Tæknispá 2019

Þroskaðra sprotaum­hverfi, Elon Musk í kringum tunglið, mann­legar hliðar tækni, hæp­heiðar og -dalir og frú Sirrý á íslensku. Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri tækni­spá Hjálmars Gísla­sonar.

Mér telst til að þetta sé í 10. skipti (á 14 árum) sem ég skrifa tækni­spá og reyni að rýna í hluti sem munu vera ofar­lega á baugi í tækni­heim­inum á kom­andi ári.

Í spánni í fyrra tók ég meðal ann­ars sterkar til orða en flestir og spáði miklu verð­falli á Bitcoin. Annað var kannski ekki alveg eins nákvæmt, eða hefur að minnsta kosti ekki gengið eftir eins hratt. Elon Musk fór til dæmis ekki í kringum tunglið. Það er þó lík­lega bara tíma­spurs­mál. Endurtek þá spá núna með aðeins víð­ari tíma­mörkum.

Mannlegu hliðar tækninnar

Á árinu sem nú er nýhafið held ég að áherslan verði mikil á mann­legu hliðar tækn­innar. Þannig held ég að við munum sjá meira rætt en áður um félags­legar, laga­legar og sál­rænar hliðar þeirrar tækni­þró­unar sem nú stendur yfir og hvort og hvernig skuli bregð­ast við henni.

Per­sónu­vernd verður áfram í brennid­epli og lík­legt að fleiri en Evr­ópu­sam­bandið muni setja skorður og skýrar reglur um með­ferð þeirra.

Einnig grunar mig að reglu­verk í kringum gervi­greind og þjálfun gervi­greind­ar­kerfa verði á dag­skránni, enda sýnir sig sífellt betur að slík kerfi læra og festa í sessi mis­munun og vit­leysur sem fyrir eru í gögn­unum sem þau eru þjálfuð með. Þau eiga til dæmis erf­ið­ara með að þekkja hör­unds­dökk and­lit en bleik; hafna frekar starfs­um­sóknum frá konum en körlum; og eru fljót að læra raisma á Twitter.

Þau eru þannig alveg jafn-skeikul og við mann­fólkið! Vandinn er sá að það er ólík­leg­ara að við gerum ráð fyrir því: Hvernig gæti tölva verið for­dóma­full? Hún er jú bara reikni­vél? Vandinn er sá að ef við kennum reikni­vél að reikna rangt, þá mun hún gera það - af meiri full­komnun en jafn­vel skeik­ul­ustu menn!

Hæpið er hæpið

Þekkt kenn­ing segir að álitið á tækninýj­ungum rísi og falli eftir svo­kall­aðri „hæp­kúrfu“. Ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Gartner hefur form­fest og gert sér mat úr þess­ari kenn­ingu, en í stuttu máli segir hún að heim­ur­inn hafi miklar vænt­ingar til tækninýj­unga þegar þær eru nýjar, svo falli vænt­ing­arnar þegar þær ganga ekki eftir eins hratt og vonir stóðu til, en rísi síðan aftur og nái jafn­vægi þegar tæknin hefur tekið út nægi­legan þroska.

Ég held að tvær mest hæp­uðu tækninýj­ungar síð­ustu ára, sýnd­ar­veru­leik­inn og nýjasta bylgja gervi­greind­ar­tæki séu komnar yfir hæp­heið­ina og falli nú í dal von­brigð­anna næstu 2-3 ár. Að venju munu margir þeir sem vinna að þess­ari tækni helt­ast úr lest­inni þegar ferða­lagið lítur út eins og eyði­merk­ur­ganga bæði hvað varðar fjár­mögnun og við­skipta­vini. Þessi tækni mun hins vegar snúa aftur af krafti innan 5 ára og þá með raun­veru­leg og sönnuð við­skipta­tæki­færi og nota­gildi. Á Íslandi skiptir þetta mestu máli hvað sýnd­ar­veru­leik­ann varðar, enda tals­verð reynsla, þekk­ing og þróun í gangi varð­andi hann hér síð­ustu ár. CCP dró þegar í land í lok þar síð­asta árs og sprota­fyr­ir­tæki sem hafa verið að vinna á þessu sviði hafa mörg hver verið tví­stíg­andi um fram­haldið. Vonandi verður samt eitt­hvað eftir af þess­ari þekk­ingu og þróun þegar tæki­færin koma fyrir alvöru.

Þroskað sprotaumhverfi

Íslenska sprotaum­hverfið hefur þroskast mjög mikið á síð­ustu árum. Framboð á fjár­magni hefur verið betra og jafn­ara en lík­lega nokkru sinni fyrr, erlendir fjár­festar eru farnir að láta til sín taka á Íslandi í meira mæli en áður og inn­lendir að taka sín fyrstu skref í að fjár­festa í erlendum tækni­fyr­ir­tækjum.

Ég held að þessi þróun eigi eftir að halda áfram og held að það væri mikið heilla­spor að tengj­ast evr­ópska - og þá kannski ekki síst nor­ræna - sprotaum­hverf­inu enn sterk­ari böndum. Það er margt áhuga­vert að ger­ast í nor­rænu sen­unni. Augu fjár­festa og tækni­heims­ins bein­ast í auknum mæli þangað og ímynd frum­kvöðla og fyr­ir­tækja sem þaðan koma er með miklum ágætum.

Meniga er komið hvað lengst fyr­ir­tækja í „nýju sprota­bylgj­unni" sem fór af stað eftir hrun og að ná býsna góðum „status" á sínu sviði. Teatime, sem stofnað var af fyrrum stjórn­endum Plain Vanilla, mun afhjúpa nýj­ung­arnar sem þau hafa verið að vinna að síð­ustu miss­eri, og óhætt að spá því að það muni vekja mikla alþjóð­lega athygli þegar þar að kemur.

Fleiri spenn­andi sprota­fyr­ir­tæki eru á áhuga­verðum stigum fjár­mögn­unar, vöru- og við­skipta­þró­unar sem frétta er að vænta af á árinu, og von­andi verða slíkar fréttir reglan frekar en und­an­tekn­ingin innan fárra ára.

Allt í skýjunum

Ég held að 2019 sé ákveðið áfangaár í þeirri þróun sem orðið hefur síð­asta ára­tug­inn: Fyr­ir­tæki munu svo gott sem end­an­lega hætta að setja upp sína eigin net- og vef­þjóna og allur vöxtur á því sviði fara fram í stórum gagna­verum ann­arra - einkum og sér í lagi stóru skýja­lausn­a­fyr­ir­tækj­anna: AWS, Microsoft og Google. Tími tölvurekka í milli­stórum fyr­ir­tækjum er að líða undir lok (hann er lið­inn í litlum fyr­ir­tækjum), en ég held líka að minni, „local" þjón­ustu­að­ilar muni eiga undir högg að sækja frá þessum stóru, aðgengi­legu og alltum­lykj­andi alþjóð­legu þjón­ustu­veit­endum.

Talið þér íslensku frú Sirrý?

Íslensk mál­tækni hefur loks­ins fengið þá athygli sem hún á skilið og nú bæði úr nokk­urri fjár­mögnun og hratt vax­andi þekk­ingu og gögnum að moða á því sviði. Þetta er nauð­syn­legt ef íslenskan á að eiga mögu­leika á að lifa af 21. öld­ina. Ég hef þó reyndar ekki síður - og jafn­vel frekar - áhyggjur af skorti á fram­boði af íslensku og íslensk­uðu efni á helstu miðlum og efn­isveitum ef svo á að vera. Það er reyndar ekki bein­línis tækni­legt mál, en eitt­hvað sem stjórn­völd, fram­leið­endur efnis og þeir sem koma að milli­vinnslu þess (svo sem þýð­ingum og tal­setn­ingu) ættu að leggja ofurá­herslu á að koma í fast­ari far­veg með aðilum á borð við Netflix, YouTube, Spotify og Amazon.

Á gam­an­sömum nótum má reyndar færa rök fyrir því að við ættum alls ekki að leggja kraft í að kenna tækn­inni íslensku. Um dag­inn var ég í góðum hópi að ræða þá stað­reynd að nú eru rúm 21 ár liðin frá deg­inum sem Skynet tók yfir heim­inn í Term­inator-ser­í­unni með væg­ast sagt afdrifa­ríkum afleið­ingum. Ástæðan fyrir því að við höfum ekki orðið þess vör á Íslandi hlýtur að vera sú að tölv­urnar skildu aldrei íslensku.

Þarf ekki ein­hver að stöðva Eirík Rögn­valds­son?! ;)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár