miklu meiri en hjá sam­bæri­legum bönkum á Norð­ur­lönd­unum. Það kemur því ekki á óvart að arð­semi íslensku bank­anna sé líka hærri hér. Af und­ir­liggj­andi starf­semi hefur hún raunar ekki verið hærri frá árinu 2008 en hún var í fyrra.
9:22
Fréttir

Svandís vonar að til­lög­urnar komi umræð­unni upp úr skot­gröfum

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra seg­ist vona að nú sé komið að því að Alþingi auðn­ist að gera breyt­ingar sem kom­ist næst því að skapa sátt um sjáv­ar­út­veg­inn. Hún segir aug­ljóst á við­horfi almenn­ings að of mikil sam­þjöppun hafi fengið að eiga sér stað í ljósi sér­reglna. Breyt­ingar í þá átt muni hafa áhrif á kvóta­stöðu stærstu fyr­ir­tækja lands­ins.
Greining

Tilllögur Auð­lind­ar­innar okkar gætu haft mikil áhrif á stór­út­gerðir

Meiri­háttar upp­stokkun er fyr­ir­sjá­an­leg í eig­enda­hópi stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, nái til­lögur Auð­lind­ar­innar okkar um skýr­ara reglu­verk gegn sam­þjöppun kvóta­eignar, fram að ganga. Samherji þyrfti að helm­inga hlut sinn í Síld­ar­vinnsl­unni. Hlutur Guð­mundar Krist­jáns­sonar í Brimi og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga í Vinnslu­stöð­inni kæmu einnig til álita.

9 mín. lestur

Greining

Veiði­gjöld munu hækka en óljóst er um hversu mikið

Greint var frá því í vor að veiði­gjöld muni hækka árið 2025. Sú ætlan er stað­fest í skýrslu „Auð­lind­anna okkar“ en ekk­ert er sagt um hversu mikið. Það kostar ríkið átta millj­arða króna á ári að sinna rann­sóknum, þjón­ustu, eft­ir­liti og umsjóð með fisk­veiðum. Ofan á þá tölu verður að koma bein og sýni­leg hlut­deild þjóð­ar­innar í afkomu við fisk­veiðar sem henni er tryggð í lögum.

Mest lesið undanfarið ár