Meirihlutinn og Viðreisn fá hæstu einkunnir í skipulagsmálum

Núver­andi meiri­hluti og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynda afger­andi póla þegar kemur að skipu­lags­málum í Reykja­vík. Önnur fram­boð taka flest stöðu gegn meiri­hlut­anum eða setja önnur mál­efni í for­gang. Stundin fékk þrjá sér­fræð­inga í mála­flokknum til að meta stefnu fram­boð­anna.

Meirihlutinn og Viðreisn fá hæstu einkunnir í skipulagsmálum
Reykja­vík Skipu­lags­mál hafa verið í brennid­epli fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Mynd: Shutterstock

Línurnar í kosn­inga­bar­átt­unni í höf­uð­borg­inni eru nokkuð skýrar þegar kemur að skipu­lags­málum. Stefnu­mál flokk­anna þriggja sem sitja í núver­andi meiri­hluta, Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Pírata, eiga það sam­eig­in­legt að styðja við gild­andi Aðal­skipu­lag, upp­bygg­ingu Borg­ar­línu og þétt­ingu byggðar. Stærsti flokk­ur­inn í minni­hluta, Sjálf­stæð­is­flokkur, hefur skil­greint sig sem skýran val­kost við núver­andi ástand með and­stöðu sinni við Borg­ar­línu og hug­myndum um ný hverfi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins, Höf­uð­borg­ar­list­inn og Frels­is­flokk­ur­inn eru öll gagn­rýnin á ríkj­andi stefnu í skipu­lags­málum og leggja áherslu á bætt sam­göngu­mann­virki fyrir umferð einka­bíls­ins. Viðreisn deilir hins vegar að mörgu leyti sýn meiri­hlut­ans í skipu­lags­málum, þó snertifleti megi einnig finna með Sjálf­stæð­is­flokki.

Önnur fram­boð setja aðra mála­flokka en skipu­lags­mál á odd­inn, en lítið sem ekk­ert var að finna um stefnu Kvenna­hreyf­ing­ar­innar, Karla­list­ans og Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar hvað þau varðar. Þá fjalla Alþýðu­fylk­ingin, Sós­í­alista­flokkur Íslands og Borgin okkar - Reykja­vík helst um skipu­lags­mál út frá félags­legum for­sendum, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár