Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stoðir langstærsti íslenski einkafjárfestirinn í Arion banka

Félag sem starfar enn á gömlu kenni­tölu FL Group, og var tekið yfir af hópi sem sam­anstendur meðal ann­ars af mörgum fyrr­ver­andi lyk­il­mönnum þess félags, er nú orðið stærsti einka­fjár­festir­inn í Arion banka með 4,22 pró­sent hlut.

Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem hét einu sinni FL Group, er stærsti einka­fjár­festir­inn í Arion banka eftir að félagið keypti stóran hluta þeirra tíu pró­senta sem Kaupþing ehf., stærsti hlut­hafi bank­ans, seldi í síð­ustu viku.

Stoðir eiga nú 4,22 pró­sent hlut í Arion banka. Félagið hefur lengi viljað eign­ast stóran hlut í bank­anum. Í aðdrag­anda þess að Arion banki var skráður á markað í fyrra var­haldið útboð þar sem Stoðir skráðu sig fyrir 100 millj­ónum hluta, sem hefði þýtt að það hefði átt um fimm pró­sent hlut.

Flestir þeirra inn­lendu aðila sem skráðu sig fyrir hlutum í útboð­inu voru hins vegar skertir umtals­vert og á end­anum fengu Stoðir ein­ungis að kaupa 0,6 pró­sent hlut í bank­anum. Í síð­ustu viku gat fjár­fest­inga­fé­lagið, sem er eitt það stærsta á Íslandi, svo bætt veru­lega við sig þegar Kaupþing ákvað að selja tæpan þriðj­ung af eign­ar­hlut sínum. Kaupþing er enn stærsti eig­andi Arion banka með 22,67 pró­sent hlut í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Kaupskil.

Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Íslands­banki, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, væru komin inn á hlut­haf­alista yfir stærstu eig­endur Arion banka. LSR á 1,1 pró­sent hlut í bank­anum og Kjarninn fékk það stað­fest að hann hefði keypt þann hlut af Kaup­þingi í vik­unni á undan. Miðað við gengi bréfa í Arion banka í byrjun síð­ustu viku hefur kaup­verðið verið rúm­lega 1,6 millj­arðar króna.

Íslands­banki var skráður með 2,84 pró­sent hlut í Arion banka á mánu­dag en sá hlutur hefur nú minnkað niður í 2,54 pró­sent. Tals­maður Íslands­banka vildi ekki upp­lýsa um hvort bank­inn hefði verið að kaupa fyrir eigin bók eða fyrir hönd við­skipta­vina þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það á mánu­dag.

Í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag er greint frá því að Sigurður Bollason, sem er líka fjórði stærsti hlut­hafi Kviku banka með 6,17 pró­sent eign­ar­hlut, og félög tengd honum eigi nú um tveggja pró­senta hlut í Arion banka. Hluti þeirrar eignar er í gegnum fram­virka samn­inga hjá Íslands­banka.

Í hinu lok­aða útboði á tíu pró­senta hlut í Arion banka sem fór fram í síð­ustu viku bætti trygg­inga­fé­lagið TM, sem er líka á meðal eig­enda Stoða, við sig hlut. Það gerði Vogun, félag að stærstum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar og fjöl­skyldu hans, sem seldu hlut sinn í HB Granda í fyrra, líka.

Félagið sem átti Glitni sem féll með látum

Stoð­ir, sem áður hét FL Group, fór með him­in­skautum fyrir banka­hrun sem eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag banka­bólunn­ar. Þegar Glitn­ir, stærsta eign FL Group, féll var ljóst að félagið myndi ekki lifa af. Það fór í greiðslu­stöðvun og síðar í gegnum nauða­samn­inga þar sem kröfu­hafar eign­uð­ust félag­ið. Stærstur þeirra var Glitn­ir, bank­inn sem félagið hafði átt stóran hlut í.

Síð­ustu ár hafa Stoðir hægt og rólega selt eignir sínar og greitt afrakst­ur­inn til kröfu­hafa. Vorið 2017 seldi svo GlitnirHoldco 40 pró­sent í félag­inu á meðan að tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., keyptu rúman 50 pró­senta hlut. Félögin tvö eru í eigu stórra hlut­hafa í TRygg­inga­mið­stöð­inni (TM) sem voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Í mars 2018 seldu Stoð­ir, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Ferskur Holding 1, tæpan níu pró­sent eign­ar­hlut sinn í hol­lenska drykkj­ar­vöru­fram­leið­and­anum Refresco, en yfir­tökutil­boðið var sam­þykkt af Refresco í októ­ber 2017. Sölu­verðið nam 144 millj­ónum evra, sem jafn­gilti um 18 millj­örðum íslenskra króna. Hlutur Stoða var met­inn á um 12,7 millj­arða króna um ára­mótin 2016/2017, sem þýðir að félagið hagn­að­ist um rúma fimm millj­arða á árinu 2017. Með hagn­aði árs­ins 2017 hækk­aði eigið fé félags­ins einnig um fimm millj­arða, en það stóð í 18,3 millj­örðum íslenskra króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir það ár. Stoðir hafa ekki birt árs­reikn­ing fyrir árið 2018.

For­maður stjórnar Stoða er Jón Sig­urðs­son, en með honum í stjórn sitja þeir Sig­ur­jón Páls­son og Örvar Kærne­sted. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins er Júl­íus Þor­finns­son.

Gamlir lykilmenn úr FL Group

S121 og S122 eru að mestu í eigu sex einka­hluta­­­fé­laga og eins skráðs félags, TM. Fé­lögin sex heita Helg­ar­fell ehf., Esju­­­­borg ehf., Einir ehf., GGH ehf., Strahan III Limited og M ehf. Nokkur þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í TM.

Esju­­­­borg er í 50 pró­­­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­­­borg. Það er skráð í 100 pró­­­­sent eigu Jóhanns Arn­­­­ars Þór­­­­ar­ins­­­­son­­­­ar, for­­­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­­­ur­inn í Esju­­­­borg er í eigu Riverside Capital SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­­­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­­­legri eigu Fortown Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted.

FL Group var eitt umsvifamesta fjárfestingafélag á Íslandi fyrir bankahrun. Það fór í greiðslustöðvun haustið 2008.
FL Group var eitt umsvifa­mesta fjár­fest­inga­fé­lag á Íslandi fyrir banka­hrun. Það fór í greiðslu­stöðvun haustið 2008.

Riverside Capital á líka 1,92 pró­­­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capital ehf. Örvar Kærne­sted situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­­­stöðv­­­­­­­ar­inn­­­­ar. Örvar var yfir starf­­­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og starf­aði þar áður hjá Kaup­­­­þingi í níu ár. Hann er nú umsvifa­­­­mik­ill fjár­­­­­­­fest­­­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­­­asta aðal­­­­fundi félags­­­­ins, sem fór vorið 2018.

Einar Örn Ólafs­­­­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­­­­stöðv­­­­­­­ar­inn­­­­ar. Hann á 2,89 pró­­­­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­­­­ráðum í Stoð­­­­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­­­­­­­banka á árum áður. Hann var meðal ann­­­­ars for­­­­stöð­u­­­­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­­­­­­­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­­­­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­­­­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­­­­anum vegna trún­­­­að­­­­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­­­­mik­ill fjár­­­­­­­fest­­­­ir og hefur stöðu grun­aðs manns í Skelj­ungs­mál­inu svo­kall­aða sem er til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara. Það snýst um meint umboðs­svik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­leg brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í TM, að und­an­­­­skildum líf­eyr­is­­­­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6,64 pró­­­­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með TM í fyrra.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fenger, Kristín Fenger Ver­­­­munds­dóttir og Ari Fenger. Björg er eig­in­­­­kona Jóns Sig­­­­urðs­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­­stjóra FL Group/­Stoða. Jón tók við sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Stoða á síð­­­­asta aðal­­­­fundi félags­­­­ins í maí í fyrra. Jón á líka hlut í Stoðum í eigin nafni í gegnum félagið Straum­nes Ráðgjöf ehf.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf. Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­­­­lenska félags­­­­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­­­­son­­­­ar, fyrr­ver­andi fram­­­­kvæmda­­­­stjóra lög­­­­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­­­­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Groupfyrir hrun og sat í stjórn félags­­­­ins.

Fimmta félagið sem á í félög­unum tveimur heitir M. ehf. Það er í eigu félags í Lúx­em­borg sem heitir Lucilin Conseil s.a.r.l.

Sjötta félagið í hópnum sem á umtals­verðan hlut heitir Strahan III Limited. Einn þeirra sem stýrir því félagi er Malcolm Walker, stofn­andi og eig­andi bresku versl­un­ar­keðj­unnar Iceland Foods.

Sátu í stjórn Refresco

Í S121 er Jón Sig­urðs­son stjórn­ar­for­maður. Með honum þar sitja Þor­steinn M. Jónsson, enn oft kenndur við Coke, Örvar Kærne­sted, Einar Örn Ólafsson, Markús Hörður Árnason og Magnús Ármann.

Þor­­­­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­­­­ins og tók við sem stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­­­­ráðum yfir bank­an­­­­um. Þá var Magnús Ármann hlut­hafi í FL Group.

Bæði Jón Sig­­­­urðs­­­­son og Þor­­­­steinn M. Jóns­­­­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár