Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Bloggfærslur höfundar munu snúast bæði um málefni líðandi stundar og þeirra sem liðnar eru. Bæði innanlands og erlendis. Höfundur hefur frá blautu barnsbeini haft mikinn áhuga á sögu og kennir efnið, ásamt fleiri samfélagsgreinum við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Gunnar er stjórnmálafræðingur að mennt og lauk MA prófi i Austur-Evrópufræðum frá háskólanum í Uppsölum, Svíþjóð, árið 1997.

Brexit: Hvers vegna eru allir á taugum vegna Írlands?

Það líður að einni mark­verð­ustu dag­setn­ingu í sögu Bret­lands, 29.mars 2019, þegar landið ætlar að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, ESB. ,,Brexit“ kall­ast það, en Bretland gekki inn í ESB árið 1973 ásamt Írlandi. Um er að ræða einn fræg­asta ,,skilnað" fyrr og síðar. Það hefur verið átak­an­legt að fylgj­ast með þessu ferli, hvernig það hefur bók­staf­lega tætt í sundur bresku þjóð­ina og...

Töpuð tæki­færi - um Ísland og ESB

Í anda upp­blá­s­innar þjóð­ern­is­rembu var skrifað bréf og umsókn Íslands að ESB lögð á ís fyrir þremur árum síðan, með sér­hags­muni að leið­ar­ljósi, en gegn almanna­hags­munum. Velta má hins­vegar fyrir sér þeim tæki­færum sem hefði skap­ast ef Íslend­ingar hefðu fengið að kjósa um aðild­ar­samn­ing og ef ferlið hefði fengið að ganga til enda. Íslend­ingar glutr­uðu niður miklum tæki­færum fyrir íslenskan...

Flug­skeyta­árásir í Sýrlandi - nokkrir punktar

Um nýj­ustu flug­skeyta­árásir í Sýrlandi má segja þetta: Assad for­seti Sýrlands er harð­stjóri. Pútín er álíka harð­stjóri og þeir eru vinir. Íran er einnig vinur Assads og þar af leið­andi vinur Pútíns. Eit­ur­efna­vopna­árás­ins (hverjum sem um er að kenna) kom á ,,heppi­legum“ tíma fyrir Trump, sem glímir við rússa­rann­sókn hjá FBI og vond kvenna­mál á heima­velli. Hún kom líka...

Banda­rískur Alfa-kall hringir í rúss­neskan Alfa-kall

Eiga ein­ræð­is­herrar inni ham­ingju­óskir frá fólki? Sér í lagi valda­mönnum ann­ara landa? Þessar spurn­ingar vakna kannski við þá stað­reynd að Donald Trump hafi hringt í Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, en hann var kjör­inn for­seti í þriðja (og síð­asta?) sinn í kosn­ingum fyrir skömmu og óskað honum til ham­ingju. En hann gerði það gegn ráðum frá helstu ráð­gjöfum sínum sem skrif­uðu...

Kosn­ingar í Rúss­landi - skoð­ana­könnun um Pútín

Næsta sunnu­dag verða for­seta­kosn­ingar í Rúss­landi. En þær eru í raun bara skoð­ana­könnun um fylgi Pútíns. Hann mun vinna og verður  for­seti til 2024 hið minnsta. Sam­skipti Rúss­lands og Vest­urs­ins hafa sjaldan verið verri frá lokum Kalda stríðs­ins og nýtt eit­ur­efna­mál í Bret­landi gerir illt verra. Þá er Rússland aðili að borg­ara­stríð­inu í Sýrland og átök­unum í Úkraínu. Næst­kom­andi sunnu­dag...

Kjósum um Borg­ar­lín­una

Ljóst er að eitt mögu­legt umfjöll­un­ar­efni sveit­stjórn­ar­kosn­ing­anna í vor verður það sem kallað er ,,Borg­ar­lína“ - nýtt sam­göngu­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um er að ræða kerfi þar sem þétta á byggð og ,,stýra“ fólki í almenn­ings­sam­göngur og uppi­staðan í þessu kerfi verða ,,ster­a­strætóar“ eins og kynn­ung­ar­full­trúi Borg­ar­lín­unnar orð­aði það svo skemmti­lega í kvöld­fréttum Stöðvar 2 þann 18.jan­úar síð­ast­lið­inn. Ekki veit und­ir­rit­aður...

Rétt­lætið náði Mladic

Bosníu-Serbinn Ratko Mladic hefur nú bæst í hóp þeirra manna sem dæmdir hafa verið fyrir stríðs­glæpi og glæpi gegn mann­kyn­inu (crimes aga­inst human­ity) en það var stríðs­glæpa­dóm­stóll­inn í Haag sem felldi dóm sinn 22. Nóvember síð­ast­lið­inn. Þar með lauk rétt­ar­höldum sem staðið höfðu yfir í fjölda ára. Mladic var þriggja stjörnu hers­höfð­ingi og með þeim virt­ustu í Alþýðu­her Júgóslavíu (JNA...

Skatt­arnir eru hinn "íslenski Talíbani"

Ef eitt­hvað virkar í stjórn­málum þá er það hræðsla. Þetta veit Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Þetta vita líka þeir sem reka Morg­un­blaðið og þeir sem standa að Samtökum skatt­greið­enda, sem aug­lýsa sig sem ,,gras­rót­ar­sam­tök“ þeirra sem berj­ast fyrir lækkun skatta, betri ráð­stöfun á almannafé, að rödd skatt­greið­enda heyr­ist og að ,,end­ur­vekja vit­und almenn­ings um að vöxtur hins opin­bera er ekki óhjá­kvæmi­legur", eins...

Ríkir fas­ismi á Íslandi?

Ríkir fas­ismi á Íslandi? Atburðir síð­ustu daga gefa til­efni til hug­mynda á borð við þessar. Þegar lög­fræð­ingar fjár­mála­fyr­tækja hrein­lega ráð­ast inn á rist­jórn­ar­skrif­stofur með lög­banns­kröfur að þá er ekk­ert skrýtið að manni detti það í hug. Lýðræði er ekki gefið og það er brot­hætt. Sagan sýnir að það er ekk­ert mál að þurrka út á skömmum tíma það lýð­ræði sem...

Það er full­komnað - HM

Það eru nokkur ártöl sem vert er að halda til haga í íslenskri sögu: 870 eða um það bil: Landnám. 930: Stofnun Alþingis. 1262: Íslend­ingar klúðra sjálf­stæð­inu – Gamli sátt­máli tekur gildi. 1380: Ísland lendir undir Dönum eftir lát Hákons VI Nor­egs­kon­ungs. 1550: Siða­skipti, kaþ­ólsk­unni hent út á hafs­auga. 1783: Móðu­harð­indi hefj­ast. 1845: Alþingi end­ur­reist. 1854: Versl­un­ar­frelsi inn­leitt. 1918: Full­veldi...

Sokkinn borg­ar­full­trúi

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir er sokk­inn borg­ar­full­trúi. Og hún sökkti sér sjálf. Farinn, bæ og bless við Fram­sókn­ar­flokk­inn, sem hún segir ekki eiga lengur sam­leið með sér. Sem er gott fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. En Svein­björg Birna er nátt­úr­lega bara popúlisti, sem er enska orðið yfir lýð­skrumara. Hún sann­aði það með ræki­legum hætti fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ars­kosn­ingar þegar Framsókn var í "dauða­teygj­unum" í borg­inni...

Mest lesið undanfarið ár