Mynd: Facebook-síða Icelandair

Almenningur þarf að koma Icelandair aftur í loftið

Algjör óvissa er um það hvenær Icelandair getur hafið eðli­lega starf­semi að nýju. En engin óvissa er um að félagið þarf mikla fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu í nán­ustu fram­tíð ef það á að lifa af. Sú fyr­ir­greiðsla verður að uppi­stöðu að koma úr tveimur vösum.

Það mun aldrei verða þannig að öll þessi starf­semi mun leggj­ast af.“ Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um Icelandair í Kast­ljósi 23. mars síð­ast­lið­inn. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í Bítinu á Bylgj­unni í morgun að það væri „sam­fé­lags­leg nauð­syn að hér sé flug­fé­lag og ef á þarf að halda að ríkið stígi inn í það þá er það eitt­hvað sem ríkið á að gera.“

Þau tvö, og fleiri ráða­menn, hafa komið því skýrt á fram­færi að Icelandair sé mik­il­væg­asta fyr­ir­tæki lands­ins.

Það er ekki ein­vörð­ungu vegna þess að það hefur flutt hingað til lands ferða­menn sem hafa skapað miklar gjald­eyr­is­tekjur á síð­ustu árum, heldur vegna þess að það er líka mik­il­væg lífæð vöru­flutn­inga til og frá land­inu. Ef Ísland, eyja með engar land­sam­göngur við nokk­urt annað land, ætlar að taka þátt í alþjóða­við­skiptum þá er það mat allra stjórn­mála­manna sem Kjarninn hefur rætt við und­an­farnar vikur, jafnt í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu, að það verði að vera starf­rækt hér íslenskt flug­fé­lag.

Icelandair er hins vegar í miklum vanda og lausnin á þeim vanda er ekki fyr­ir­sjá­an­leg. Félagið hefur verið í vand­ræðum um nokk­urra ára skeið. Það tap­aði 6,8 millj­örðum króna á árinu 2018, meðan ann­ars vegna mis­heppn­aðra ákvarð­ana sem teknar voru um breyt­ingar á leiða­kerfi og á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins. Icelandair tap­aði svo 7,1 millj­arði króna í fyrra, sem að mestu var rakið til kyrr­setn­ingar á Boeing 737 Max vélum sem félagið hafði keypt en gat ekki notað. Samhliða þessum erf­ið­leikum hrundi mark­aðsvirði félags­ins. Í byrjun árs 2018 var gengi bréfa í félag­inu 14,75 krónur á hlut og mark­aðsvirðið tæpir 74 millj­arðar króna. Það hafði þá dreg­ist saman um tæp­lega 118 millj­arða króna frá því í apríl 2016, þegar það náði hámarki. Í byrjun árs 2019 var mark­aðsvirðið komið undir 50 millj­arða króna þrátt fyrir stóra hluta­fjár­aukn­ingu árið áður.

Árið 2020 átti við­spyrnan að eiga sér stað. Mark­aðsvirðið í byrjun þess árs var tæpir 43 millj­arðar króna og hlut­hafar sem Kjarninn ræddi við á þeim tíma­punkti reikn­uðu ekki með að það gæti minnkað mikið meira. Á upp­gjörs­fundi Icelandair sem fór fram 7. febr­úar síð­ast­lið­inn, þar sem gerð var grein fyrir upp­gjöri síð­asta árs, sagði Eva Sóley Guð­björns­dóttir, fjár­mála­stjóri félags­ins, að Icelandair ætl­aði að „skila arð­bær­um og hag­kvæm­um rekstri 2020.“

Svo kom kórór­un­veiru­far­ald­ur­inn og breytti öllu.

Tapið rúmlega fjórfaldaðist milli ára

Icelandair Group tap­aði 30,1 millj­arði króna á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs. Það er rúm­lega tvisvar sinnum sam­eig­in­legt tap félags­ins á árunum 2018 og 2019, sem voru þó slæm rekstr­arár. Það er rúm­lega fjórum sinnum hærri upp­hæð en Icelandair tap­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair Group. Mynd: Skjáskot
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair Group. Mynd: Skjáskot

Og það er fyr­ir­liggj­andi að Icelandair var í fullri starf­semi þorra þeirra mán­aða sem um ræðir. Helstu mark­aðir fóru ekki að lok­ast fyrr en eftir að Banda­ríkin greindu frá sínu ferða­banni 12. mars. Evrópa fylgdi svo í kjöl­farið. Mark­aðsvirði Icelandair fór undir 30 millj­arða króna í fyrsta sinn í átta ár snemma í mars.

Við lokum mark­aða í gær var það rétt yfir tíu millj­arðar króna. Og við­búið að ef ein­hver við­skipti verða með bréf félags­ins í dag þá munu þau leiða til lækk­unar á geng­inu.

Í upp­gjör­skynn­ing­unni í gær kom fram að ein­skiptis­kostn­aður Icelandair vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins hafi numið 23,3 millj­örðum króna.

Viðbúið er að hann verður enn meiri í nán­ustu fram­tíð. Félagið flaug lítið sem ekk­ert í apríl og það er með öllu óljóst hvenær vélar þess fara að ferja far­þega á ný milli landa. Laust fé Icelandair, sem var 40 millj­arðar króna í lok mars, verður fljótt að þorna upp við þessar aðstæður.

Þegar búið að setja milljarða í Icelandair

Fyrsta stóra efna­hags­að­gerð íslenskra stjórn­valda var hin svo­kall­aða hluta­bóta­leið, sem mynd­aði grunn­inn að þeim aðgerð­ar­pakka sem kynntur var í Hörpu 21. mars síð­ast­lið­inn. Í henni fólst að ríkið tók þátt í að greiða allt að 75 pró­sent af launum starfs­manna fyr­ir­tækja sem höfðu orðið fyrir miklu tekju­falli upp að vissu hámarki. Engin velkt­ist í vafa um að við hönnun á leið­inni þá var staða Icelandair höfð til hlið­sjónar.

Tveimur dögum eftir fund­inn í Hörpu sagði Icelandair upp 240 manns og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna félags­ins, sem voru hátt í fjögur þús­und manns, voru sett á hluta­bóta­leið­ina. Með því var íslenska ríkið að taka á sig stærstan hluta af launa­greiðslum Icelandair.

Á þeim tíma var verið að von­ast til þess að hlut­irnir myndu skána og að ein­hverjar tekjur yrðu mögu­lega þegar liði á árið af ferða­þjón­ustu. Sú von dvín­aði hins vegar dag frá degi og er vart til staðar í dag.

Það þurfti því meira til ef bjarga ætti Icelandair.

Skyndileg viðbót sniðin að flugfélaginu

Í síð­ustu viku voru kynnt stór skref í þá átt. Fyrsta skrefið var að íslenska ríkið ákvað á þriðju­dag­inn 28. apríl að veita fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi kost á því að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Þótt for­víg­is­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafi kynnt áformin á blaða­manna­fundi sem hafði á sér svipað yfir­bragð og fund­irnir þar sem aðgerð­ar­pakki eitt og tvö voru opin­beraðir þá var sá munur á í þetta skiptið að ekk­ert frum­varp lá fyrir til að lög­leiða aðgerð­ina. Þá hefur ekk­ert kostn­að­ar­mat verið birt um hvað þessar stuðn­ings­greiðslur, sem fela í sér greiðslur að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði í allt að þrjá mán­uði, muni kosta rík­is­sjóð.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti í síðustu viku þau áform ríkisstjórnarinnar að ætla að greiða hluta launa starfsfólks sumra fyrirtækja á uppsafnarfresti.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti í síð­ustu viku þau áform rík­is­stjórn­ar­innar að ætla að greiða hluta launa starfs­fólks sumra fyr­ir­tækja á upp­safn­ar­fresti.

Daginn eftir sagði Icelandair Group upp 2.140 manns til við­bótar við þá 230 sem misstu vinn­una hjá félag­inu í lok mars. Þótt ekki liggi fyrir hversu dýrar þessar upp­sagnir verða rík­is­sjóði þá er búist við því að sá kostn­aður verði á milli sex og sjö millj­arðar króna. Sá kostn­aður kemur til við­bótar við þá millj­arða króna sem skatt­greið­endur voru þegar búnir að greiða í laun fyrir starfs­fólk Icelandair í gegnum hluta­bóta­leið­ina.

Ríkið tilbúið í samtal ef ...

Næsta skref var að sam­þykkja á rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­fundi, sem fór fram að morgni 30. apríl, til­­­lögu fjög­­­urra ráð­herra, þar á meðal for­­­manna allra stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna, um að ríkið væri til­­­­­búið að eiga sam­­­tal um mög­u­­­lega veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til Icelandair Group. Það væri háð því að „full­nægj­andi árangur náist í fjár­­­hags­­­legri end­­­ur­­­skipu­lagn­ingu félags­­­ins í sam­ræmi við þær áætl­­­­­anir sem kynntar hafa ver­ið, þar með talið að afla nýs hluta­fjár.“

Sig­­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði í Kast­­ljósi það kvöldið að ábyrgðir rík­­is­ins gætu hið minnsta numið yfir tíu millj­­örðum króna. Heim­ildir Kjarnans herma að þær þurfi að verða umfram það til að telja.

Enn síðar þennan dag birt­ist til­kynn­ing í Kauphöll Íslands um að Icelandair Group ætl­aði að ráð­ast í hluta­fjár­aukn­ingu upp á 30 þús­und milljón hluti. Sú aukn­ing átti að skila allt að 29 millj­örðum króna í nýtt hlutafé. Miðað við það er stefnt að því að selja hvern hlut á um 1,03 krónur á hlut. Gengi Icelandair við lok við­skipta þennan dag var 2,37 krónur á hlut.

Það átti því ekki að koma neinum á óvart að þegar opnað var á við­skipti með hluti í Icelandair Group á ný í gær­morgun þá hrundi verðið og fór niður fyrir tvær krónur á hlut.

Gangi áformin um hluta­fjár­aukn­ingu eftir munu núver­andi hlut­hafar líka þynn­ast niður í 15,3 pró­sent eign­ar­hlut. Margir þeirra hafa auð­vitað notið þess að Icelandair Group greiddi miklar fjár­hæðir í arð um nokk­urra ára skeið. En verð­mæti hluta­bréfa þeirra mun að stóru leyti hverfa.

Þar verða fyrir mesta högg­inu ann­ars vegar stærsti ein­staki hlut­haf­inn í Icelandair Group, banda­ríski fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­sjóð­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement. Sá sjóður sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum í flug­fé­lögum og er því í vanda víðar en á Íslandi. Hann kom inn í eig­enda­hóp Icelandair í hluta­fjár­aukn­ingu í apríl í fyrra þegar hann keypti 11,5 pró­sent á 5,6 millj­arðar króna. Sá hlutur er um 1,2 millj­arða króna virði í dag. Síðar bætti sjóð­ur­inn við sig hlutum og átti þegar mest var 13,5 pró­sent.

Sigurður Ingi Jóhannsson sagði í Kastljósi í síðustu viku að ábyrgðir ríkisins gætu numið tíu milljörðum króna hið minnsta.
Sigurður Ingi Jóhanns­son sagði í Kast­ljósi í síð­ustu viku að ábyrgðir rík­is­ins gætu numið tíu millj­örðum króna hið minnsta.

Hins vegar mun höggið aðal­lega lenda á íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, sem eiga beint að minnsta kosti 43,6 pró­sent hlut í félag­inu og lík­ast til meira óbeint í gegnum fjár­fest­ing­ar­sjóði sem eru á meðal hlut­hafa.

Ríkisbankar gætu þurft að breyta skuldum í hlutafé

Hluta­fjár­aukn­ingin er meg­in­að­gerðin í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu Icelandair. Samhliða henni verður þó ráð­ist í að fá kröfu­hafa félags­ins til að breyta skuldum í hlutafé. Alls námu vaxta­ber­andi skuldir Icelandair um 34 millj­örðum króna í lok mars.

Á meðal þeirra sem Icelandair skuldar umtals­vert fé er rík­is­bank­inn Lands­bank­inn. Léleg rekstr­ar­nið­ur­staða Icelandair á árinu 2018 gerði það að verkum að skil­málar skulda­bréfa sem félagið hafði gefið út voru brotn­ir. Mán­uðum saman stóðu yfir við­ræður við skulda­bréfa­eig­end­urna um að end­ur­semja um flokk­anna vegna þessa. Þær við­ræður skil­uðu ekki árangri og 11. mars 2019 var greint frá því að Icelandair hefði fengið lánað 80 millj­ónir dala, þá um tíu millj­arða króna, hjá inn­lendri lána­stofnun gegn veði í tíu Boeing 757 flug­vélum félags­ins, sem eru komnar nokkuð til ára sinna. Láns­fjár­hæðin var nýtt sem hluta­greiðsla inn á útgefin skulda­bréf félags­ins.

Því var verið að flytja hluta af fjár­mögnun Icelandair frá skulda­bréfa­eig­endum og yfir á banka í eigu íslenska rík­is­ins vegna þess að ekki tókst að semja við þá. Hinn rík­is­bank­inn, Íslands­banki, hefur líka lánað Icelandair fé, en bein rík­is­á­byrgð er á starf­semi beggja bank­anna í gegnum eign á hluta­fé.

Landsbankinn lánaði Icelandair umtalsverðar fjárhæðir í fyrra og tók veð í Boeing 757 vélum félagsins.
Lands­bank­inn lán­aði Icelandair umtals­verðar fjár­hæðir í fyrra og tók veð í Boeing 757 vélum félags­ins.

Í árs­hluta­reikn­ingi Icelandair kemur fram að Icelandair hafi þegar brotið lána­skil­mála tveggja ótengdra lang­tíma­lána við lok síð­asta árs­fjórð­ungs. Í báðum til­fellum hafi lán­veit­endur frestað [e. waiver) því að nýta sér þá stöðu til að krefj­ast end­ur­greiðslu á lán­unum.

Stærsti eigandinn selur sig niður

Til þess að Icelandair bjargist þurfa því ein­hverjir að leggja félag­inu til næstum 30 millj­arða króna í nýtt hlutafé. Það er for­senda þess að ríkið bæti enn í umtals­verða rík­is­að­stoð til félags­ins.

Við­mæl­endur Kjarnans telja ósenni­legt PAR Capital Mana­gement, stærsti hlut­hafi Icelandair, muni verða þar á meðal. Sjóð­ur­inn keypti hluti í íslenska flug­fé­lag­inu þegar MAX-krísan stóð sem hæst og að mati margra við­mæl­enda var sú inn­koma tengd því að halda Icelandair í við­skiptum við Boeing. Sú fjár­fest­ing er, líkt og áður sagði, að mestu töpuð og PAR hefur verið að selja sig niður í Icelandair síð­ustu vikur með miklu tapi. Alls hefur hlutur sjóðs­ins farið úr 13,5 pró­sent í 12,98 pró­sent frá því í byrjun apríl. Þetta er í fyrsta sinn síðan að PAR Capital Mana­gement kom inn í eig­enda­hóp Icelandair sem sjóð­ur­inn selur hluti.

Ekki eru sýni­legir margir einka­fjár­festar, inn­an­lands eða erlendis, sem hafa bol­magn eða vilja til að leggja til íslensku flug­fé­lagi í full­kominni rekstr­ar­ó­vissu tugi millj­arða króna. Því verið að treysta á íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið að hlaupa undir bagga og leggja til féð.

Ekkert fyrirliggjandi um hverjir muni taka þátt

Alls óvíst er hins vegar að þeir muni hlaupa til. Líf­eyr­is­sjóð­irnir munu óhjá­kvæmi­lega tapa á ýmsum fjár­fest­ingum sínum vegna kór­ónu­veirunnar og fyr­ir­liggj­andi er að umtals­vert högg muni koma á inn­greiðslur í sjóð­ina vegna þess for­dæm­is­lausa atvinnu­leysis sem nú er á Íslandi, en 55 þús­und manns eru annað hvort atvinnu­lausir að öllu leyti eða að hluta.

Stefán Svein­björns­son, stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, sem á tæp­lega tólf pró­sent í Icelandair og er stærstur eig­enda í líf­eyr­is­sjóða­hópnum, sagði í fréttum Stöðvar 2 í síð­ustu viku að það þyrftu að vera „rekstr­ar­legar for­sendur fyrir því að það eigi að fara að fjár­festa í félagi eins og þessu sem og öðrum félögum sem sjóð­ur­inn hefur fjár­fest í. Þannig að þeir fjár­munir sem fara þar inn skili sér með við­un­andi ávöxtun miðað við þá áhættu sem verið er að taka.“

Ákveði líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eru í eigu lands­manna, að segja pass í hluta­fjár­aukn­ing­unni mun Icelandair-vanda­málið lenda í fangi sömu lands­manna með öðrum hætti. Það færið þá aftur yfir til rík­is­ins sem þyrfti þá að ákveða hvort að það ætti að leggja flug­fé­lag­inu til fjár­muni svo það lifi, eða að láta það deyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár