
Framleiða snjó í fyrsta sinn í borginni
Í Ártúnsbrekkunni hefur snjóbyssa fyllt skíðabrekkur af snjó og lífi. „Þetta er fyrsti veturinn sem við erum að prófa þetta innan borgarmarkanna,“ segir Heimir Stefánsson starfsmaður miðstöðvar um útivist og útinám hjá Reykjavíkurborg.






















































