Eysteinn Harry Sig­ur­steins­son Eysteinn segir ferð­ina hafa verið ævin­týri þrátt fyrir allt sem úrskeiðis fór. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lýsir streitu og floppi við að fá nýja tönn í Póllandi

Eysteinn Harry Sig­ur­steins­son sótti sér tann­lækna­þjón­ustu í Póllandi en komst að því að margt getur farið úrskeiðis í ferl­inu.

Þó að oft sé ódýr­ara fyrir Íslend­inga að sækja sér lækn­is­þjón­ustu erlendis getur ferlið verið kvíða­vald­andi og sam­skipta­örð­ug­leikar flækt málin veru­lega. Eysteinn Harry Sig­ur­steins­son komst að þessu að eigin raun, en hann fór tvær ferðir til Póllands í fyrra til að fá svo­kall­aðan tann­plant fyrir lægri upp­hæð en sam­bæri­leg aðgerð kostar á Íslandi.

Tann­plant (e. implant) er skrúfa gerð úr tít­an­málmi, sem sett er í bein og þjónar sem rót fyrir nýja tönn. „Þetta var algjört flopp hvað varðar sam­skipti,“ segir Eysteinn um reynslu sína af tann­lækna­stof­unni sem hann leit­aði fyrst til. „Það hefði átt að hringja ein­hverjum bjöllum að lækn­ir­inn tal­aði ekki góða ensku. En þetta var mjög streitu­vald­andi.“ 

Birgitta Sig­ur­steins­dóttir, leik­stjóri og systir Eysteins, gerði ferð bróður síns að við­fangs­efni í heim­ild­ar­mynd sinni „Pólska tönnin“ sem nú er aðgengi­leg á YouTube. „Fólk hefur mik­inn áhuga á þessu mál­efni og margir um þessar mundir í hug­leið­ingum um hvort borgi sig að fara til útlanda í þessum erind­ar­gjörðum,“ segir Birgitta. „Umræðan hefur líka verið svo­lítið ein­hliða lof­ræða um hvað þetta er snið­ugt en eins og kemur fram í mynd­inni getur maður lent í svikum og mik­il­vægt að fólk taki það inn í dæmið.“

 

Læknirinn reyndist í Egyptalandi

Eysteinn starfar sem vél­virkja­meist­ari í álver­inu í Straums­vík. Í fríi í Póllandi með fjöl­skyld­unni ákvað hann að leita sér tann­lækna­þjón­ustu hjá klíník sem var í sam­starfi við hót­elið þeirra sam­kvæmt heima­síðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár