Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður skrifar um eitt og annað sem honum er efst í huga þá stundina. Hann er menntaður í umhverfisfræði og sagnfræði og hefur meðal annars starfað sem lögreglumaður, blaða- og fréttamaður, stundakennari við Háskóla Íslands, upplýsingafulltrúi og vefstjóri.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skuldar okkur sann­leik­ann

„Ég er sjálf­stæð­is­maður.“ Þessa yfir­lýs­ingu má finna í við­tali við Björgólf Guð­munds­son, þá fram­kvæmda­stjóri Hafskips, sem birt­ist í Helg­ar­póst­inum árið 1983. Þar er ferli Björg­ólfs innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins rak­inn – vara­for­maður Heimdallar, stjórn­ar­maður í SUS, for­maður í Verði, for­maður upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins og sæti í fjöl­mörgum nefndum flokks­ins. Tveimur árum eftir að við­talið birt­ist var Hafskip orðið gjald­þrota og árið 1991...

Ótti Sjálf­stæð­is­flokks við rann­sókn á Lands­bank­anum

Það er frá­leitt að ráð­andi stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn hafi ekk­ert vitað þegar við­skipta­veldi Fram­sókn­ar­flokks­ins komst yfir Bún­að­ar­bank­ann með svindli. Þeir sem höndl­uðu með almanna­eigur í bönk­unum á þessum tíma og segj­ast núna ekki hafa vitað af fléttu Ólafs Ólafs­sonar og félaga, þeir hafa ein­fald­lega ekki viljað sjá spill­ing­una. Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður hefur sakað stjórn­völd þess tíma um sinnu­leysi...

Björt fram­tíð í fót­spor Fram­sókn­ar­flokks­ins

Það er ekki auð­velt fyrir nýja ráð­herra að feta sig innan stjórn­kerf­is­ins, eins og má m.a. sjá af fyrstu dögum umhverf­is­ráð­herra í starfi. Orð hennar hafa að minnsta kosti ekki alltaf virst í sam­ræmi við þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin boðar. Og reyndar er henni nokkur vor­kunn, því aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar virð­ast oft á tíðum í beinni and­stöðu við eigin stjórn­ar­sátt­mála. Eitt...

Björt fram­tíð sannar sig fyrir Sjálf­stæð­is­flokki

Það kom mér ekki á óvart að Viðreisn skyldi styðja frum­varp fjár­mála­ráð­herra um afnám og skerð­ingu líf­eyr­is­rétt­inda opin­berra starfs­manna. Þetta var frum­varp sem stjórn­mála­flokkar verk­taka, útgerða, fjár­mála­brask­ara og eign­ar­halds­fé­laga gátu staðið að í sam­ein­ingu, hvort sem þeir sigldu undir nafni Við­reisnar eða Sjálf­stæð­is­flokks. Það kom mér hins vegar veru­lega á óvart að þing­menn Bjartrar fram­tíðar skyldu veita mál­inu stuðn­ing. For­svars­fólki...

Bar-rabb: Sigurður Hólm Gunn­ars­son

Í sjö­unda þætti Bar-rabbs hitti ég Sigurð Hólm Gunn­ars­son, vara­for­mann Sið­menntar, for­stöðu­mann hjá Barna­vernd Reykja­víkur og fram­bjóð­anda í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í haust. Saman röbbuðum við um stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar og fram­tíð­ar­horfur. Sigurður segir m.a. að það eigi ekki að vera mark­mið í sjálfu sér að Sam­fylk­ingin verði stór flokkur, mik­il­væg­ast sé að hann hafi skýra stefnu í anda jafn­að­ar­stefn­unnar. Það sé...

Lyklalög, nýfrjáls­hyggja og maga­fylli af börnum

Rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks hefur svikið mörg lof­orð, sér í lagi í hús­næð­is­málum. Leigu­mark­að­ur­inn hefur orðið enn mann­fjand­sam­legri á kjör­tíma­bil­inu, fjöru­tíu ára verð­tryggð hús­næð­is­lán eru enn þunga­miðjan í kerf­inu og rík­is­stjórnin hefur ekki lagt fram frum­varp um lykla­lög þrátt  fyrir að báðir stjórn­ar­flokk­arnir hafi lofað því. Með lykla­lögum fengi lán­tak­andi rétt á að skila fast­eign ef skulda­byrðin yrði of...

Þangað leitar Smárinn sem hann er kvaldastur

Það er sér­kenni­legt að verða vitni að póli­tísku upp­hlaupi eins og því sem Gunnar Smári Egilsson hratt af stað í kjöl­far atkvæða­greiðslu á Alþingi um ný búvöru­lög. Hann skrif­aði í hástöfum á facebook að fólk ætti ekki að kjósa Pírata, Sam­fylk­ingu eða VG vegna þess að þing­flokkar þeirra sátu hjá í loka­at­kvæða­greiðslu um nýjan búvöru­samn­ingi við afgreiðslu hans á þingi....

Pen­inga­sugur á flótta?

Stjórn­endur Haga hafa nú grætt veru­lega á þeirri bólu sem blásin hefur verið út á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði með fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna. For­stjórar Bón­usversl­an­anna og Banana hafa selt allan sinn hlut í félag­inu og for­stjóri Haga hefur einnig losað sig við stóran hluta af sinni hluta­bréfa­eign. Í fréttum hefur því verið haldið fram að salan sé til komin vegna yfir­vof­andi...

Fyrsta ráðu­neyti Pírata

Hún vakti nokkra athygli greinin sem And­rík­is­menn skrif­uðu um fyrsta ráðu­neyti Birgittu Jóns­dóttur. Þar var ágætu fólki skellt í ráð­herra­stóla í bland við póli­tíska drauga og kjaftaska, lík­lega til þess að reyna að skjóta kjós­endum skelk í bringu. Þetta var þó æði sér­kenni­leg upp­still­ing, sér­stak­lega í ljósi þess að Píratar hafa sam­þykkt stefnu þess efnis að þing­menn verði...

Bar-rabb: Eydís Franzdóttir

Í þriðja þætti Bar-rabbs hitti ég Eydísi Franzdóttur, land­eig­anda á Suð­ur­nesjum og stjórn­ar­mann í Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Suð­vest­ur­lands. Við röbbuðum m.a. um nýlegan dóm Hæsta­réttar sem dæmdi eign­ar­nám á landi fyrir Suð­vest­ur­línu ólög­legt, um bar­áttu land­eig­enda og nátt­úru­vernd­ar­sinna gegn óvönd­uðum og aft­ur­halds­sömum rík­is­fyr­ir­tækjum, ráðu­neytum og stofn­unum og um lélega stjórn­sýslu orku­mála hér á landi. Eydís seg­ist m.a. hafa lært það af reynsl­unni...

Iðn­að­ar­ráð­herra yrði maður að meiri

Árið 2011 tóku tveir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar til máls á Alþingi og kröfð­ust þess að Svandís Svav­ars­dóttir, umhverf­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri-grænna, segði af sér eftir að Hæsta­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herr­anum hefði verið óheim­ilt að stað­festa aðal­skipu­lag Flóa­hrepps bara að hluta. Umhverf­is­ráð­herra taldi sig standa í fullum rétti þar sem Lands­virkjun greiddi skipu­lags­vinnu vegna virkj­unar í...

Mest lesið undanfarið ár