
Vilja ekki „fjögurra akreina þjóðveg“ í bakgarðinn
Er nokkurra mínútna sparnaður á ferðatíma þess virði að raska náttúru, útivistarsvæðum og spilla útsýni þúsunda? „Það að leggja umferðarmannvirki þvers og kruss um sundin blá er ekki smámál,“ segir íbúi í Grafarvogi um áformaða Sundabraut. Margir vilja göng í stað brúa um viðkvæmustu svæðin en það hefur Vegagerðin slegið út af borðinu.







































