Mynd: Davíð Þór

Stúdentagarðar sendu kröfu peningalauss nemanda í innheimtu í miðjum faraldri

Íranskur meist­ara­nemi fékk tauga­á­fall eftir að hún flutti á Stúd­enta­garða. Sál­fræð­ingur hennar hvatti hana til að skipta um hús­næði umsvifa­laust. Úrskurð­ar­nefnd Stúd­enta­garða neit­aði umsókn hennar um að losna undan leigu­samn­ingi og sendi útistand­andi skuld í inn­heimtu. Háskóli Íslands steig á end­anum inn í málið og borg­aði skuld hennar.

„Mér fór að líða svo illa í þess­ari bygg­ingu. Ég fann fyrir svo mik­illi inni­lok­un­ar­kennd að ég gat ekki andað. Ég gat ekki haldið ró minni.“ Svona lýsir Negar, 31 árs kona frá Íran sem stundar nám á Íslandi, dvöl sinni á Mýr­ar­garði, nýrri bygg­ingu Stúd­enta­garða. Hún segir að and­legt þol hafi verið lítið sem ekk­ert eftir erf­iðan vetur. Und­ir­liggj­andi þung­lyndi og kvíði blossuðu upp og hún varð óhugg­andi í þessu ástandi. Slík var neyðin að hún þurfti að leita til bráða­mót­töku geð­deildar Land­spít­al­ans.

Í byrjun febr­úar bað Negar um lausn undan leigu­samn­ingi sínum. Í úthlut­un­ar­reglum Stúd­enta­garða er tekið fram að upp­sagn­ar­frestur sé þrír mán­uðir, en ef sér­stakar ástæður séu fyrir hendi sé hægt að stytta hann niður í einn mánuð. Negar sagð­ist vera að fylgja lækn­is­ráðum, að hún hafi þurft að skipta um umhverfi eins fljótt og auðið væri. Sál­fræð­ingur hennar tók undir orð hennar.

Ekki barst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár