Símon Vestarr

Símon Vestarr

Söngvaskáld og bókmenntafræðingur sem skrifar hugleiðingar sínar um menningu, stjórnmál og trú og krossflækjurnar þar á milli.

Sá er til vamms segir

Þegar ég sé heift­úð­ugar póli­tískar athuga­semdir valda­mik­ils fólks í garð umbóta­sinna í sam­fé­lag­inu hugsa ég stundum sem svo að þeir hljóti að vera að gera eitt­hvað rétt. Eitt dæmi um þetta er þegar for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar segir for­mann Eflingar hafa orðið félagi sínu til skammar með svörum sínum við mál­flutn­ingi Samtaka atvinnu­lífs­ins um Lífs­kjara­samn­ing­inn og for­sendu­brest. Helst virð­ist...

Sögu­hetjur og skúrkar í stjórn­málum

Skáldið Muriel Rukeyser skrif­aði eitt sinn að alheim­ur­inn væri gerður úr sögum, ekki úr atómum. Þetta skiljum við öll. Alheim­ur­inn sem slíkur er auð­vitað sam­settur úr frum­eindum — eng­inn nema enda­tíma­spá­menn með skegg niður að hnjám og lög­heim­ili í Laug­ar­vatns­helli myndu and­mæla því — en hér erum við ekki að tala um efn­is­heim­inn sjálfan. Við erum að tala um alheim­inn...

Enginn mun bjarga okkur

Winston Churchill tal­aði fyrstur manna um að Banda­ríkin og Bretland tengd­ust ein­stökum böndum; að sam­bandið milli ríkj­anna væri sér­stakt. Frasinn „sér­stakt sam­band“ (e. special relationship) hefur æ síðan verið póli­tískt bit­bein í Bret­landi. Þeim sem hugn­ast utan­rík­is­stefna Banda­ríkj­anna þykir þetta sam­band vera einn af horn­steinum breskrar vel­gengni. Þeir sem hafa ímug­ust á umsvifum hins vest­ur­heimska veldis tala hins vegar um...

Taktu hag­fót­inn af and­lit­inu á mér

Í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag­inn var okkur sagt að þrátt fyrir að skilj­an­legt væri að neysla heim­il­anna drægist eitt­hvað saman meðan sótt­varn­ar­yf­ir­völd upp­áleggja öllum Íslend­ingum að halda sig heima þá mættu Íslend­ingar ekki fyrir nokkra muni hætta algjör­lega að versla. Ég lagði við hlustir enda kveiktu þessi ummæli rúm­lega átján ára gamla minn­ingu af Banda­ríkja­for­seta í sjón­varps­út­send­ingu frá...

Af hug­takarugl­ingi og ismaflótta

Það er ekk­ert lítið sem mér brá við að opna smett­is­skinn­una í fyrra­dag. „Sós­í­al­ismi er ekki svarið,“ segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður pírata, „hvorki við kóvid, lofts­lags­breyt­ingum né fátækt.“ Albert Svan, flokks­fé­lagi hans, tekur undir: „Sammála, enda ismar of gild­is­hlaðnir og svart­hvítir núorðið. Samt ætti að hafa það sem við­mið að flestar grunn­stoðir virka best ef þær eru reknar á...

Björn Leví og sam­staðan

Á árunum sem ég var að slíta barns­skónum sem tón­list­ar­maður (‘95 – ‘99) átti rokkið í til­vist­ar­kreppu. Annað hvert band á Íslandi með hrotta­legan bumbu­barn­ing og raf­bjöguð öskur og strengja­teygjur vildi láta kalla sig eitt­hvað annað en rokk. Og telja mátti á fingrum ann­arrar handar þá sem vildu gang­ast við því að spila „þung­arokk.“ Margar af alþjóð­legu sveit­unum í báru­járns­sen­unni...

Ef þetta væri allt saman hóx

Stígum um stund inn í annan veru­leika. Veru­leika þar sem rúm­lega nítján af hverjum tutt­ugu lofts­lags­vís­inda­mönnum ver­aldar skjátl­ast varð­andi það að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum. Veru­leika þar sem sjötti aldauð­inn en alls ekki handan við hornið. Veru­leika þar sem allt tal um yfir­vof­andi heimsendi er massa­hy­stería sem vís­inda­menn hrundu af stað vegna stað­fest­ing­arslag­síðu, eða til að vernda styrk­veit­ingar sínar eða...

Hver er þetta í sæt­inu við hlið­ina á Ellen?

Á fundi í Safna­hús­inu fyrir nokkru sá ég Ögmund Jónasson taka hjart­an­lega í spað­ann á Birni Bjarna­syni. Gott ef það var ekki meira að segja eins og eitt karlaknús í ofaná­lag. Ég veit að engum þykir þetta stór­tíð­indi en þetta stakk mig aðeins. Þegar ég öðl­að­ist póli­tíska með­vit­und á loka­árum tutt­ug­ustu ald­ar­innar bar Ögmundur enn vissan hetju­ljóma á vinstri vængnum....

Með svona banda­menn ...

Þegar ég kall­aði það á dög­unum hræsni af utan­rík­is­ráð­herra „að skreyta sig fjöðrum ein­stak­lings­frelsis á meðan maður er með­limur í alþjóð­legum sam­tökum með tyrk­neskum ein­ræð­is­herra“ svar­aði Hannes Hólm­steinn því til að Erdogan væri ekki lengur með­limur í Evr­ópu­sam­tökum íhalds­manna og umbóta­sinna. Hann svar­aði því reyndar ekki hvort það hefði verið hræsni á sínum tíma en gott og vel. Nú eru...

Mest lesið undanfarið ár