Símon Vestarr

Símon Vestarr

Söngvaskáld og bókmenntafræðingur sem skrifar hugleiðingar sínar um menningu, stjórnmál og trú og krossflækjurnar þar á milli.

Hippa­komm­úna eða dauði?

Oft þarf óskamm­feilna lýð­skrumara til að gera útlínur sann­leik­ans greini­legri með blekk­ingum sínum. Bless­un­ar­lega eigum við Íslend­ingar slík ein­tök sem eru ekk­ert feimin við að opna munn­inn. Eitt slíkt var einu sinni for­sæt­is­ráð­herra og fann sér síðar nýjan markað fyrir froðu sína; kjós­endur sem eru gramir út í sam­fé­lagið fyrir að hafa þroskast upp úr svart­hvítri  punga­menn­ingu for­tíð­ar­innar. Hvað sagði...

Hvernig dirfistu?

Manstu eftir árinu 1998? Kannski ertu of ung(ur). Best að ég rifji aðeins upp tíð­ar­and­ann á sautj­ánda ald­ursári mínu. Topp­lagið í útvarp­inu var eyrna­mis­þyrm­ingin One Week eftir hina smekk­lega nefndu froðu­sveit Barena­ked Ladies, sál­ar­drottn­ingin Lauryn Hill virt­ist enn vera með fulla fimm og Banda­ríkja­for­set­inn Bill Clinton var sóttur til saka fyrir að hafa logið til um sam­farir við Monicu nokkra...

Við þurfum mið­flokk

Við þurfum mið­flokk. Nei, ekki þennan skrípa­leik með regn­boga­hrossið. Það verður að ját­ast að Simmi D sýndi mikil klók­indi með stofnun þess flokks. Hann náði ekki aðeins að fanga huga þeirra þjóð­ern­is­remba sem þótti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vera orð­inn of linur í bar­átt­unni gegn þeim sem minna mega sín. Hann gerði líka list­form úr því að smíða stjórn­mála­gjörn­inga sem hljóma eins og...

Drullaðu þér í burtu: Sóma­kennd og afflú­ensa

Eftir fund í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í gær fékk Seðla­banka­stjóri smá gusu í and­litið. Hann hugð­ist taka í hönd­ina á for­stjóra Samherja og spyrja hann hvort hann ætl­aði að mæta á árs­fund Seðla­bank­ans. En sonur for­stjór­ans, Baldvin, var sko ekki á leið­inni að fara að láta það ger­ast. Steig á milli þeirra, stjak­aði við Seðla­banka­stjóra og sagði: „Hafðu smá...

Ekki bara kurt­eisi heldur rétt­læti

Á Aust­ur­velli á laug­ar­deg­inum sext­ánda mars voru bumbur barðar, regn­bogum var flaggað og saman var sungið og dansað til stuðn­ings þeim sem urðu að ósekju fyrir fanta­brögðum lög­regl­unnar á mánu­deg­inum ell­efta mars. Hitt­ing­ur­inn sner­ist um að finna fyrir nær­veru ann­arra sem bera sömu von í hjart­anu og maður sjálfur; um náunga­kær­leik, mann­skiln­ing og rétt­læti og svo­leiðis hippa­dót. Já, og auð­vitað...

Mest lesið undanfarið ár