Andri Sigurðsson

Andri Sigurðsson

Andri er hönnuður og félagi í Sósíalistaflokki Íslands.

Kapítalisma fylgir rasismi, fátækt, atvinnu­leysi, glæpir, og ofbeldi

Eftirfarnadi er þýðing á skrifum leik­stjórans Boots Riley sem hann setti fram á Twitter fyrir skömmu í tengslum við morðið á George Floyd. Rót vandands er efnahags­kerfið sem býr til skilyrðin sem leiðta til þess ofbeldis sem lögreglan sýnir fólki. Hann sýnir fram á hvernig atvinnu­leysið, sem kapít­al­isminn þarfnast og viðheldur, leiðir til fátæktar sem svo leiðir fólk á...

Ómissandi fólk, dauði svelti­stefnunnar, og þrír aðrir hlutir sem vírusinn hefur opinberað

Hvernig kvenna- og láglauna­stéttir halda samfélaginu gangandi. Kynja­misréttið á vinnu­markaði hefur sjaldan verið augljósara en í dag þegar við sjáum hjúkrunar­fræðinga, sjúkra­liða, ræstinga­fólk og fleiri stórar kvenna­stéttir standa í fram­línunni og barátt­unni við vírusinn. Sjúkra­liðar voru samnings­lausir í tæpt ár og hjúkrunar­fræðingar í heilt ár, hvort tveggja stéttir sem eru einfald­lega á skammar­lega lélegum launum ef við setjum mikilvægi...

Lúxus­bátur stjórnmála­stéttarinnar kemur með sjálf­virkum launa­hækkunum

Stjórnmála­stéttin þráir samstöðu á meðan hún skilur  kvenna­stéttir og láglaunafólk eftir á hriplekum bát og neitar að kasta til þeirra björgunar­hringnum. Í kapítalísku samfélagi eru aldrei allir í sama báti. Stétta­stríð yfir­stéttarinnar er alltaf í gangi. Sumar stéttir fá sínar launa­hækkanir á færibandi án þess að þurfa að svo mikið sem lyfta litla putta. Það er engin furða að fólk sé...

Sósíal­istar hafa náð fram flestum þeim réttindum og lífs­kjörum sem við búum við

Sósíalismi snýst um að þróast áfram, sósíal­istar trúa að hægt sé að skapa betra og rétt­látara samfélag. Fólk sem hefur kallað sig sósíal­ista, anarkista og kommúnista er fólkið sem hefur með baráttu sinni náð fram flestum af þeim réttindum og lífs­kjörum sem við búum við í samfélaginu. Það er nákvæmlega vegna þess sem þessi orð "sósíal­isti" og "kommúnisti" hefur verið...

Fólkið sem velur alltaf frið framyfir réttlæti

Áhuga­leysi og sinnu­leysi á stjórn­málum og réttlætis­baráttu eru forréttindi þeirra sem lifa þægilegu lífi án skorts. Að sama skapi eru það forréttindi sama hóps að krefjast ávalt friðar í samfélaginu, framyfir réttlætið sjálft. Að sussa á baráttuna fyrir betra samfélagi og gagnrýna aðferða­fræðina: „Ég er sammála markmiði þínu, en ég get ekki verið sammála aðferðinni“ segir friðsama og hófasama fólkið...

Framleitt samþykki—Öflug gagnrýni á fjölmiðla er ekki hættuleg heldur nauðsynleg

Flestir myndu segja að gagnrýni eigi ávallt við og að gagnrýni sé bæði nauðsynleg og holl svo samfélagið geti þróast áfram og lært af reynslunni. Eitt fyrirbæri í samfélaginu má hinsvegar ekki gagnrýna að mér sýnist. Það eru fjöl­miðlar. Það er sérstak­lega áberandi að margt frjáls­lynt fólk, miðjufólk, telur að þegar það kemur að fjöl­miðlum sé jafnvel hættulegt samfélaginu að...

Valdið til fólksins—Annars breytist ekkert

Kapít­al­isminn er ósam­ræm­an­legur lýðræðinu og leiðir óhjá­kvæmilega til auðræðis. Það er ekkert virkt lýðræði í raun, kvóta­þegar og millj­arða­mær­ingar ganga um og múta og fá auðlindir samfélagsins á silfur­fati en almenningur fær ekkert af því sem hann biður um: mann­sæmandi laun eða húsnæðis­kerfi, aukið fjármagn til heilbrigðis­kerfisins, nýja stjórnar­skrá, menntun án endur­gjalds, sann­gjarnan arf af auðlindum, banka sem þjóna fólki...

Frá Trump til Johnson: Ólígarkar andskotans og stjórn­mála­mennirnir sem þjóna þeim

Grein George Monbiot um drottnun hinna ríku óligarka yfir samfélaginu og hvernig ný tegund trúðslegra og þjóðernis­sinnaðra stjórn­málamanna hefur tekið við hlut­verkinu að verja þá fyrir kröfum almennings, að verja auðklíkuna fyrir lýðræðinu: "Fyrir sjö árum kvartaði eftirherman Rory Bremmer yfir því að stjórn­málamenn væru orðnir svo leiðinlegir að fáir væru einu sinni þess virði að herma eftir: "Þeir eru...

Einka­væddir bankar vinna gegn hagsmunum almennings

Þremur árum áður en Sjálfstæðis­flokkurinn einka­væddi bankana okkar, um síðstu aldamót, afnám Bill Clinton hin frægu Glass-Steagal lög úr gildi, lög  sem voru innleidd eftir Kreppuna miklu. Það var árið 1999. Lögin voru sett til að aðskilja starfsemi viðskipta­banka og fjár­festinga­banka svo eigendur bankanna gætu ekki lagt fjármuni almennings undir í áhættu­sömum gjörningum sem eiga meira skilt við fjár­hættuspil en...

Mest lesið undanfarið ár