„Það var frelsismál að hefjast handa við bankasöluna“

Sala á hlut rík­is­ins í bönkum snýst „ekki aðeins um að frelsa fjár­magnið, heldur ekki síður um að frelsa íslenskan almenn­ing undan ábyrgð­inni,“ sagði Bjarni Bendikts­son, er hann setti 44. lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Trufl­anir í gömlu túbu­sjón­varpi voru það fyrsta sem gestir sáu í mynd­bandi sem sýnt var við upp­haf 44. lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem Bjarni Bene­dikts­son for­maður setti í Laug­ar­dals­höll síð­degis.

Því næst tóku við börn að leik – í svart hvítu. „Vel­gengni verður ekki til af engu,“ sagði þulur undir myndum af vinn­andi fólki. „Farsælt sam­fé­lag verður ekki til af sjálfu sér. Til þess þurfum við frelsi, kraft og frjóan jarð­veg fyrir góðar hug­myndir. Í næstum heila öld hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stuðlað að fram­förum, öryggi og stöð­ug­leika.“

Á skjánum birt­ist Hall­gríms­kirkja í bygg­ingu. Og svo, eins og hendi sé veifað, fær­ist kirkjan og lífið í lit. Brosandi fólk, bak­andi fólk. Fullt af fólki. „Saman höfum við gert hrjóstrugt en gjöf­ult land að stað sem er öðrum fyr­ir­mynd.“

Er mynd­band­inu lýkur með sprengi­krafti gos­hvers­ins Strokks, gengur for­mað­ur­inn á svið undir dynj­andi lófa­klappi.

Bjarni fer inn á mitt sviðið, sem er baðað bláum bjarma, ein­kenn­i­slit flokks­ins sem hann hefur leitt í þrettán ár. Í gegnum súrt og sætt. Oftast í rík­is­stjórn.

Tekur sér stöðu við púltið, sem skreytt er fálk­anum, merki flokks­ins. Lítill fálki hefur svo tyllt sér í barm­inn á honum sjálfum.

„Já,“ byrjar for­mað­ur­inn á að segja. En hann kemst ekki lengra. Í bili.

Lófa­klappið dynur enn.

„Mikið er nú gott að vera kom­inn hingað aftur,“ segir hann er um hægist. „Það gleður mig mjög að sjá ykkur svona mörg saman komin hér aftur.“

Það er vissu­lega langt um liðið síðan að sjálf­stæð­is­menn komu saman til lands­fundar. Það gerð­ist síð­ast árið 2018. Fyrir fjórum og hálfu ári.

For­mann­s­tíð hans er orðin löng en hann hefur þó engin met slegið í því sam­bandi. Það á Ólafur Thors, sem sat í 27 ár, og þar á eftir kemur Davíð Oddsson, nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sem gegndi for­mennsk­unni í 14 og hálft ár. Bjarni þarf því nokkra mán­uði til að ná öðru sæt­inu. Og hann vill nokkra mán­uði til.

En það er ekki víst að hann fái þá ósk sína upp­fyllta. Því á 44. lands­fund­inum í Laug­ar­dals­höll er annar maður sem vill gjarnan setj­ast í stól­inn. Verða for­maður flokks­ins sem hann hefur gegnt þing­mennsku fyrir í tæpa tvo ára­tugi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, hefur skorað Bjarna á hólm. Á morgun muni þeir báðir flytja fram­boðs­ræður sínar. Um hádeg­is­bil á sunnu­dag­inn verður svo kosið og munu úrslitin liggja fyrir síðar um dag­inn.

En í dag er það Bjarni sem á sviðið. Stendur við púltið í heila klukku­stund og fimmtán mín­útum betur. Með orðið „frelsi“ á stórum skjá sér á aðra hönd og mynd af fossi að steyp­ast fram af kletta­brún á hina. Bjarni stendur í fall­vatn­inu miðju og fer yfir það sem til sjávar hefur runnið í hans for­mann­s­tíð, í hans tíð í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokknum. Og horfir til fram­tíðar. Guð­laugur Þór situr á fremsta bekk og fylgist með.

„Það er hér sem hlut­irnir ger­ast,“ segir Bjarni um sam­kom­una, þá langstærstu sem íslenskur stjórn­mála­flokkur stendur fyrir, „og þá sem mestu skiptir“ segir for­mað­ur­inn og ýtir gler­aug­unum, sem eru stíl við kon­íakslitað púltið, upp á nefið.

Hann talar um hvað hefur áunn­ist. Að á aðeins örfáum árum sé Ísland orðið „sann­kölluð vagga nýsköp­unar“. Að ný stór­fyr­ir­tæki hafi orðið til. Nefnir fisk­eldi meðal ann­ars sér­stak­lega. Það hafi gert „brot­hættar byggðir blóm­legar“.

Að nú þurfi að standa vörð um helstu kosti fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins svo öll tæki­færi í þeirri grein til nýsköp­unar og ann­arra tæki­færa fari ekki for­görðum. Að byggja þurfi fleiri smá­virkj­anir. Minnir á að iðn­fyr­ir­tæki í grænni orku séu farin að banka upp á í öllum ráðu­neytum. „Orku­skiptin eru hafin,“ segir Bjarni. Orkan frá fund­ar­gestum er líka allt að því áþreif­an­leg. Það er klappað, hrópað og blístrað þegar Bjarni slær á rétta strengi. Og stundum létta. Til dæmis þegar hann gerir góð­lát­legt grín að póli­tískum and­stæð­ingum. And­stæð­ingum sem þurfi að skipta um nafn, skipta um merki. Þess þurfi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki. Hann standi keikur um sín grunn­gildi. Frelsið. Tæki­færin. Var­færn­ina. Fyr­ir­hyggj­una.

Og allt hitt.

„Við höfum sett okkur háleit mark­mið,“ segir Bjarni er hann heldur áfram að ræða um orku­skiptin. „En við þurfum að taka réttar ákvarð­anir, í tíma.“ Það muni skera úr um hvort Íslend­ingar verði áfram í far­ar­broddi eður ei.

Vatnið virð­ist allt að því hrísl­ast niður vegg­inn að baki Bjarna. Eða eig­in­lega virð­ist Bjarni standa á bak við foss­inn. Þetta er áhuga­verð sjón­hverf­ing. Bjarni, sem talar fyrir virkj­unum í þágu orku­skipta og græns iðn­aðar, sem hann kallar svo, minn­ist hins vegar ekki á nátt­úr­una í ræðu sinni. Og ekki heldur ferða­þjón­ust­una, hina sterku atvinnu­grein. Ekki berum orðum að minnsta kosti. En nátt­úran umvefur lands­fund­ar­gesti á hverjum skjánum á eftir öðrum sem stillt hefur verið upp í Laug­ar­dals­höll.

Bjarni rifjar upp hvað á daga sína hefur per­sónu­lega drifið síðan á síð­asta lands­fundi. Að hann sé nú orð­inn afi. Að hann hafi orðið fimm­tugur en ekki getað haldið upp á afmælið vegna heims­far­ald­urs og óveð­urs.

Hann talar til unga fólks­ins. Minnir á ungu kon­urnar tvær sem hann eigi stóran þátt í að sitji í rík­is­stjórn­inni: Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur. Hann talar til eldra fólks­ins. Um frí­tekju­mark og elli­líf­eyri. Um grunn­gildin sem aldrei breyt­ast, íhalds­sem­ina og frjáls­lyndið sem geti vel átt sam­leið. Hann hvetur fund­ar­gesti til þess að standa upp og klappa fyrir „kven­skörungnum“ Salóme Þor­kels­dóttur, fyrr­ver­andi þing­manni og for­seta Alþingis, sem hefur sótt fleiri lands­fundi flokks­ins en flestir. Gestir láta ekki segja sér það tvisvar og Salóme fær stand­andi lófa­klapp. Vel og lengi.

„Þetta ætti að sýna breidd­ina í flokknum okkar,“ segir Bjarni.

„Kjörorð þessa fundar er ein­falt en mátt­ugt,“ segir hann og augu gesta hvarfla að stóra skjánum við hlið hans á svið­inu. „Frelsi,“ segir Bjarni með áherslu. „Okkur sjálf­stæð­is­mönnum er umhugað um frelsi. Okkur er það hug­leikið. Og það er leið­ar­ljós sjálf­stæð­is­stefn­unnar.“

Hann segir frelsið drif­kraft nær allra fram­fara og það er ekki að spyrja að því. Fund­ar­gestir eru honum sam­mála og klappa af krafti.

„Við erum ábyrgur flokkur,“ segir hann svo. „Við vitum að árangur kemur ekki af sjálfu sér.“ Með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn er Ísland komið í fremstu röð á ný meðal þjóða.“

Og enn er klappað.

Staða heim­il­anna hefur aldrei verið betri.

Klappað.

Svo ræðir hann um sam­starfið við vinstri flokk, flokk sem hann var í og með að gagn­rýna skömmu áður – flokk­inn sem sat í vinstri stjórn­inni sem klauf sam­fellda rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 1991.

„Við héldum fast í okkar gildi þegar við gengum í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið,“ segir hann, sam­starfið við VG og Framsókn sem hófst fyrir fimm árum.

„Sumir lyftu brún yfir því að við, unn­endur frels­is­ins, færum í rík­is­stjórn með Vinstri grænum. Sumir hafa einnig fundið að því að þar höfum við þurft að gefa eftir í ein­stöku málum en slíkt er ein­fald­lega óhjá­kvæmi­legt í sam­steypu­stjórn. Enn frekar auð­vitað þegar flokk­arnir spanna nán­ast allt hið póli­tíska lit­róf. Þar hafa allir flokk­arnir þurft að leita mála­miðl­ana. En, ég segi það fullum fetum, þeir hafa um leið staðið vörð um sín helstu áherslu­mál. Og það höfum við sann­ar­lega gert.“

Sam­starfið hafi verið gott. Það hafi byggst á trausti. „Byggst á sam­eig­in­legum skiln­ingi á þeirri ábyrgð sem við berum gagn­vart kjós­endum í land­inu.“

Bjarni segir fund­ar­gestum að þegar sjálf­stæð­is­menn standa saman séu þeir „algjör­lega ósigr­andi“.

Enn ræðir hann um frelsið og nú í tengslum við söl­una á Íslands­banka. „Það var frels­is­mál að hefj­ast handa við banka­söl­una og draga þannig úr rík­is­um­svifum.“ Með því að selja Íslands­banka seg­ist hann hafa verið að berj­ast fyrir fram­gangi lands­fund­ar­á­lykt­ana. „Ég verð ávallt reiðu­búin að taka harðan slag, ef á þarf að halda og veit að þið ætlist til þess af mér.“

Það er klappað og klappað.

Hann segir að í bönk­unum sem eru í eigu rík­is­ins hafi verið og séu enn gríð­ar­legir fjár­munir sem leysa þurfi úr læð­ingi. „Við ætlum að nota þessa pen­inga ann­ars staðar, helst í fjár­fest­ingu.“

Banka­sala snú­ist „ekki aðeins um að frelsa fjár­magnið, heldur ekki síður um að frelsa íslenskan almenn­ing undan ábyrgð­inni á bönk­unum. Þeir eru stöndugir í dag, en við hljótum að átta okkur á því að það getur breyst. Það er betra að aðrir axli þá áhættu en almenn­ingur.“

Bjarni talar um heims­far­ald­ur­inn. Að lands­fundur væri hald­inn í salnum þar sem fjölda­bólu­setn­ing­arnar fóru fram. „Hérna bretti maður upp ermar og fékk stung­una.“

Vel hafi tek­ist að tryggja hag heim­ila og fyr­ir­tækja í far­aldr­inum og verja þjóð­ina með bólu­setn­ingum. Engu síður hafi verið „mjög langt gengið“ í að hefta veiruna. „Með sama hætti og við gerðum upp árangur af efna­hags­legum aðgerðum þá er mik­il­vægt að við höfum þrek og þor til að ræða reynsl­una af beit­ingu sótt­varna­ráð­staf­ana. [...] Við verðum að láta okkur svona stórar spurn­ingar varða.“

Enn er klappað af ákafa.

Bjarni víkur að stríð­inu í Úkraínu og orku­krís­unni í Evrópu. Við slíkan vanda þurfi Íslend­ingar ekki að glíma vegna frum­kvöðla­starfs og fram­sýni í orku­málum. „Við í Sjálf­stæð­is­flokknum höfum aldrei efast um mik­il­vægi þess að treysta á sjálf­stæðið. Og á tímum sem þessum verður mik­il­vægi sjálf­stæðis enn ljós­ara. Að vera ekki öðrum háður um orku, njóta orku­sjálf­stæðis.“

Íslend­ingum sé vel borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Því næst skaut hann léttum skotum á Sam­fylk­ing­una. „Mér sýn­ist að meira að segja Sam­fylk­ingin hafi áttað sig á því að Ísland muni ekki ganga í Evr­ópu­sam­bandið.“ Nú sé „þetta gamla og helsta bar­áttu­mál“ flokks­ins verið lagt í kassa niður í kjall­ara, segir hann í hæðn­is­tón. „Þetta er stór­merki­legur kassi, fer sístækk­andi og inni­heldur ýmis sígild mál vinstri manna eins og bar­átt­una gegn frjálsri fjöl­miðlun og bjórnum.“ Gott ef bar­áttan gegn lita­sjón­varp­inu sé ekki þar líka í þessum sama kassa.

Hann óskar Sam­fylk­ing­unni til ham­ingju með „glæ­nýjan vara­for­mann“, Guðmund Árna Stef­áns­son. „Hafið þið séð betra dæmi um hringrás­ar­hag­kerfið?“

Þá var komið að Viðreisn. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur öllum þeim opnum örmum sem trúa á frelsi ein­stak­lings­ins,“ segir hann. „Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir þjóð­ina og borg­ara­lega þenkj­andi fólk að allir standi saman undir merkjum sjálf­stæð­is­stefn­unnar. Kæru vinir, þau eru öll vel­komin aftur heim.“

Það er klukku­tími lið­inn síðan að Bjarni steig á svið. Sviti hefur mynd­ast á enni hans undir sterkum ljós­unum. En fal­legu blóma­skreyt­ing­arnar sitt hvorum megin við púltið eru þó enn fullar af lífi.

Bjarni skjallar þær Þórdísi og Áslaugu Örnu. Fer yfir mál sem þær hafa leitt. „Guð­laugur Þór hefur sann­ar­lega ekki setið auðum höndum – og ég er ekki bara að tala síðan á sunnu­dag­inn.“

Hann hlær sjálfur og aðrir með.

Einnig hrósar hann Jóni Gunn­ars­syni sem hafi „þurft að bregð­ast við afar krefj­andi aðstæðum í hæl­is­leit­enda­málum“.

Þar á hann við frá­vísun hóps hæl­is­leit­enda sem flestir hafa ílengst á Íslandi í gegnum allan heims­far­ald­ur­inn þar sem ekki var hægt að senda þá til Grikk­lands eins og íslensk stjórn­völd vildu. Fólk sem nú er komið á göt­una í Aþenu.

„Má ég ekki bara biðja um gott klapp fyrir þessum öfl­ugu ráð­herrum sem við eigum,“ segir Bjarni og leiðir klappið af miklum móð.

Bláa birtan og Bjarni eru ein­hvern veg­inn orðin eitt. Eða svo virð­ist að minnsta kosti á tölvu­skjám þeirra sem fylgj­ast með setn­ing­ar­ræð­unni utan Laug­ar­dals­hall­ar­innar. Bláum bjarma slær á hár Bjarna. Eins og hann hafi brillj­antín í því, rétt eins og kóng­ur­inn sjálfur, Elvis.

Fram­tíðin.

Við munum nota næstu þrjú ár, fái ég nokkru um það ráðið, leggja til að skattar á fólk og fyr­ir­tæki verði lækk­aðir þannig að um muni. Við skulum láta næstu kosn­ingar snú­ast um til­lögur okkar sjálf­stæð­is­manna um lækkun skatta.“

For­mað­ur­inn minnir á grunn­stoðir flokks­ins; vinnu­semi, frelsi, og ábyrgð. „Hér erum við saman komin vegna þess að okkur þykir vænt um landið okkar og við vitum að sjálf­stæð­is­stefnan sam­einar þjóð­ina og gagn­ast öllum, óháð stöðu eða upp­runa.

Sameinuð og sam­taka, frjáls og sjálf­stæð, eru okkur allir vegir færir, íslensku sam­fé­lagi og þjóð til heilla.“

Kæru vinir, segir Bjarni að lokum. „Ég lýsi 44. lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins settan!“

Fund­ar­gestir hrópa. Klappa. Blístra. Flöss mynda­véla berg­mála um sal­inn undir takt­föstum fögn­uði er for­mað­ur­inn gengur niður af svið­inu.

Í bili.

Ekki hætta að hugsa um morg­un­dag­inn, syngur Fleetwood Mac í lag­inu Don‘t Stop sem fer að hljóma. Gær­dag­ur­inn er lið­inn, gær­dag­ur­inn er lið­inn.

Og innan fárra klukku­stunda, er úrslit í for­manns­kosn­ingu verða kynnt, ráð­ast póli­tísk örlög Bjarna Bene­dikts­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landsfundur

Mest lesið undanfarið ár