H₂O

Níl verður stífluð og Ganges þornar upp. Hver eru örlög efn­is­ins sem skilur á milli lífs og dauða?

H₂O
Helgi­stund við Ganges Ekki pláss fyrir alla á bakk­anum, svo fólk drífur að á smá­bátum til að sjá og heyra meira guðs­orð. Ótrúlegt að hugsa til þess, þegar horft er yfir á hinn bakk­ann, að allt þetta vatn nær ekki fram í ósa þessa heilaga fljóts. Mynd: Páll Stefánsson

Vatn er und­ir­staða lífs. Það skilur maður best í Varanasi, við bakka Ganges. Þessi mikla á, lífæð Indlands, rennur 2.500 kíló­metra leið niður frá Himalaya-fjall­garð­inum og út í Bengal­flóa. Á bökkum Ganges býr hálfur millj­arður mann­fólks.

Í tæp­lega 50 stiga sum­ar­hit­anum horfir maður á bus­landi bæj­ar­búa svamla í svalandi ánni, lit­ríkar hús­mæður sækja vatn í potta, meðan brenndum líkum er sturtað í þetta heilaga fljót stein­snar frá. Allt að ger­ast.

Þarna er vatnið svo mengað að það er 3.000 sinnum yfir heilsu­vernd­ar­mörkum til böð­unar, sam­kvæmt ind­verskum stöðlum. Senni­lega myndi ég hrökkva upp af við að súpa af ánni. 

Þessi helgi maður hafði engan tíma til að hugsa um almættið eða alla guð­ina, hann var í fullu djobbi að pósa fyrir ferða­menn sem gengu árbakka Ganges í mjúkri morg­un­birt­unni.

Ganges þornar upp

Það er óskilj­an­legt þegar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár