Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður skrifar um eitt og annað sem honum er efst í huga þá stundina. Hann er menntaður í umhverfisfræði og sagnfræði og hefur meðal annars starfað sem lögreglumaður, blaða- og fréttamaður, stundakennari við Háskóla Íslands, upplýsingafulltrúi og vefstjóri.

Borg­ar­lína, hús­næð­is­mál og hið lýð­ræð­is­lega umboð

Líklega er óhætt að full­yrða að Reykja­vík­ur­borg ræður ekki við tvö stór verk­efni á einu kjör­tíma­bili, til þess hefur hún hvorki fjár­hags­lega- né stjórn­sýslu­lega burði. Þess vegna standa nýkjörnir borg­ar­full­trúar frammi fyrir mjög mik­il­vægri ákvörðun nú í upp­hafi kjör­tíma­bils – hvort áhersla verði lögð á upp­bygg­ingu borg­ar­línu eða átak í hús­næð­is­málum. Ef marka má fréttir þá virð­ist margt benda...

Svifryk, sandur og Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu

Það er með ein­dæmum hvað við getum hjakkað í sömu hjól­för­unum þegar kemur að póli­tískri umræðu. Nú er það hin árlega svifryks­mengun sem angrar borg­ar­búa og stjórn­mála­menn bregð­ast við með hefð­bundnum hætti, þeir ræða málið, skapa átaka­línur þar sem þær þurfa ekki að vera en fram­kvæma fátt og vísa í lang­tíma­lausnir. Borg­ar­stjórn kýs að nota ástandið til að leiða sjónum...

„Auðvitað já!“

Innan stjórn­kerf­is­ins og stjórn­mál­anna starfar fólk sem hefur á óvenju ósvíf­inn hátt tek­ist að tefja rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna í rúm fimm ár, einka­væð­ingu sem leiddi á end­anum til hruns íslenska efna­hags­kerf­is­ins með öllu sem því fylgdi. Alþingi sam­þykkti ályktun um það í nóv­em­ber árið 2012 að hafin yrði rann­sókn á einka­væð­ing­unni en rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sem komst til...

Valda­fyll­erí í dóms­mála­ráðu­neyt­inu

Dóms­mála­ráð­herra er óvenju vand­með­farið ráðu­neyti. Það starfar á mörkum fram­kvæmda- og dóms­valds og útdeilir gæðum til ein­stak­linga sem síðan eiga að gæta þess, sem hlut­lægir dóm­arar, að stjórn­völd starfi innan marka laga og réttar. Freist­ing­arnar eru þess vegna miklar fyrir þá stjórn­mála­menn sem velj­ast til að gegna starfi dóms­mála­ráð­herra. Það er freist­andi að útdeila svo virðu­legum og vel laun­uðum störfum...

Lánþegar þurfa skjól - strax!

„Að mínu viti þá er þetta svika­logn, það kemur að því að krónan veik­ist aftur, verð­bólgan fer af stað og þá mun koma annað hljóð í strokk­inn.“ Þessi við­vör­un­ar­orð, sem Kristín Pét­urs­dóttir, for­stjóri Mentor, lét falla í við­tali við Við­skipta­blaðið nýverið, eru orð í tíma töluð, enda borð­leggj­andi að krónan mun falla hressi­lega fyrr eða síðar, lík­lega fyrr en...

Hver græddi á United Silicon?

Saga United Silicon er ein­hver sér­kenni­leg­asti farsi sem settur hefur verið á svið í íslensku við­skipta­lífi, farsi sem hefur kostað almenn­ing bæði lífs­gæði og millj­arða króna. Ef allt væri með felldu í stjórn­kerf­inu þá færi fram ítar­leg rann­sókn á mál­inu, t.d. á vett­vangi Alþingis. Saga United Silicon hefst fyrir alvöru árið 2009  þegar Íslend­ingur í Danmörku, sem virð­ist þá hafa...

Borgin skili umhverf­is­verð­launum

Nú eru tæp þrjú ár liðin síðan Reykja­vík­ur­borg hlaut Náttúru- og umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs við hátíð­lega athöfn í Stokk­hólmi. Síðan þá hefur frammi­staða borg­ar­innar á sviði umhverf­is­mála borið þess merki að þessi erlenda við­ur­kenn­ing hafi stigið borg­ar­full­trúum og emb­ætt­is­mönnum borg­ar­innar til höf­uðs. Að minnsta kosti virð­ast þeir ekki telja neina sér­staka þörf fyrir vand­virkni og metnað á þessu sviði. Tökum nokkur...

Offjár­fest á kostnað almenn­ings

Í gegnum tíð­ina hefur offjár­fest­ing atvinnu­veg­anna lík­lega átt stærstan þátt í að skapa óstöðu­leika í íslenska hag­kerf­inu, mun stærri en launa­hækk­anir almenn­ings, þó að okkur sé talin trú um annað.  Verð­bólga, geng­is­fell­ingar, okur­vextir og atvinnu­leysi fylgdu yfir­leitt í kjöl­far mik­illa offjár­fest­inga og póli­tískrar úthlut­unar fjár­magns, t.d. í síld­veiðum á 7. ára­tugnum og þorsk­veiðum ára­tug­inn þar á eftir. Offjár­fest­ingar í banka­kerf­inu...

Óvið­un­andi ástand í Neyt­enda­sam­tök­unum

Það er sorg­legt að horfa upp á stöð­una í Neyt­enda­sam­tök­unum þar sem for­maður og stjórn virð­ast í harð­vít­ugum átökum. Sjálfur taldi ég að Ólafur Arnarson yrði góður for­maður, enda vel að sér, skýr í fram­setn­ingu og fylg­inn sér. Og mér leidd­ist heldur ekki að fá til starfans harðan and­stæð­ing verð­trygg­ing­ar­innar. En nú er svo komið að það verður ekki unað...

Vel­ferð­ar­kerfi efn­aðra lög­fræð­inga

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki hikað við að þenja út dóms­kerfið á und­an­förnum árum með til­heyr­andi kostn­aði fyrir skatt­greið­endur. Ráðherra flokks­ins afnam reglu­gerð um hámarks tíma­gjald sem rík­is­sjóður greiðir verj­endum í opin­berum málum, t.d. banka­hruns­málum. Þá kom flokk­ur­inn á milli­dóm­stigi sem talið er auka kostnað rík­is­sjóðs um rúman hálfan millj­arð á ári og nú er unnið að því...

Mest lesið undanfarið ár