Mynd: Kristinn Magnússon

Læknar í einkarekstri: Fá upp í 36 milljónir á ári

Tölur frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands sýna háar greiðslur til sér­­greina­lækna á Íslandi. Samn­ingur sem Kristján Þór ­Júl­í­us­son gerði dró úr kostn­aði fyrir við­skipta­vini sér­greina­lækna. Heil­brigð­is­yf­ir­völd munu fara út í auk­inn einka­rekstur í heil­brigðis­kerf­inu á næstu árum. Heim­il­is­læknir telur að sér­greina­lækna­væð­ingin grafi undan grunn­heilsu­gæslu í land­inu.

Greiðslur Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ) til sér­greina­lækna á Íslandi, lækna sem starfa utan heil­brigð­is­stofn­ana sam­kvæmt samn­ingi við SÍ, námu sam­tals tæp­lega fimm millj­örðum króna árið 2014. Við þessa tölu bæt­ist svo hlut­deild sjúk­linga í kostn­að­inum, sam­tals rúm­lega tveir millj­arðar króna. Heild­ar­út­gjöld hins opin­bera og sjúk­linga til sér­greina­lækna vegna þjón­ustu þeirra námu því sam­tals rúm­lega 7 millj­örðum króna en um var að ræða ríf­lega 475 þús­und heim­sóknir á síð­asta ári til alls 343 lækna. Þetta kemur fram í gögnum frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Tölurnar sýna fram á hluta þess kostn­aðar sem fylgir því að reka heil­brigð­is­kerfi sem er að hluta til einka­vætt með einka­rekstri lækna þó gjöldin fyrir þjón­ust­una komi að stærstum hluta frá rík­inu.

Greiðsl­urnar til sér­greina­lækn­anna byggja á samn­ingi sem heil­brigð­is­ráðu­neytið, Sjúkra­trygg­ingar Íslands, Lækna­fé­lag Reykja­víkur og full­trúar sjálf­stætt starf­andi sér­greina­lækna gerðu árið 2013 og sem tók gildi í árs­byrjun 2014. Tölunum á list­anum sem Stundin fékk frá Sjúkra­trygg­ingum er skipt upp eftir heild­ar­greiðslum til ein­stakra lækna­hópa eftir sér­fræði­þekk­ingu þeirra.

Þeir læknar sem fá hlut­falls­lega hæstar greiðslur þegar litið er til sér­greinar þeirra eru lyf­læknar sem eru sér­fræð­ingar í melt­ing­ar­lækn­ingum en þeir fengu rúm­lega 36 millj­óna króna greiðslur að með­al­tali árið 2014 en í yfir­lit­inu er tekið fram að um spegl­anir hafi verið að ræða. Þá fengu svæf­inga­læknar greiddar rúm­lega 35 millj­ónir að með­al­tali frá Sjúkra­trygg­ingum og sjúk­lingum; bækl­un­ar­læknar rúm­lega 28,5 millj­ónir að með­al­tali og háls-, nef- og eyrn­ar­læknar tæp­lega 29 millj­ónir að með­al­tali. Hér er ein­ungis horft á með­al­tals­greiðslur; sumir lækn­anna á list­anum kunna að hafa fengið miklu meira en þetta í greiðslur en aðrir minna, allt eftir því hversu mikið þeir unnu á þeim stöðum þar sem þeir veittu þessa þjón­ustu. Sumir lækn­anna á list­anum – tekið skal fram að engin nöfn er þar að finna en hægt að skoða lista yfir þá lækna sem eru með samn­ing við SÍ á vef stofn­un­ar­innar – vinna ein­göngu á einka­reknum lækna­stofum á meðan aðrir vinna líka á heil­brigð­is­stofn­unum.

Umræðan um einkarekstur og -væðingu innan heilbrigðiskerfisins

Talsverð umræða hefur verið um einka­rekstur- og -væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu á liðnum mán­uðum á Íslandi í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjall­ana um sjúkra­hótel Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húss og opnun lækn­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar í Ármúl­anum sem og til­raun fyr­ir­tæk­is­ins til að fá heil­brigð­is­ráðu­neytið til að heim­ila Sjúkra­trygg­ingum Íslands að taka þátt í kostn­að­inum við brjósta­skurð­að­gerðir.

Stundin fjall­aði um Klíník­ina í júlí síð­ast­liðnum og þá ákvörðun Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar heil­brigð­is­ráð­herra að heim­ila ekki Klíník­inni ekki að fram­kvæma brjósta­skurð­að­gerðir. Þá ræddi Stundin við Kristján Þór um einka­rekstur- og -væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu og sagði hann þá að hann væri ekki hlynntur einka­væð­ingu á spít­ala­þjón­ustu en und­ir­strik­aði að ákveð­inn einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu hefði reynst vel. „Almennt séð er ég þeirrar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár