Vill sjá útflutningsaukningu í hugviti og skapandi greinum

Nýskip­aður sér­stakur ráð­gjafi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um efl­ingu skap­andi greina á Íslandi segir að þær muni skipta máli fyrir efl­ingu sam­keppn­is­hæfni Íslands og að feli í sér lausnir fyrir hnatt­ræn vanda­mál sem þjóðir heims standa and­spænis.

Auður Edda Jök­uls­dóttir er nýskip­aður sér­stakur ráð­gjafi í stefnu­mótun og efl­ingu skap­andi greina á Íslandi. Hún ræddi við Kjarnann um fram­tíð­ar­sýn um útflutn­ingi íslensks hug­vits og skap­andi greina sem hún segir verða hennar ær og kýr á kom­andi tímum. Hún vill styðja við bakið á fólki í skap­andi greinum og hug­viti.

Auður Edda mun vinna að þeim verk­efnum undir for­ystu Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra. Auður Edda leiðir verk­efnið í sam­starfi við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, kynn­ing­ar­mið­stöðvar list­greina og utan­rík­is­þjón­ust­una og atvinnu­lífið, jafn­framt sem stefnu­mörk­unin verður unnin í sam­vinnu við Íslands­stofu.

Auður Edda hefur gegnt fjöl­mörgum störfum á vett­vangi utan­ríkis- og alþjóða­mála unda­farna tvo ára­tugi, þar á meðal í sendi­ráðum Íslands í Peking og Berlín, og nú síð­ast sem for­stöðu­maður við­skipta­þjón­ustu og alþjóð­legs menn­ing­ar­sam­starfs í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Heildarvelta skapandi greina 200 milljarðar

Verkefni Auðar Eddu verða fjöl­breytt og segir hún að stefnu­mótun og efl­ing skap­andi greina sé rétt að byrja. „Mark­miðið er að leiða saman stjórn­sýslu og atvinnu­líf til góðra verka. Sú vinna verður unnin í nánu sam­starfi við Íslands­tofu, Kynn­ing­ar­mið­stöðvar list­greina, háskóla, sam­tök og stofn­anir. Áherslan er ekki síst á að vinna með hag­að­ilum og gras­rót­inni og beita sem mest skap­andi hugsun og nálg­unum í þess­ari vinnu," segir hún.

„Undir for­ystu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra tökum við nú upp þráð­inn á nýjan leik frá kort­lagn­ingu á hag­rænu umfangi skap­andi greina fyrir um ára­tug síðan. Þá kom í ljós að heild­ar­velta grein­anna, þess hluta sem und­an­þeg­inn er virð­is­auka­skatti, nam hátt í 200 millj­örðum og að hátt í 10 þús­und manns störf­uðu við þær,"sagði hún. „Við þurfum að vanda okkur, vinna hratt og vel á breiðum grunni, og vera lausna- og árang­ur­smiðuð í starf­inu framundan."

Þörf á að móta framtíðarsýn skapandi greina

„Mark­miðið er að koma hingað yfir til þess að halda áfram kort­lagn­ingu á skap­andi greinum og hjálpa að móta fram­tíð­ar­sýn um verk­efni þeirra,“ segir Auður Edda. „Við byrjum opið og erum ekki ákveðin fyr­ir­fram því þetta verður í sam­starfi við alla, á milli stjórn­sýslu, ráðu­neyta, það er mennta- og menn­inga­mála­ráðu­neyt­is­ins, utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Við viljum vera í sam­tali við Samtök atvinnu­lífs­ins og háskól­ana, allar kynn­ing­ar­mið­stöðvar lista og tölvu­leikja­geir­ann.“

„Við erum auðvitað fámenn þjóð og þurfum að mínu mati að nálgast verkefni út frá hagnýtum sjónarhóli og gæta þess að njörfa okkur ekki um of niður í kerfi og skilgreiningar, heldur tökum hagnýta sýn á þetta.“
„Við erum auð­vitað fámenn þjóð og þurfum að mínu mati að nálg­ast verk­efni út frá hag­nýtum sjón­ar­hóli og gæta þess að njörfa okkur ekki um of niður í kerfi og skil­grein­ingar, heldur tökum hag­nýta sýn á þetta.“

Þetta verður svona bottom-up vinna á góðri íslensku,“ bætir hún við. Hún segir verk­efnin nú að vera að taka bolt­ann þar sem skilið var við hann síð­ast og halda áfram að vinna með mál­efni skap­andi greina. „Það hefur heil­mikið gerst á 10 árum en það er ekki til ný töl­fræði yfir þetta. Hvað er þetta orðið stórt í dag? Líka sem skiptir mjög miklu máli er að nágranna­lönd okkar hafa stúd­erað þetta og gert mikið síð­ustu fimm til tíu ár. Það væri hægt að taka hug­myndir frá þeim.“

Ættum ekki að njörva okkur niður í kerfi og skilgreiningar

„Það má segja að þetta verði svo­lítið vítt. Nú er unnið að stefnu á sviði menn­ingar, hönn­unar og kvik­mynda. Þetta þarf allt að koma saman og styðja hvað við annað,“ segir Auður Edda.

„Við erum auð­vitað fámenn þjóð og þurfum að mínu mati að nálg­ast verk­efni út frá hag­nýtum sjón­ar­hóli og gæta þess að njörfa okkur ekki um of niður í kerfi og skil­grein­ingar, heldur tökum hag­nýta sýn á þetta. Hvernig getum við eflt þessar greinar svo hlutur þeirra í útflutn­ingi stækki?“ Auður Edda bætir við að hún vilji sjá útflutn­ings­aukn­ingu í hug­viti og greina vaxt­ar­tæki­færin og hvaða leiðir séu bestar til að hjálpa þeim að stækka.

Vissu­lega er það okkur Íslend­ingum ekki mjög eig­in­legt að hugsa langt fram í tím­ann, en til að stand­ast alþjóð­lega sam­keppni er það nauð­syn­legt

Auður Edda seg­ist munu vinna náið með Íslands­stofu sem hafi verið að vinna í sam­ráði við atvinnu­lífið að mótun lang­tíma­stefnu um mark­aðs­setn­ingu Íslands erlendis og hvernig sé hægt að styðja betur við útflutn­ing. „Íslands­stofa á grund­velli nýrra laga er langt komin með mótun lang­tíma­stefnu um mark­aðs­setn­ingu Íslands og efl­ingu útflutn­ings­að­stoðar. Tillaga að stefnu verður sam­þykkt af Útflutn­ings og mark­aðs­ráði þar sem eiga sæti 5 ráð­herrar og á fjórða tug öfl­ugra full­trúa úr atvinnu­lífi og frá hinu opin­bera, en utan­rík­is­ráð­herra leiðir starf­sem­ina.“

Langtíma stefnumótun nauðsynleg

Auður Edda telur að lang­tíma stefnu­mótun í útflutn­ingi á skap­andi greinum hafi vantað. „Já, það er tíma­bært að móta lang­tíma­stefnu fyrir Ísland á því sviði. Vissu­lega er það okkur Íslend­ingum ekki mjög eig­in­legt að hugsa langt fram í tím­ann, en til að stand­ast alþjóð­lega sam­keppni er það nauð­syn­legt."

„Það var brotið blað í þessu með Íslands­stofu og lyk­il­hlut­verki hennar að móta lang­tíma­stefnu og stuðn­ingi við sókn á mark­aði,“ segir hún. „Já vissu­lega skiptir máli að skoða hlut­ina í alþjóð­legu sam­hengi. Því getur reynsla og þekk­ing af alþjóð­legu sam­starfi, alþjóð­legri tengsla­myndun og þjón­ustu við íslenskt atvinnu- og menn­ing­ar­líf okkar, meðal ann­ars á vett­vangi sendi­ráða úti á mörk­uðum, skipt máli. Þau lönd sem við viljum taka hug­myndir frá leggja mikla áherslu á skap­andi greinar til efl­ingar sam­keppn­is­hæfni á alþjóða­mörk­uðum. Að mati stjórn­valda í þessum ríkjum mun þetta svið leika afar veiga­mikið hlut­verk [...] þegar kemur að því að þróa lausnir til að mynda þegar takast á við hnatt­rænar áskor­anir á borð við lofts­lags­mál eða mál­efni flótta­manna sem dæmi.“

Ísland ekki einangrað

Auður Edda seg­ist lengi hafa brunnið fyrir menn­ingu og listum. „Ég gengdi stöðu menn­ing­ar­full­trúa í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu á tímum efna­hags­hruns á Íslandi. Þá kom í ljós hversu sterk menn­ing­ar­leg sjálfs­vit­und Íslend­inga er í reynd. Á þessum tíma hurfum við inn á við og margir fundu sköp­un­ar­kraft­inn hið innra. Við átt­uðum okkur á mik­il­vægi menn­ingar til að byggja upp skiln­ing á ver­öld­inni og okkur sjálfum og hlut­verki hennar fyrir jákvæða þróun sam­fé­lags­ins, svo ekki sé talað um þátt hennar í að end­ur­vinna traust orð­spor alþjóð­lega. Ég ólst upp við lif­andi íslenska sveita­menn­ingu og hef brunnið fyrir menn­ingu og listum frá því ég kom inn í utan­rík­is­þjón­ust­una,“ segir Auður Edda.

Auður Edda segir „mjúkt vald" Íslands innan alþjóða­kerf­is­ins smám saman verða sterkara. „Þar telst meðal ann­ars til árangur í listum, jafn­rétt­is­málum og fót­bolta sem dæmi séu nefnd. Mjúka valdið, vald aðdrátt­araflsins, verður sífellt mik­il­væg­ara þegar kemur að því að stand­ast alþjóð­lega sam­keppni. Það eigum við að nýta þegar kemur að því að laða að erlenda fjár­fest­ingu og hæfi­leik­a­ríkt erlent starfs­fólk til Íslands.“

Auður Edda segir Ísland ekki vera ein­angrað heldur sé þetta „spurn­ing að horfa á heim­inn og hver þessi stóru vanda­mál eru sem við stöndum and­spænis,“ segir hún. „Við þurfum að þróa hug­vits- og þekk­ing­ar­hag­kerfi og vera sam­keppn­is­hæf í því. Það er mjög sterk teng­ing milli utn­an­rík­is­þjón­ust­unnar og alþjóða­mál­anna og þessa starfs.“ Hún segir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra nú munu setja kraft í málið og seg­ist þakk­lát að fá tæki­færi að leggj­ast á árar með henni og öðrum ráð­herrum í þeim efnum.

Auður Edda segir að þrátt fyrir að áskor­an­irnar sem við Íslend­ingar stöndum and­spænis séu stórar þá feli þær í sér tæki­færi, meðal ann­ars til mik­il­vægra breyt­inga. „Við þurfum að treysta á hina skap­andi hugsun og nálgun þegar kemur að því að greina og finna sjálf­bærar og áhrifa­ríkar lausnir fyrir Ísland. Við Íslend­ingar erum rík að búa yfir alþjóð­legri menntun, þekk­ingu og reynslu á öllum sviðum auk þess að vera mjög skap­andi sem þjóð. Þessir eig­in­leikar munu nýt­ast okkur vel við upp­bygg­ingu á Íslandi þar á meðal á sviði skap­andi greina í náinni fram­tíð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hugvit

Mest lesið undanfarið ár