Forsetinn sem hætti aftur við að hætta

Ólafur Ragnar Grímsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­seta þrátt fyrir fyrri orð hans um annað.

Forsetinn sem hætti aftur við að hætta

Ólafur Ragnar Grímsson er hættur við að bjóða sig ekki fram til for­seta í kom­andi for­seta­kosn­ingum. Þetta er í annað skiptið sem hann hættir við að hætta sem for­seti Íslands.

Hann seg­ist vera hættur við að hætta sem for­seti vegna fjölda áskor­ana upp á síðkastið. „Í kjöl­far nýlið­inna atburða hefur fjöldi fólks víða að úr þjóð­fé­lag­inu á und­an­förnum vikum höfðað til skyldu minnar, reynslu og ábyrgðar, og beðið mig að end­ur­skoða ákvörð­un­ina sem ég gaf út í nýársávarp­inu, hvatt til þess að ég gefi á ný kost á mér til emb­ættis for­seta Íslands, standi áfram vakt­ina með fólk­inu í land­inu. Eftir atburði síð­ustu vikna og í ljósi óvissunnar framundan hefur sú alda þrýst­ings orðið æði þung,“ sagði Ólafur Ragnar á blaða­manna­fundi rétt í þessu.

„Mér hefur iðu­lega verið vísað til þess að eftir alþing­is­kosn­ingar geti myndun nýrrar rík­is­stjórnar reynst erfið og flókin og sam­búð þings og þjóðar þrungin spennu,“ útskýrði hann. 

Atburð­irnir að und­an­förnu hafi mótað afstöðu hans: „Hvernig þeir hafa varpað ljósi á ástandið í þjóð­fé­lag­inu, hug­ar­farið í þjóð­fé­lag­inu, stöðu þings­ins, stöðu stjórn­valda hefur orðið til þess að menn segja ein­hvers staðar verður að vera kjöl­festa og reynsla.“

Hann sagð­ist átta sig á því að ákvörðun hans yrði ekki óum­deild. „Ég geri mér grein fyrir því að það eru ekki allir á sömu skoðun.“ 

Sagðist ætla að hætta

Áður hefur Ólafur Ragnar skýrt kveðið á um að hann muni ekki bjóða sig aftur fram til for­seta. Í nýársávarpi sínu sagði hann til að mynda að sú „marg­þætta óvissa“ sem hefði fyrir fjórum árum leitt til þess að skorað var á hann að gegna áfram emb­ætti for­seta mót­aði ekki lengur stöðu Íslend­inga. Aðstæður þjóð­ar­innar væru þess eðlis að hann gæti frekar orðið að liði ef val á verk­efnum væri aðeins á hans for­sendum, óbundið af þeim skorðum sem emb­ætti for­set­ans setur:

„Sú marg­þætta óvissa sem fyrir fjórum árum leiddi til áskor­ana um að ég gengdi áfram emb­ætti for­seta mótar því bless­un­ar­lega ekki lengur stöðu okkar Íslend­inga. Því er nið­ur­staðan sem ég lýsti hér á nýárs­dag 2012 enn frekar í gildi nú, að aðstæður þjóð­ar­innar séu þess eðlis að ég geti fremur orðið að liði ef val á verk­efnum verður ein­göngu háð mínum eigin vilja, óbundið af þeim skorðum sem emb­ætti for­set­ans setur jafnan orðum og athöfnum,” sagði Ólafur Ragnar þann 1. jan­úar 2016.

„Margir hafa þó á und­an­förnum mán­uðum í sam­ræðum, með orð­send­ingum eða bréfum höfðað til skyldu minnar og áréttað að enn ríki óvissa á ýmsum sviðum, einkum varð­andi skipan Alþingis og rík­is­valds á kom­andi árum. Ég met mik­ils traustið sem allt það góða fólk sýnir mér en bið það og lands­menn alla að íhuga vel lýs­ing­una á kjör­stöðu Íslands sem ég hef í dag gert að meg­in­boð­skap. Í ljósi hennar og á grund­velli lýð­ræð­is­ins sem er okkar aðals­merki finn­ast mér blasa við hin réttu vega­mót til að færa ábyrgð for­seta á aðrar herðar og hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til end­ur­kjörs,“ sagði Ólafur Ragnar.

Ætlaði að sinna samvinnu á Norðurslóðum

Þess í stað sagð­ist hann ætla að sinna sam­vinnu á Norð­urslóum, treysta sess Íslands sem mið­stöðvar þeirrar umræðu og styrkja Hring­borð Norð­ur­slóða sem árlegan vett­vang þjóða heims. „Kraftar mínir verða líka áfram helg­aðir bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum og sam­starfi við þjóðir nær og fjær um aukna nýt­ingu hreinnar orku.

Frelsi frá dag­legum önnum hér á staðnum mun einnig gefa mér meiri tíma til að sinna vax­andi ákalli um myndun alþjóð­legrar sam­stöðu um verndun haf­anna og sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda sjávar, verk­efni sem öðl­ast getur auk­inn styrk í krafti reynslu og tækni sem við Íslend­ingar höfum að miðla.“

Ólafur Ragnar er fimmti for­seti lýð­veld­is­ins, en fimmta kjör­tíma­bili hans lýkur þann 25. júní þegar kosið verður um nýjan for­seta. 

Gerði það sama síðast

Í aðdrag­anda síð­ustu for­seta­kosn­inga fyrir fjórum árum lék hann svip­aðan leik. Þá lét hann líka að því liggja í nýársávarp­inu að hann ætl­aði sér ekki aftur í fram­boð, þar sem hann aðstæður þjóð­ar­innar væru þess eðlis að hann gæti fremur orðið að liði ef val á verk­efnum væru ein­göngu háð hans vilja. „Þegar skyldur þjóð­höfð­ingj­ans hvíla ei lengur á mínum herðum fæ ég meira frelsi til að sinna hug­sjónum og mál­efnum sem hafa lengi verið mér kær, get á annan veg tekið þátt í að efla fram­farir og hag­sæld, vís­indi, rann­sóknir og atvinnu­líf,“ sagði Ólafur Ragnar þann 1. jan­úar 2012. „Ákvörðun mín felur því ekki í sér kveðju­stund heldur upp­haf að annarri veg­ferð, nýrri þjón­ustu við hug­sjónir sem hafa löngum verið mér leið­ar­ljós; frjáls­ari til athafna en áður og rík­ari af reynsl­unni sem for­seta­emb­ættið færir hverjum þeim sem þjóðin kýs.“

Í mars sner­ist honum síðan hugur og hann til­kynnti fram­boð sitt til for­seta. Hann var þá fyrsti sitj­andi for­set­inn sem hafði hætt við að hætta, en ástæð­una sagði hann vera þá að hann hefði tekið á móti und­ir­skrift­ar­lista með tæp­lega 31 þús­und áskor­unum. Vegna óvissu með stjórn­skipan lýð­veldis, stöðu flokka­kerfis og for­set­ans vegna fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á stjórn­ar­skránni hafi hann ákveðið að gefa áfram kost á sér.

Útilokaði ekki að hætta á miðju kjörtímabili

Hann úti­lok­aði þó ekki að hætta á miðju kjör­tíma­bili og sagð­ist von­ast til þess að þjóðin myndi sýna því skiln­ing ef hann hyrfi til ann­arra starfa: „Þegar óviss­unni verður eytt, von­andi fljót­lega, á næstu miss­erum eða innan örfárra ára, að þá muni þjóðin sýna því skiln­ing ef að ég tel þá rétt, líka með til­liti til þess­ara rök­semda sem beitt er nú, að ég hverfi þá til ann­arra starfa áður en að kjör­tíma­bil­inu er lokið,“ sagði hann í við­tali við Stöð 2 þann 4. mars 2012.

Þegar á leið á kosn­inga­bar­átt­una þvertók hann hins vegar fyrir að hafa ætlað sér að hætta áður en kjör­tíma­bil­inu væri lokið. Í maí sagð­ist hann hafa boðið sig fram til fjög­urra ára og allt tal um annað væri rangt. Hann gekk svo langt að tala um það sem áróður af hálfu Svavars Hall­dórs­sonar, þáver­andi frétta­manns á RÚV og eig­in­manns Þóru Arn­órs­dóttur sem var í mót­fram­boði gegn Ólafi Ragnari. „Það er rangt, sá tónn í þeim fréttum sem Svavar var að reyna að búa til í sjón­varp­inu, að ég ætl­aði bara að vera í tvö ár og eitt­hvað svo­leíðis og það er áróður sem hefur náð tölu­verðum árangri,“ sagði Ólafur Ragnar í við­tali við Sprengisand. Við ábend­ingu þátta­stjórn­anda um að það væru hans eigin orð sagði Ólafur ein­fald­lega: „Nei, ég sagði það aldrei. Ég hef aldrei sagt það.“ Hann hélt því síðan fram að það eina sem hann hefði sagt væri að þegar þessi stóru mál væru komin í „heila höfn og þjóðin væri komin á trausta og örugga sigl­ingu og vildi þá í sam­ræmi við nýja stjórn­ar­skrá velja sér nýjan for­seta í sam­ræmi við þær reglur og það umboð“ þá væri hann til­bú­inn til að stíga til hliðar.

15 frambjóðendur komnir fram

Fimmtán manns hafa boðað fram­boð sitt í emb­ætti for­seta Íslands. Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi til­kynnti á Facebook rétt í þessu að hann væri hættur við fram­boð í ljósi þess að Ólafur Ragnar hyggð­ist halda áfram. 

„Í ljósi yfir­lýs­ingar Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta Íslands hef ég ákveðið að draga fram­bođ mitt til emb­ættis for­seta Íslands til baka. Ég þakka öllum þeim sem sýnt hafa mér stuðn­ing á und­an­förnum vikum. Ég lýsi yfir fullum stuđn­ingi við fram­boð Ólafs Ragnars og vona að hann sitji áfram á Bessa­stöðum.“

 

 

Halla Tóm­as­dóttir for­seta­fram­bjóð­andi hefur tjáð sig um málið á sam­skipta­vefnum Twitter. Þar segir hún að nú standi valið á milli for­tíðar og fram­tíðar. Hún kjósi fram­tíð. 

 

 

 

Listi yfirlýstra frambjóðenda

Ari Jós­eps­son, youtube-lista­maður

Andri Snær Magnason rit­höf­undur

Ástþór Magn­ús­son athafna­maður

Benedikt Kristján Mewes mjólk­ur­fræð­ingur

Bæring Ólafsson for­stjóri

Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir rit­höf­undur

Guðrún Margrét Páls­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur

Halla Tóm­as­dóttir athafna­kona

Heimir Örn Hólmars­son raf­magns­tækni­fræð­ingur

Hildur Þórð­ar­dóttir, heil­ari og þjóð­fræð­ingur

Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi

Magnús Ingi Magn­ús­son veit­inga­maður

Sturla Jónsson bíl­stjóri

Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­hús­prestur

Yfirlýsing Ólafs

Yfir­lýs­ingin sem Ólafur las upp á blaða­manna­fund­inum á Bessa­stöðum í dag var svohljóð­andi: 

„Und­an­farin ár hafa verið eins og við vitum öll verið tími umróts og erf­iðrar glímu, öldur mót­mæla knúðu á um stjórn­ar­skipti og nýjar kosn­ingar árið 2009. Fjölda­að­gerðir lögðu svo grund­völl að tveimur þjóð­ar­at­kvæða­greiðslum til höf­uðs ákvörð­unum rík­is­stjórnar og Alþingis í Icesave-mál­inu og nýlega söfn­uð­ust þús­undir við Alþing­is­húsið til að krefj­ast afsagnar for­sæt­is­ráð­herra og nýrra þing­kosn­inga. Þótt okkur hafi að mörgu leiti miðað vel við lausnir á vanda­málum sem sköp­uð­ust í kjöl­far banka­hruns­ins sýna öldur mót­mæla og hvernig brugð­ist var við þeim með því að for­sæt­is­ráð­herra sagði af sér og ákveðið var að flýta Alþings­kosn­ingum um heilt lög­gjaf­ar­þing að ástandið er enn við­kvæmt. Stjórn­völd og kjörnir full­trúar verða að vanda sig.

Í þessu umróti óvissu og mót­mæla og í kjöl­far nýlið­inna atburða hefur fjöldi fólks víða að úr þjóð­fé­lag­inu á und­an­förnum vikum höfðað til skyldu minnar, reynslu og ábyrgðar og beðið mig að end­ur­skoða ákvörð­un­ina sem ég til­kynnti í nýársávarp­inu og hvatt til þess að ég gefi á ný kost á mér til emb­ættis for­seta Íslands, standi áfram vakt­ina með fólk­inu í land­inu. Hefur þá iðul­lega verið vísað til þess að eftir Alþing­is­kosn­ingar geti myndun nýrrar rík­is­stjórnar reynst erfið og flókin og sam­búð þings og þjóðar áfram þrungin spennu.

Ýmsir höfðu að vísu á und­an­förnum mán­uðum borið upp slíkt erindi en eftir atburði síð­ustu vikna og í ljósi óviss­unar framundan hefur sú alda þrýst­ings orðið æði þung. Þessi þróun hefur sett mig í vanda. Þar hefur  frelsið frá dag­legum önnum tog­ast á við skyld­una sem óskir fólks­ins í land­inu höfðar til. Ég geri mér grein fyrir því að það eru ekki allir á þess­ari skoðun, telja að tími sé kom­inn til að annar skipi þetta emb­ætti, en ég hef engu að síður orðið að horfast í augu við fjöld­inn sem lagt hefur hart að mér og höfðað til ábyrgð­ar­innar sem for­seti ber, reynslu minnar og trausts­ins sem fólk hefur sýnt mér. Ég hef því boðið ykkur hingað í dag til að til­kynna að eftir mikla umhugsun er nið­ur­staða mín að verða við þessum óskum og gefa kost á mér til end­ur­kjörs í kom­andi for­seta­kosn­ingum.

Ef nið­ur­staða þeirra kosn­inga yrði að þjóðin veldi annan, sem hún treysti betur, þá myndi ég taka því vel, óska honum eða henni allra heilla og ganga glaður til móts við frelsið. Ef þjóðin kýs hins vegar að fela mér að nýju ábyrgð og skyldur for­set­ans mun ég auð­mjúkur áfram þjóna hags­munum Íslands, standa vakt­ina með fólk­inu í land­inu.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár