„Jafnvel í Rússlandi þyrfti Kristján Þór að stíga til hliðar“

Ilia Shumanov, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Rúss­lands­deildar Transparency International, segir að þrátt fyrir jákvæða ásýnd Íslands erlendis hafi Sam­herj­a­málið sýnt fram á hversu ber­skjaldað landið er fyrir spill­ing­ar­málum.

„Jafnvel í Rússlandi þyrfti Kristján Þór að stíga til hliðar“

Þegar Ilia Shumanov var boðið til Íslands yfir langa helgi var það gert með það í huga að styrkja tengsl á milli Gagnsæis, íslensku deildar Transparency International og þeirrar rúss­nesku. Með frétta­flutn­ingi á Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða tók heim­sóknin stakka­skiptum. Samkvæmt áætlun hélt hann nám­skeið og fundi um pen­inga­þvætti á alþjóð­legum skala, en flestar spurn­ing­arnar reynd­ust hins vegar snú­ast um Samherja og hvernig vina­væð­ing væri helsta birt­ing­ar­mynd spill­ingar á Íslandi.

Shumanov starf­aði í nokkur ár sem lög­maður áður en hann gekk til liðs við rúss­nesku Transparency-sam­tökin, en þau eiga undir högg að sækja eins og mörg önnur mann­rétt­inda­sam­tök í Rúss­landi. Shumanov lýsir því hvernig ný lög í Rúss­landi heim­ila yfir­völdum að setja alla þá sem þiggja fé að utan á svartan lista yfir erlenda útsend­ara, en við það geta ein­stak­lingar sem starfa fyrir alþjóð­legu sam­tökin misst borg­ara­leg rétt­indi og þurft að sæta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár