Þýska Píratapartýið var stofnað árið 2006, um einu og hálfu ári eftir að slík stjórnmálahreyfing varð fyrst til í Svíþjóð. Í fyrstu var um litla grasrótarhreyfingu að ræða sem barðist fyrir auknu upplýsingafrelsi og gegn hvers kyns ritskoðun á veraldarvefnum. Segja má að flokkurinn hafi fyrst komist á blað árið 2009 þegar hann náði þrjú prósent fylgi í almennum kosningum til þings. Það var svo tveimur árum síðar, eða árið 2011, sem Píratar í Þýskalandi unnu stórsigur þegar þeir fengu fimmtán manneskjur kjörnar inn á þing með 8,9 prósent kosningu í höfuðborg landsins, Berlín. Ári seinna vann flokkurinn enn frekari sigra víðar í Þýskalandi. Þessi öri vöxtur hins nýja stjórnmálaafls var algjört einsdæmi í seinni tíma stjórnmálasögu Þýskalands og framtíðin virtist björt.
Það fór hins vegar fljótlega að fjara undan hjá þýskum Pírötum. Innanflokksdeilur birtust fyrir allra augum á spjallborðum flokksins og fjölmiðlar tóku til við að fjalla um hver átökin á fætur öðrum. Oftar en ekki var verið að takast á um persónur frekar en pólitík og skítkast flokksmeðlima í garð hver annars gat verið gróft og rætið. Hreyfingin klofnaði smám saman í smærri einingar þar sem hver höndin var upp á móti annarri. Árið 2014 var Píratapartýið, sem hafði birst mörgum Þjóðverjum sem ferskur vindur inn í þýska pólitík, ekki svipur hjá sjón og fjölmargir þingmenn flokksins höfðu til að mynda sagt sig úr flokknum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir