Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður skrifar um eitt og annað sem honum er efst í huga þá stundina. Hann er menntaður í umhverfisfræði og sagnfræði og hefur meðal annars starfað sem lögreglumaður, blaða- og fréttamaður, stundakennari við Háskóla Íslands, upplýsingafulltrúi og vefstjóri.

Full­veld­is­fram­sal víðar en í orku­pakka

Því er haldið fram að í 3. orku­pakk­anum sé falið fram­sal á full­veldi Íslands til Brussel. Það kann vel að vera, þó að sjálfur ótt­ist ég það frekar að orku­pakk­inn færi íslenskum „fjár­mála­snill­ingum“ frelsi til að braska á kostnað neyt­enda, rétt eins og inn­leið­ing banka­reglu­verks ESB veitti þeim færi á að hvell­sprengja efna­hags­bólu framan í þjóð­ina. En þeir...

Kvótinn, bank­arnir og raf­orkan

Spilling í stjórn­málum og fjár­mála­kerf­inu er stærsta áhyggju­efni Íslend­inga á sviði þjóð­mál­anna sam­kvæmt nið­ur­stöðu árlegrar könn­unar MMR, en 44% aðspurðra segj­ast hafa slíkar áhyggjur. Líklega hefur þetta við­horf og almennt van­traust í garð stjórn­valda verið frjór jarð­vegur fyrir and­stöðu við orku­pakka 3. Þjóð sem horfði upp á spillta við­skipta- og stjórn­mála­menn eyði­leggja heilt banka­kerfi geldur að sjálf­sögðu var­hug við...

Pólitísk eld­flaug

Okkur sem þykja stjórn­málin yfir­leitt full værð­ar­leg hér á landi söknum Birgittu Jóns­dóttur af póli­tíska svið­inu – póli­tísku eld­flaug­inni eins og einn vinur hennar kall­aði hana nýverið. Ég sló því á þráð­inn til Birgittu og ræddi við hana um stöð­una innan Pírata – en fyrst ræddum við m.a. um mál­skots­rétt­inn, handa­hófs­valda almenn­ings­deild Alþingis, frið­helgi einka­lífs­ins, kín­verska eft­ir­lits­sam­fé­lagið, óvand­virkni við inn­leið­ingu...

Brenndir líf­eyr­is­sjóðir stökkva á eld­inn

Við sem greiðum stóran hluta launa okkar í líf­eyr­is­sjóði gerum eflaust flest þá eðli­legu kröfu til stjórn­enda þeirra að þeir vandi sig við fjár­fest­ingar, séu frekar íhalds­samir en ævin­týra­gjarnir og að þeir séu nægi­lega jarð­bundnir til að sjá í gegnum háfleygar sölu­ræður brask­ara. Því miður hefur stjórn­endum nokk­urra líf­eyr­is­sjóða orðið hált á því svell­inu að und­an­förnu. Má þar t.d. nefna...

Þjóð­ar­sjóður um lofts­lags­að­gerðir

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefur auk­ist hér á landi þvert á þau mark­mið sem stjórn­völd hafa sett sér með und­ir­ritun alþjóð­legra samn­inga frá 1992 og gerð lofts­lags­á­ætl­ana frá 2009. Nýjasta útspil stjórn­valda, Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum 2018-2030, mun ekki snúa þess­ari þróun við ef marka má umsagnir um hana. Ólík sam­tök og stofn­anir eins og Samtök ferða­þjón­ust­unnar, Festa – mið­stöð um sam­fé­lags­lega ábyrgð...

Stjórn­völd stefna að auk­inni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda

Heims­byggð­inni hefur algjör­lega mis­tek­ist að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og það mun bitna illa á lífs­gæðum þeirra sem nú eru á barns­aldri. Það hefur ekki vantað upp á hástemmdar yfir­lýs­ingar stjórn­mála­manna um mik­il­vægi þess að draga úr losun, t.d. hefur for­sæt­is­ráð­herra sagt að lofts­lags­breyt­ingar séu stærsta verk­efni alþjóða­sam­fé­lags­ins um þessar mundir og að við­brögð við þeim skipti öllu um hvernig...

Klaustur-upp­tök­urnar eru til­efni til saka­mála­rann­sóknar

K Það er alveg aug­ljóst að Klaustur-upp­tök­urnar munu draga dilk á eftir sér fyrir þá þing­menn sem eru þar í aðal­hlut­verki, en einnig fyrir stjórn­kerfið allt. Á upp­tök­unum heyr­ist þing­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra lýsa því hvernig hann ákvað árið 2014 að skipa fyrr­ver­andi for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi­herra í Washington, gegn lof­orði um að hann ætti inni „svip­aðan“ greiða síðar. Um...

Neyð­ar­lög um lax­eldi

Það skeik­aði aðeins þremur dögum að Alþingi minnt­ist tíu ára afmælis neyð­ar­lag­anna um banka­kerfið með setn­ingu neyð­ar­laga um stækkun lax­eldis. Um mik­il­vægi neyð­ar­lag­anna hina fyrri verður ekki deilt, en neyð­ar­lögin hin síð­ari byggja á svo vafasömum grunni að þau hljóta að vekja alvar­legar spurn­ingar um stjórn­kerfið og við­horf ráð­herra til valds. Sjálf­skipað öng­stræti Í fyrsta lagi full­yrti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í...

N-ið: Drífa Snædal

Í þessum þætti hitti ég Drífu Snædal, fram­kvæmda­stjóra Starfs­greina­sam­bands Íslands, en hún sæk­ist nú eftir því að verða kjörin for­seti Alþýð­sam­bands Íslands. Við ræddum auð­vitað um sam­eig­in­leg hags­muna­mál stétt­ar­fé­laga og neyt­enda­sam­taka, t.d. neyslu­skatta, mann­sæm­andi hús­næð­is­kerfi, stöðu verka­fólks í land­bún­að­ar­kerf­inu, sam­vinnu­fé­lög og hvort taka þurfi verð­trygg­ing­una úr sam­bandi til að verja heim­ilin ef gengið fer að falla og verð­bólga að hækka.

Svigrúm til end­ur­kaupa, ekki launa­hækk­ana

Nú er vax­andi þungi í umræð­unni um þungar byrðar atvinnu­lífs­ins. Hver „sér­fræð­ing­ur­inn“ á fætur öðrum stígur fram og ber vitni um að fyr­ir­tækin ráði illa við launa­hækk­anir í kom­andi kjara­samn­ingum. Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins segir lítið sem ekk­ert til atvinnu­rek­enda að sækja og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir svig­rúm til launa­hækk­ana lítið sem ekk­ert. Það skýtur svo­lítið skökku við að á...

N-ið: Hlaðvarp um neyt­enda­mál

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til for­manns Neyt­enda­sam­tak­anna á aðal­fundi 27. októ­ber næst­kom­andi og á næstu vikum ætla ég að gera nokkra hlað­varps­þætti undir heit­inu N-ið, hlað­varp um neyt­enda­mál. Í þessum þáttum mun ég meðal ann­ars kíkja niður á Alþingi, tala við for­ystu­fólk stétt­ar­fé­laga, taka púls­inn á sam­bandi neyt­enda og bænda og reyni að kom­ast að því...

Óvé­fengj­an­legar heim­ildir Samtaka atvinnu­lífs­ins

„Það er margra ára­tuga hag­saga íslensks þjóð­fé­lags að óábyrgar launa­hækk­anir hafa keyrt upp verð­bólgu og eyði­lagt fram­kvæmd sjálf­stæðrar pen­inga­stefnu í land­inu“. Þetta full­yrti frétta­maður Stöðvar 2 í frétt um kjara­við­ræður á vinnu­mark­aði og berg­mál­aði þar áróður Samtaka atvinnu­lífs­ins. Fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna rit­aði nýverið í leið­ara frétta­bréfs SA að hag­saga eft­ir­stríðs­ár­anna geymdi „órækan vitn­is­burð um skip­brot hinnar hefð­bundnu íslensku ósam­ræmdu...

Lýð­ræð­isum­bætur afþakk­aðar

Það er eft­ir­tekt­ar­vert hversu litla athygli og umræðu lýð­ræð­is­mál hafa fengið að und­an­förnu, ekki síst í þeim kosn­ingum sem við höfum gengið til á síð­ustu árum, og í stjórn­ar­sátt­mála eru lýð­ræð­isum­bætur ekki nefndar á nafn nema í milli­fyr­ir­sögn og kafla um lýð­ræðis­kennslu í skólum. Nýaf­staðnar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar eru síðan alvar­leg áminn­ing um það hversu illa okkur hefur tek­ist upp við að...

Mest lesið undanfarið ár