EES-stjórnin Við­eyj­ar­stjórnin, rík­is­stjórn Alþýðu­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, var að hluta mynduð utan um umdeilt alþjóða­sam­starf Íslands sem sumum þótti fela í sér hættu­legt fram­sal á full­veldi. Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hanni­bals­son takast hér í hendur. Mynd: Gunnar Andrésson

Þegar EES-samningurinn þótti þjóðhættulegur

„Þessi samn­ingur kemur til með að færa okkur ósjálf­stæði, atvinnu­leysi, fátækt og auðnu­leysi,“ sagði þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins um umdeildan alþjóða­samn­ing sem Íslend­ingar und­ir­geng­ust, samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES). Umræðan um þriðja orku­pakk­ann er að hluta end­ur­ómur af áhyggjum vegna afsals Íslend­inga á full­veldi tengt EES-samn­ingnum.

„Þetta er mál sem varðar fram­tíð Íslands meira en nokkuð annað.“

Nei, ágætu les­endur, þetta er ekki til­vitnun í þing­mann Mið­flokks­ins í einni af þeirra fjöl­mörgu yfir­lýs­ingum um þriðja orku­pakk­ann nýverið.

Þetta sagði Hjör­leifur Gutt­orms­son í umræðum á Alþingi um samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið, EES.

Það var á aðvent­unni 1992.

Hjör­leifur hafði reyndar rétt fyrir sér þarna. EES-samn­ing­ur­inn er mik­il­væg­asti og afdrifa­rík­asti milli­ríkja­samn­ingur sem Ísland hefur gert, meirað­segja mik­il­væg­ari en varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin.

And­stæð­ingar orku­pakk­ansÞingmenn Mið­flokks­ins voru áber­andi í umræð­unni um þriðja orku­pakk­ann á Alþingi, þegar met var slegið í umræðu­lengd. Hér funda þverpóli­tískir and­stæð­ingar orku­pakk­ans.

Margt bendir til þess að EES-samn­ing­ur­inn verði tals­vert til umræðu á næst­unni. Vænt­an­leg er skýrsla um hann frá starfs­hópi undir for­ystu Björns Bjarna­sonar og einmitt Mið­flokks­menn hafa meira en gefið í skyn að sitt­hvað þyrfti kannske að end­ur­skoða sem hann snertir.

Þá er ekki úr vegi að rifja svo­lítið upp hvernig þetta kom nú allt til, sem skiptir dag­legt líf okkar miklu máli, án þess að við tökum sér­stak­lega eftir því.

Upphafið

Þegar ég segi „allt“ er það mjög ofmælt. Hér verður stiklað á stóru og ekki einu sinni alltaf á öllu hinu mik­il­væga, heldur stundum á því sem er mest upp­lýsandi, ekki sízt vegna umræð­unnar á Íslandi á okkar dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár