Mynd: EPA

Nokkrar jákvæðar fréttir í miðjum faraldri kórónuveiru

Ógn­vekj­andi fréttir dynja á okkur þessa dag­ana. Þeim ber að taka alvar­lega. En það finnst von­ar­glæta inn á milli talna um dauðs­föll og útbreiðslu veirunnar skæðu.

Yfir hálf milljón manna hefur nú greinst með nýju kór­ónu­veiruna og stað­fest dauðs­föll af völdum COVID-19 eru yfir 24 þús­und. Far­ald­ur­inn er enn í miklum vexti í Banda­ríkj­unum, á Ítalíu, Spáni og víðar. Og ástandið á eftir að versna áður en það batnar.

En er ekki eitt­hvað jákvætt að frétta – og þá erum við ekki að tala um jákvæðar nið­ur­stöður úr sýna­tökum?

Jú, sitt hvað vitum við nú sem við vissum ekki fyrir nokkrum vikum og mán­uðum. Og það er vissu­lega jákvætt. Hundruð millj­óna manna vinna nú heima – sem getur haft góð áhrif á ýmsa þætti til­ver­unnar.

En byrjum á far­aldr­inum sjálfum. Má sjá ein­hver jákvæð teikn? Finnst ein­hver von­ar­glæta inn á milli frétta um hraða útbreiðslu veirunnar?

Flestir þeir sem fá COVID-19 ná sér

Vís­bend­ingar eru um að 99% þeirra sem sýkj­ast nái bata. Sumir sem veikj­ast finna ekki fyrir ein­kennum. Og þó að tölur um dauðs­föll hækki dag frá degi er á þess­ari stundu talið að dán­ar­tíðnin sé um eða undir einu pró­senti, skrifar lækn­ir­inn Robert H.Shmerl­ing, sem starfar hjá Harvard-háskóla. Dán­ar­tíðnin virð­ist því, miðað við fyr­ir­liggj­andi gögn, vera mun lægri en í MERS-far­aldr­inum (34%) eða í SARS-far­aldr­inum (um 11%). COVID-19 er hins vegar skæð­ari heldur en árs­tíða­bundin inflú­ensa þar sem dán­ar­tíðnin er um 0,1 pró­sent að með­al­tali.

Fréttir hafa m.a. borist af því að 103 ára kona í Kína hafi náð sér eftir veik­indin. Sagt er að hún hafi ekki neina alvar­lega und­ir­liggj­andi sjúk­dóma þrátt fyrir háan aldur.

Barn í sóttkví í Þýskalandi leikur sér að því að líma regnboga á gluggann.
Barn í sótt­kví í Þýska­landi leikur sér að því að líma regn­boga á glugg­ann.

Börn virðast sjaldan smitast

Lang­flestir sem hafa greinst með veiruna eru á full­orð­ins­aldri. Börn sem hafa sýkst finna yfir­leitt væg ein­kenni. Engu að síður er mik­il­vægt að muna að börn geta sýkst og þau geta, fræði­lega séð, einnig borið smit í aðra, þó að þau finni sjálf ekki fyrir ein­kennum. Það er þó ekki talin megin smit­leið manna á milli.

Við vitum hvernig er hægt að hægja á útbreiðslu

Almenn­ingur getur dregið úr smit­hættu með sótt­vörnum á borð við ítrek­aðan og góðan hand­þvott með sápu og heitu vatni í að minnsta kosti 20 sek­úndur í einu. Veiran kemst inn í lík­amann um önd­un­ar­færi og því er gagn­legt að reyna að hætta að snerta á sér and­litið.

Félags­forðun, þ.e. að halda sig frá manna­mótum og að halda fjar­lægð frá þeim sem maður hittir, dregur einnig úr smit­hættu.

Við vitum líka að það virð­ist borga sig að skima ræki­lega fyrir veirunni, rekja smit og ein­angra sýkta. Það gerði Suður-Kórea meðal ann­ars og með að því er virð­ist góðum árangri.

Til að verja sjálfan sig fyrir smiti er nauðsynlegt að þvo hendur oft og vel og gott er að nota spritt þess á milli.
Til að verja sjálfan sig fyrir smiti er nauð­syn­legt að þvo hendur oft og vel og gott er að nota spritt þess á milli.

Tilfellum fækkar þar sem faraldurinn kom fyrst upp

Fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar segir margt benda til þess að far­ald­ur­inn sé í rénun í Kína og Suður-Kóreu. Ef tölur um þróun nýrra smita í þessum löndum eru réttar hefur til­fellum fækkað hratt síð­ustu daga. Bæði þessi lönd gripu til harðra aðgerða til að hemja útbreiðsl­una. Sömu sögu er að segja frá Singapúr, Taívan og Hong Kong.

Viðbrögð við faröldrum framtíðar ættu að batna

COVID-19 hefur sýnt að ríki heims eru mörg hver illa und­ir­búin fyrir far­aldra af þess­ari stærð­argráðu. Í kjöl­far hans er hins vegar tæki­færi til að stilla saman strengi, gera áætl­anir sem miða að því að bregð­ast mun hraðar við.

Sjáum hvað setur í þeim efnum.

Unnið er að gerð bóluefnis

Vís­inda­menn vinna nú hörðum höndum að þróun bólu­efnis. Því ferli er ekki hægt að flýta mikið og það mun því mögu­lega ekki koma á markað fyrr en eftir marga mán­uði, jafn­vel 1-2 ár.

Ítar­legar rann­sóknir eru fram undan og svo próf­anir til að ganga úr skugga um öryggi efn­is­ins. Þegar eru hafnar próf­anir í Kína og í Seattle í Banda­ríkj­unum.

Heiður himinn yfir London við upphaf hertra aðgerða í Bretlandi þar sem öllum er nú sagt að vera heima.
Heiður him­inn yfir London við upp­haf hertra aðgerða í Bret­landi þar sem öllum er nú sagt að vera heima.

Jörðin fær hvíld

Sam­dráttur í fram­leiðslu hefur skað­leg áhrif á hag­kerfi heims­ins eins og þau eru í dag. En á honum eru þó jákvæðar hliðar: Mengun minnkar. Á fyrstu mán­uðum árs­ins dróst útblástur koltví­oxíðs í Kína saman um 25% miðað við sama tíma­bil í fyrra. Vís­inda­menn við Stanford-háskóla hafa reiknað út að hreinna loft í Kína gæti bjargað um 77 þús­und manns­lífum.

Sama má segja um sam­göngur. Veru­legur sam­dráttur hefur orðið í flugi og færri nota einka­bíl­inn. Það leiðir einnig til minni útblást­urs.

Þjóðir hjálpast að

Þjóð­verjar eru farnirað taka á móti alvar­lega veiku fólki frá Frakk­landi og Ítalíu þar sem far­ald­ur­inn er skæð­ari en í Þýska­landi.

Kín­verjar hafa boðið öðrum löndum aðstoð. Þeir hafa sent lækna sína til ann­arra landa sem og hlífð­ar­búnað, svo sem and­lits­grímur.

Á netinu er að finna mikið úrval af jógaæfingum og fleiru sem auðveldlega er hægt að gera heima í stofu.
Á net­inu er að finna mikið úrval af jóga­æf­ingum og fleiru sem auð­veld­lega er hægt að gera heima í stofu.

Sóttkví þarf ekki að vera einangrandi

Á Íslandi eru yfir 10 þús­und manns í sótt­kví og tæp­lega 800 í ein­angrun. Fleiri millj­ónir manna um allan heim eru í sömu sporum. Það er gott að muna að um sam­eig­in­legan vágest er að ræða; við erum öll í þessu saman.

Margir hafa verið mjög hug­mynda­ríkir þegar kemur að því að vera heima meira en áður og gæta þess að sinna heils­unni.

Á þessum tímum inter­nets­ins er líka auð­veld­ara að rjúfa ein­angr­un­ina. Það er hægt að spjalla við vini og ætt­ingja, úrvalið af heima­æf­ingum á YouTube er nær enda­laust, það er líka hægt að velja úr ógrynni hljóð- og raf­bóka að lesa og það þarf varla að nefna allar kvik­mynd­irnar og sjón­varps­þætt­ina sem flestir hafa aðgang að.

Nú er rétti tíminn til að skemmta sér yfir góðu spili.
Nú er rétti tím­inn til að skemmta sér yfir góðu spili.

Nú eru dæmi um að sauma­klúbbar hitt­ist á ZOOM, í appi þar sem margir geta spjallað saman í einu í mynd. Aðrir hafa farið „á bar­inn“ með félög­unum á Messen­ger. Og svo mætti áfram telja.

Á Facebook má sjá að Íslend­ingar eru farnir að huga að krydd­jurtum nú þegar sólin hefur hækkað á lofti, aðrir eru að taka til í geymsl­unni (sem hefur staðið til lengi en alltaf setið á hak­anum) og enn aðrir eru að gera trölla­deig með börn­unum, púsla eða spila.

Það er þó skilj­an­legt að fólk finni fyrir áhyggjum og verði jafn­vel kvíðið. Rauði kross­inn er bæði með hjálp­ar­síma (1717) og net­spjall (1717.is) fyrir þá sem vilja ræða áhyggjur sínar og líðan.

Þetta líður hjá

Við vitum að far­ald­ur­inn mun ganga yfir. Ástandið sem nú ríkir er tíma­bundið. Samkvæmt spálík­ani vís­inda­manna við Háskóla Íslands mun far­ald­ur­inn ná hámarki fyrstu vik­una í apríl og um mán­aða­mótin júní-júlí ætti mest allt að vera um garð gengið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár