Myndband: Shutterstock

Hverjir eiga náttúruperlur Íslands?

Gríð­ar­leg breyt­ing hefur orðið á ásýnd lands­ins með fjölgun erlendra ferða­manna. Nátt­úruperlurnar eru farnar að láta á sjá vegna átroðn­ings en á sama tíma sjá fjár­festar aukin tæki­færi í nátt­úr­unni. Sífellt fleiri land­eig­endur stefna á að taka gjald af þeim sem vilja sjá nátt­úr­una og í und­ir­bún­ingi er heil­mikil upp­bygg­ing hót­ela og ann­arra mann­virkja á jörðum við nokkrar af okkar feg­urstu perlum.

Náttúra Íslands er það sem dregur nær átta­tíu pró­sent ferða­manna hingað til lands sam­kvæmt könnun Ferða­mála­stofu. Talið er að um ein og hálf milljón erlendra gesta komi til Íslands í ár sem þýðir að átroðn­ingur á nátt­úruperlum lands­ins hefur lík­lega aldrei verið meiri. Það er í okkar höndum að tryggja að kom­andi kyn­slóðir fái notið nátt­úru Íslands, líkt og kyn­slóð­irnar á undan gerðu fyrir okkur. Sigríður í Bratt­holti hót­aði að henda sér í Gullfoss vegna fyr­ir­hug­aðra virkj­un­ar­fram­kvæmda í foss­inum, svo við fengjum notið hans, en í dag ræður Gullfoss ekki við þann fjölda ferða­manna sem fer um svæðið á ári hverju. Gullfoss er hins vegar frið­lýstur og í eigu rík­is­ins og hefur tölu­verð upp­bygg­ing verið á svæð­inu und­an­farin ár. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja um eina þekkt­ustu nátt­úruperlu Íslands – Geysi. Miklar deilur hafa staðið um Geys­is­svæðið síð­ast­liðin ár, en svæðið er bæði í eigu einka­að­ila og rík­is­ins. Land­eig­endur hófu gjald­töku á svæð­inu sum­arið 2014 sem rík­inu hugn­að­ist ekki og lét setja lög­bann á gjald­heimt­una. Land­eig­endur buðu í kjöl­farið millj­arð króna í hlut rík­is­ins í Geys­is­svæð­inu, en ríkið vill ekki selja. Ríkið vill hins vegar kaupa hlut land­eig­enda og frið­lýsa svæðið, en það hugn­ast land­eig­endum ekki. Patt­staða er því í mál­inu og á meðan liggur Geys­is­svæðið undir skemmdum. Geysir er í dag á rauðum lista hjá Umhverf­is­stofnun, yfir svæði sem eru í veru­legri hættu á að tapa vernd­ar­gildi sínu, eða hafa tapað því að hluta til. 

 

Fleiri stefna á gjaldtöku

Umræðan um gjald­töku við ferða­manna­staði hefur verið áber­andi und­an­farin ár. Fjár­fest­arnir sem eiga Kerið í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi voru ákveðnir braut­ryðj­endur hvað varðar gjald­töku við nátt­úruperlur hér á landi, en þeir hófu að taka gjald af ferða­mönnum sem vildu skoða Kerið sum­arið 2013. Þeir ruddu braut­ina fyrir aðra land­eig­endur sem nú freista þess að hefja gjald­töku við perlur á sínum land­ar­eignum. Sumarið eftir hófu land­eig­endur við bæði Geysi og hver­ina við Náma­fjall og Leir­hnjúk að taka gjald af ferða­mönnum, en í báðum til­fellum var sett lög­bann á gjald­heimt­una vegna ósam­stöðu innan land­eig­enda­hóps­ins. 

Gjald­taka er nú við Víðgelmi í Hall­mund­ar­hrauni í Borg­ar­firði og þá boð­uðu land­eig­endur við Reyn­is­fjöru að gjald yrði tekið af þeim sem hyggð­ust nota bíla­stæðin við fjör­una í sumar. Sú gjald­taka gekk hins vegar ekki eftir. Þá stefndi sveit­ar­fé­lagið Rangár­þing eystra á gjald­töku við Selja­lands­foss í sumar, sem ekk­ert varð úr, og þá hefur gjald­taka við Skóga­foss og Sól­heima­jökul einnig verið rædd.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár