Afglæpavæðing: Fyrir valdhafa eða fólkið?

Íslenskt sam­fé­lag á langt í land þegar kemur að not­enda­sam­ráði að mati Krist­jáns Ernis Björg­vins­sonar, sem situr í starfs­hópi um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Óvíst er hvort hópnum tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, ekki síst vegna tregðu lög­regl­unnar.

Ég kvart­aði mig eig­in­lega inn í þennan hóp. Ég er búinn að vera að vinna í mála­flokknum í svo­lít­inn tíma og bý líka yfir per­sónu­legri reynslu, bæði af refsi­stefn­unni og af því að glíma við vímu­efna­vanda,“ segir Kristján Ernir Björg­vins­son, sem er í bata frá vímu­efnum og brennur fyrir hug­mynda­fræði um skaða­minnkun sem hann hefur starfað í kringum síð­ustu ár.

Hópurinn sem hann á við er starfs­hópur um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta sem Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra skip­aði í febr­úar.

„Mér fannst fárán­legt að það væri verið að skipa þennan starfs­hóp og það væri eng­inn þarna inni sem hafði per­sónu­lega reynslu hvernig það er að vera undir hæl refsi­stefn­unnar. Ég hringdi bara og minnti á mig og náði að kom­ast þarna inn,“ segir Kristján í sam­tali við Kjarnann.

„Draumurinn minn er að fá inn einstaklinga í virkri vímuefnanotkun og þá sem eru í viðhaldsmeðferð,“ segir Kristján Ernir Björgvinsson sem situr í starfshópi heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta. Hann segir íslenskt samfélag eiga langt í land þegar kemur að notendasamráði.
„Draum­ur­inn minn er að fá inn ein­stak­linga í virkri vímu­efna­notkun og þá sem eru í við­halds­með­ferð,“ segir Kristján Ernir Björg­vins­son sem situr í starfs­hópi heil­brigð­is­ráð­herra um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Hann segir íslenskt sam­fé­lag eiga langt í land þegar kemur að not­enda­sam­ráði.

Umræða um hug­mynda­fræði skaða­minn­kunnar og afglæpa­væð­ingar neyslu­skammta hefur auk­ist hér á landi síð­ustu ár, umræða þar sem fjallað er um að ekki eigi að refsa fólki fyrir vörslu tak­mark­aðs magns fíkni­efna til eigin nota og að efnin eigi ekki að gera upp­tæk hjá full­orðnu fólki.

Fjórar árangurslausar tilraunir til afglæpavæðingar neysluskammta

Sam­kvæmt gild­andi lög­gjöf er varsla hvers kyns skammta af ávana- og fíkni­efnum óheimil og refsi­verð. Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, hefur fjórum sinnum lagt fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta, nú síð­ast í sept­em­ber.

Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Hall­­dóru og með­­­flutn­ings­­fólks henn­­ar. Til stóð að end­ur­flytja frum­varpið með breyt­ingum af Willum Þór Þórssyni heil­brigð­is­ráð­herra á síð­asta þingi. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­mála­skrá í mars.

Í svari ráðu­­neyt­is­ins til Kjarn­ans í vor vegna ákvörð­un­­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna að frek­­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­­ars með því að skil­­greina hug­takið neyslu­­skammt­­ur. Því hafi verið skip­aður starfs­hópur. Í frum­vörp­unum sem lögð hafa verið fram hingað til hefur ekki verið til­greint hvar mörkin verða dregin um hversu mikið magn ávana- og fíkni­efna ein­stak­lingur megi hafa undir höndum án þess að það sé refsi­vert, verði breyt­ing­arnar að veru­leika.

Hægt að horfa til annarra ríkja við skilgreiningu á neysluskammti

Kristján kom inn í vinnu starfs­hóps­ins að tveimur fundum loknum. Hann og Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu – félags fanga á Íslandi, eru skip­aðir án til­nefn­ingar en meðal þeirra sem eiga full­trúa í hópnum eru Lyfja­stofnun, lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rauði kross­inn, rík­is­lög­reglu­stjóri, rík­is­sak­sókn­ari, emb­ætti land­læknis og SÁÁ.

Ekki liggur fyrir hvenær starfs­hóp­ur­inn mun skila til­lögum en áætlað er að hóp­ur­inn fundi fram yfir ára­mót að sögn Krist­jáns. Erf­ið­lega hefur gengið að kom­ast að sam­komu­lagi um meg­in­verk­efni hóps­ins: Að skil­greina neyslu­skammt.

„Þetta hefur reynst sumum aðilum mjög flókið. Það eru skiptar skoð­anir innan hóps­ins hvernig á að tækla þessi mál. Sumir vilja bara sjá um veikasta hóp­inn, þann hóp sem er heim­il­is­laus, þau eru til­búin að afglæpa­væða neyslu­skammta fyrir þann hóp en hafa áhyggjur af því að afglæpa­væða fyrir almenn­ari not­endur, sem ég er mjög ósam­mála.“

Halldóra er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins sem nú liggur fyrir þingi og hefur hún bent á að hægt er að líta til ann­arra ríkja þegar kemur að því að skil­greina neyslu­skammt. „Það liggur ljóst fyrir að þegar hafa mörg lönd farið í þá vinnu að skil­greina neyslu­skammta með einum eða öðrum hætti. Í ljósi þess að þekk­ingu megi sækja til Evr­ópu­ríkja sem hafa nú ára­tuga­langa reynslu af afglæpa­væð­ingu vímu­efna er engin ástæða til að ætla að skil­grein­ing neyslu­skammta verði of erfitt við­fangs­efni,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Lögreglan telji ógerlegt að afglæpavæða neysluskammta

Kristján segir að það hafi komið sér á óvart hversu íhalds­samir sumir full­trúar starfs­hóps­ins eru, þar á meðal lög­reglan, sem hafi meðal ann­ars talað um það á fyrstu fund­unum að það væri óger­legt að afglæpa­væða neyslu­skammta.

Þá segir Kristján að hann upp­lifi eins og skoð­anir full­trúa lög­reglu, rík­is­lög­reglu­stjóra og rík­is­sak­sókn­ara fái meira vægi innan starfs­hóps­ins. „Ég veit ekki hvort Guð­mundur Ingi deili þess­ari upp­lifun með mér en mér líður pínu stundum eins og ég hafi verið feng­inn þarna inn svo hægt sé að segja að verið sé að eiga sam­ráð við not­endur. Ég upp­lifi mig ekk­ert rosa­lega áhrifa­mik­inn þarna inni, reynsla mín er alla­vega ekki mjög veiga­mikil.“

Vill fá einstaklinga í virkri vímuefnanotkun inn í starfshópinn

Fyrir Krist­jáni er mark­miðið ljóst. „Við viljum aug­ljós­lega aukið öryggi fyrir fólk sem er að nota vímu­efni.“

Hann vill fá fleiri inn í vinnu starfs­hóps­ins sem hafa reynslu af notkun ólög­legra vímu­efna. „Ég og Guð­mundur Ingi komum þarna inn með per­sónu­lega reynslu sem er dýr­mætt og það er stórt skref að við fengum að taka þátt í þessum hópi. En við þurftum að biðja ítrekað um það. Draum­ur­inn minn er að fá inn ein­stak­linga í virkri vímu­efna­notkun og þá sem eru í við­halds­með­ferð. Það vantar líka konur með per­sónu­lega reynslu af refsi­stefn­unni. Við eigum ennþá langt í land þegar kemur að not­enda­sam­ráði.“

Frú Ragnheiður er meðal skaðaminnkandi úrræða sem Rauði krossinn á Íslandi býður upp á. Afglæpavæðing neysluskammta mun styðja við uppsetningu og þróun skaðaminnkandi þjónustu að mati Rauða krossins.
Frú Ragn­heiður er meðal skaða­minnk­andi úrræða sem Rauði kross­inn á Íslandi býður upp á. Afglæpa­væð­ing neyslu­skammta mun styðja við upp­setn­ingu og þróun skaða­minnk­andi þjón­ustu að mati Rauða kross­ins.

Þekkir það að óttast að skammturinn verði tekinn

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Kristján starfað við verk­efni tengd skaða­minnkun um ára­bil. Hann hefur hins vegar rekið sig á ýmsa veggi við vinn­una í starfs­hópnum sem kom honum á óvart. „Ég er bara 23 ára og það kom mér á óvart hvað þetta er rosa­lega mikil póli­tík. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að fólk væri svona íhalds­samt ennþá. Þetta á ekki að vera svona flókið. Það er alls konar póli­tík sem flækir þetta rosa­lega mikið og mér finnst það ógeðs­lega erfitt og leið­in­legt. Mig langar að vera þarna því ég brenn fyrir mál­efnum fólks sem notar vímu­efni og mér finnst það svo­lítið falla í skugg­ann á póli­tík­inni því þetta endar alltaf í ein­hverjum mála­miðl­unum.“

Meðal mála­miðl­anna nefnir hann að til tals hafi komið að tala um afnám refs­inga í stað afglæpa­væð­ingar, það er að lög­reglan leggi hald á vímu­efni en beiti ekki sektum. „Fyrir mér er það samt refs­ing, ég hef verið að vinna í gisti­skýlum með heim­il­is­lausu fólki og ef þau lenda í því að efnin eru tekin af þeim þá er það bara drullu mikil refs­ing og getur einnig verið hættu­legt.“ Sjálfur þekkir hann það af per­sónu­legri reynslu að búa við stöðugan ótta um að skammt­ur­inn verði tek­inn og eiga yfir höfði sér refs­ingu.

Afglæpavæðing mun minnka ótta við viðbragðsþjónustu

Heilt yfir segir hann vinnu starfs­hóps­ins hafa gengið ágæt­lega, en óvissa ríki enn um nið­ur­stöð­una. Vinna hóps­ins hingað til hefur meðal ann­ars falist í gagna­öflun af ýmsu tagi. Sjálfur hefur Kristján rætt við skjól­stæð­inga sína sem nýta sér skaða­minnk­andi úrræði á vegum borg­ar­innar.

„Ég tók við­töl við 25 ein­stak­linga og spurði hvaða vímu­efni þau voru að nota, hvaða áhrif full afglæpa­væð­ing myndi hafa á líf þeirra og hvað þau töldu vera neyslu­skammt. Það töl­uðu allir nema einn um það að afglæpa­væð­ing myndi hafa jákvæð áhrif á líf sitt. Það voru margir áhuga­verðir punktar sem komu. Ein sagði að hún þyrfti kannski mögu­lega ekki að skipta á kyn­lífi og efnum jafn oft,“ segir Kristján.

Hann segir skýr­ustu skila­boðin í gegnum alla gagna­öfl­un­ina vera að afglæpa­væð­ing neyslu­skammta mun minnka ótta fólks við við­bragðs­þjón­ustu. Það er í takt við umsögn Rauða kross­ins um frum­varpið sem nú liggur fyrir þingi þar sem segir meðal ann­ars að mik­il­vægt sé fyrir not­endur vímu­efna að hafa greiðan aðgang að heil­brigð­is- og vel­ferð­ar­þjón­ustu, án for­dóma og jað­ar­setn­ing­ar.

„Dæmi eru um að ein­stak­lingar sem glíma við vímu­efna­vanda veigri sér við að hringja eftir bráða­að­stoð eða leita sér aðstoðar af ótta við að lög­regla geri neyslu­skammta þeirra upp­tæka og/eða vera hand­tekin vegna ann­ars ólög­mæts athæf­is. Getur það jafn­vel átt við í bráða­til­fellum eins og við ofskömmtun á vímu­efn­um, sem og í til­vikum heim­il­is­of­beldis eða ann­ars­konar ofbeld­is,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Samtök vímuefnanotenda mikilvægt skref í átt að notendasamráði

Kristján starfar í mála­flokki heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir og hefur meðal ann­ars starfað í neyð­ar­skýlum á vegum Reykja­vík­ur­borgar. Nýlega tók hann við starfi verk­efna­stjóra hjá Viðmóti – sam­tökum um mann­úð­lega vímu­efna­stefnu á Íslandi. Um er að ræða fyrstu sam­tök not­enda vímu­efna hér á landi og er um mik­il­vægt skref að ræða í átt að frekara not­enda­sam­ráði.

Viðmót stóð fyrir setu­verk­falli í neyð­ar­skýl­inu á Granda­garði í vik­unni. Neyð­ar­skýlið er úrræði fyrir heim­il­is­lausa karl­menn á vegum vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem er opið frá klukkan 17 til klukkan 10 næsta dag. Menn sem nýta sér þjón­ust­una neit­uðu að yfir­gefa úrræðið í mót­mæla­skyni. Samtökin krefj­ast þess að sett verði á fót úrræði sem heim­il­is­lausir karl­menn geta nýtt sér á dag­inn, auk þess sem neyð­ar­skýlum verði ekki lokað yfir dag­inn þegar gul veð­ur­við­vörun, eða hærri, hefur verið gefin út.

Setu­verk­fallið er fyrsta verk­efni Viðmóts og segir Kristján starf­semi neyð­ar­skýl­is­ins kjarna hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar. „Skaða­minnkun í grunn­inn snýst um að minnka valda­ó­jafn­vægi og gefa per­sónu­legri reynslu meira vægi en hingað til hefur verið gert. Auðvitað skiptir sér­fræði­þekk­ing gríð­ar­legu máli en skaða­minnkun gengur líka út á að við þurfum að hlusta á fólkið sem um ræðir og vinna með þeim,“ segir Kristján.

Setu­verk­fallið fellur því undir hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar. „Það eru heim­il­is­lausir menn sem standa fyrir þessu sjálfir og þeir eru að tala fyrir sjálfan sig, þeir eru ekki með for­svars­mann. Það er í hjarta skaða­minn­kunnar, þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru að taka málin í sínar eigin hendur og eru ekki feimnir við það að vera heim­il­is­lausir .“

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar, segir að neyð­ar­skýli fyrir heim­il­is­lausa verði ekki opin á dag­inn. Stefna borg­ar­innar sé að fjölga búsetu­úr­ræðum en ekki neyð­ar­skýlum. Það fellur ekki undir hug­mynda­fræði skaða­minnk­unar að mati Krist­jáns. „Mark­miðin eru í raun og veru að reyna að auka mann­lega reisn og mann­rétt­indi þeirra sem eru að nota vímu­efni, ólög­leg og lög­leg. Við dæmum ekki fólk út frá því hvaða vímu­gjafa það kýs að nota.“

Þurfum að stíga skrefi lengra

Hvað fram­hald vinnu starfs­hóps­ins varðar seg­ist Kristján vona að hópnum tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, að skila til­lögum sem fela meðal ann­ars í sér skil­grein­ingu á neyslu­skammti.

„Ég hef ekk­ert bil­aðs­lega trú á því en ég vona það. Raunsætt þá held ég að þetta muni fara út í afnám refs­ingar sem er kannski bara fínt skref áfram,“ segir hann. Hvert skref skiptir máli en helst vill Kristján stíga alla leið. „Það er rosa­lega mikið af hálfum skrefum sem fólk er til­búið að taka en við þurfum að stíga skrefi lengra, við þurfum fulla afglæpa­væð­ingu.“

Kristján segir alla tapa eins og staðan er í dag. „Það er eng­inn sem græðir á refsi­stefn­unni, nema kannski þeir sem eru að flytja inn fíkni­efnin og selja þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

afglæpavæðing

Mest lesið undanfarið ár