Viskubit

Heimskur, upp­runi orðs­ins er sá sem heldur sig heima við, aflar sér ekki þekk­ingar á ferðum sínum. Páll Stef­áns­son heldur áfram að deila lær­dómi í myndum af ferðum sínum um heim­inn.

Viskubit
Færí flestan sjó Þessi bíl­eig­andi í Gold­fi­eld, Nevada, ætlar ekki að fljóta að feigðar­ósi, heldur kom­ast heilu höldnu heim. Hverning sem viðrar. Mynd: Páll Stefánsson

Hangandi í milli­lend­ingu um dag­inn á splunku­nýjum frá­bærum Istanbúl-flug­velli tók ég eftir að næstu sex­tíu flug, sýnd á fjórum stórum skjáum, voru öll á sama klukku­tím­anum. Það lendir eða tekur á loft flug­vél á vell­inum á 30 sek­úndna fresti; 400 þús­und lend­ingar og flug­tök á síð­asta ári, á fyrsta starfs­ári flug­vall­ar­ins. Ég var bara peð, einn af 68 milljón far­þegum sem komu eða fóru um Istanbúl-flug­völl 2019. Og ekki er hann stærstur, það eru tveir flug­vellir sem voru með yfir eitt hund­rað milljón far­þega í fyrra: Atlanta og Peking.

Ný flug­stöðBrota brota­brot af nýju flug­stöð­inni í Istanbúl, sem reiknar með að taka á móti 150 milljón far­þegum, eftir nokkur ár.

Hálf milljón í loftinu

Þarna á flug­vell­inum, sem stefnir að því að geta tekið á móti 150 millj­ónum far­þega eftir 15 ár, fékk ég nag­andi flug­visku­bit. Ekki bara fyrir mig, eða fyrir hönd Grétu Thunberg, heldur líka allra þeirra 6 millj­óna sem líkt og ég flugu þennan dag. Um hálf milljón manna eru í loft­inu á þeirri stundu sem þú lest þessa setn­ingu. Dag hvern, allan árs­ins hring. 

Kolefn­is­fót­spor flugs­ins er 2,4 % í heim­inum í dag, og á bara eftir að stækka. Flugið á eftir að aukast umtals­vert á kom­andi árum, nema lík­lega í Þýska­landi og Svíþjóð, þar sem flug dróst saman um 4% á síð­asta ári. Flug­vélar, þessi risa­stóru fara­tæki, eiga ekki eins auð­velt með að raf­væð­ast eins og lestir eða bíla­flot­inn. 

Minnsta kolefn­is­sporið í mesta hit­anumLestir eru umhverf­is­væn­asti vél­knúni ferða­mát­inn ef lagt er á stað í lang­ferð, hér á aðal­lest­ar­stöð­inni í Delí. Allir gluggar lok­aðir enda 49°C hiti úti í byrjun júní í fyrra.

Kolefnisgrömm á kílómetra

En er flugið alslæmt? Nei, ekki ef maður ber það saman við aðra sam­göngu­máta. Einka­bíll­inn (bensín- eða dísilknú­inn með­al­bíll) er verstur með kolefn­is­spor upp á 171 g á hvern km, með einn far­þega í bílnum. Strætó skilur eftir sig 104 g á km á mann en lang­flug er með minna, eða 102 g á km á far­þega. Styttri flug, eins og héðan til London eða Köben, eru með mun meira spor, eða 133 g á hvern km. 

Svo sporið ofan úr Breið­holti er kíló í strætó, tæp tvö með einka­bílnum. En til Köben heil 251 kíló. 

Ef hver og einn flug­far­þegi þyrfti að bera kolefn­is­fótsporið sitt inn á flug­stöð til inn­rit­unar færum við aðeins að hugsa. Jafnvel hugsa eins og Gréta, áður en það verður allt, allt of seint. 

Við erum nefni­lega ekk­ert ógur­lega heimsk. Bara pínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár