Hlaut útnefn­ingu Brett Kavan­augh var útnefndur dóm­ari í hæsta­rétt Banda­ríkj­anna þrátt fyrir trú­verð­ugan vitn­is­burð um að hann hefði beitt kyn­ferð­is­of­beldi á skóla­árum sínum. Mynd: Shutterstock

„Að kafa nóg í fortíðina“

Getur verið að í sam­fé­lags­gerð Banda­ríkj­anna séu upp­lif­anir og vænt­ingar til kynj­anna svo frá­brugðnar að sami atburð­ur­inn geti skilið eftir sig mjög ólíkar minn­ingar?

Í Hvíta hús­inu situr svo­nefndur „leið­togi hins frjálsa heims“, eins og hand­hafi emb­ætt­is­ins er gjarnan nefndur vest­an­hafs. Donald Trump, núver­andi for­seti, er um margt ein­stakur í stjórn­mála­sög­unni og sker sig úr á marga vegu.

Eitt það ótrú­leg­asta við kjör Trumps er hvernig hann komst upp með að tala um (og koma fram við) 50 pró­sent kjós­enda: Konur. Það hefur aldrei verið neitt vanda­mál fyrir Repúblik­ana að úti­loka minni­hluta­hópa, sem eðli máls­ins sam­kvæmt hafa færri atkvæði en meiri­hlut­inn. Konur eru hins vegar ekki minni­hluta­hópur og kjör Trumps kann að end­ur­spegla djúpa tog­streitu í sam­fé­lagi sem er að gera upp for­tíð­ina og takast á við breytt sið­ferð­is­við­mið sem fylgja víð­tækum sam­fé­lags­breyt­ingum síð­ustu ára­tuga.

Tímabært uppgjör eða nornaveiðar?

Félags­fræð­ingar munu senni­lega lengi ræða #metoo bylt­ing­una og óhætt er að full­yrða að margir munu setja hana í sam­hengi við for­seta­tíð Trumps. Frá­sagnir af kyn­ferð­is­brotum og óvið­eig­andi fram­komu fjölda valda­mik­illa karl­manna í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár