„Valdaójafnvægi og yfirgangur“

„Þetta er orðið óheil­brigt sam­band. Þetta er valda­ó­jafn­vægi og yfir­gangur,“ segir Anna Björk Hjalta­dóttir, for­maður Gjálpar, félags atvinnu­upp­bygg­ingar við Þjórsá, um sam­band heima­manna í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi við Lands­virkjun.

Gjálp, félag um atvinnu­upp­bygg­ingu við Þjórsá, fagnar því að Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun í neðri hluta Þjórsár, verði færðar úr nýt­ing­ar­flokki yfir í bið­flokk, líkt og meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar hefur lagt til í meiri­hluta­á­liti nefnd­ar­innar á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar.

„En rök­stuðn­ing­ur­inn fyrir því á alveg jafn vel við Hvamms­virkjun. Þannig ég skil ekki af hverju Hvamms­virkjun er tekin út fyrir sviga, annað en það að hún er bara komin lengst í ferl­inu,“ segir Anna Björk Hjalta­dóttir, for­maður Gjálpar, í sam­tali við Kjarnann.

Hvamms­virkjun, sem hefur verið í nýt­ing­ar­flokki frá 2015, verður áfram í nýt­ing­ar­flokki sam­kvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra um þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar sem lögð var fram í febr­úar. Umhverfis- og sam­göngu­nefnd gerir ekki athuga­semd við það en í meiri­hluta­á­liti nefnd­ar­innar, sem birt var í síð­ustu viku, er hins vegar lagt til að færa Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk. „Auðvitað hefði ég viljað fá þetta allt í vernd­ar­flokk,“ segir Anna Björk.

Gjálp lýsa sér sem sam­fé­lags­sam­tökum sem vilja „auðga okkar fal­legu sveitir með atvinnu­tæki­færum tengdum Þjórsá“. Samtökin voru stofnuð árið 2016 og hefur Anna Björk verið for­maður frá upp­hafi. Hún ólst upp á bænum Fossnesi í Gnúp­verja­hreppi og ljóst er að Hvamms­virkjun mun hafa mikil áhrif á bæinn og nán­asta umhverfi hans, til að mynda mun fjög­urra þver­kíló­metra mann­gert stöðu­vatn mynd­ast, verði Hvamms­virkjun að veru­leika.

Samfélagsleg áhrif, atvinnuuppbygging og landið sjálft

„Ég er upp­alin með þetta fyrir aug­unum og útsýnið frá Fossnesi er stór­kost­legt. Það eru þessi sam­fé­lags­legu áhrif, áhrif á upp­bygg­ingu á atvinnu í sam­fé­lag­inu og svo landið sjálft sem varð til þess að ég fann mig knúna til þess að gera eitt­hvað.“

Anna Björk er búsett á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag en móðir hennar er bóndi í Fossnesi og tengslin við bæinn og sveit­ina eru enn náin. „Ég er mikið hjá henni, ég er með hest­ana mína hjá henni og ríð mikið út og hjálpa til við helstu stóru sveita­við­burð­ina, svo sem smala­mennsku.“ Þá er sonur Önnu Bjarkar á leik­skóla­aldri og veit hann fátt betra en að fara í sveit­ina til ömmu.

Hvammsvirkjun muni ekki leiða til atvinnuuppbyggingar

Atvinnu­upp­bygg­ing í tengslum við virkj­ana­fram­kvæmdir er Önnu Björk hug­leikin eftir að hún fylgd­ist með slíkri við fram­kvæmd Kára­hnjúka­virkj­unar en hún starf­aði fyrir Alcoa Fjarðaál um tíma og var búsett á Reyð­ar­firði í sjö ár, frá 2008 til 2015.

„Ég sá hvað upp­bygg­ingin þar á virkjun Kára­hnjúka­virkj­unar hafði góð áhrif á sam­fé­lagið fyrir austan þar sem ungt fólk var að flytja aftur í bæinn og upp­bygg­ingin var mikil.“

Anna Björk kom fyrst á Reyð­ar­fjörð árið 2003 og segir bæinn þá hafa verið deyj­andi sam­fé­lag. Upp­bygg­ingin hafi hins vegar verið óum­deil­an­leg með Kára­hnjúka­virkjun. Áhrifin sem Hvamms­virkjun mun hafa á sam­fé­lagið í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi eru þver­öfug að mati Önnu Bjarkar. „Það er ekki hægt að líkja þessu tvennu saman.“ Áhrifin eru þegar orðin grein­an­leg að hennar mati.

Neikvæð áhrif þegar orðin áþreifanleg

Hug­myndir um virkj­anir á þessu svæði eru ekki nýjar af nál­inni. Síður en svo. Athug­anir á hag­kvæmni virkj­ana í neð­an­verðri Þjórsá hófust árið 1999. Hvamms,- Holta- og Urriða­foss­virkjun voru þar á meðal og árið 2003 kom út skýrsla um mat á umhverf­is­á­hrifum þess­ara kosta.

Örlítið af hæsta hluta eyjunnar Hagaey mun standa upp úr fyrirhuguðu lóni, manngerðu stöðuvatni, sem mun myndast, verði Hvammsvirkjun að veruleika.
Örlítið af hæsta hluta eyj­unnar Hagaey mun standa upp úr fyr­ir­hug­uðu lóni, mann­gerðu stöðu­vatni, sem mun mynd­ast, verði Hvamms­virkjun að veru­leika.

Mikil and­staða var við áformin og segir Anna Björk að ákveðin stöðnun hafi átt sér stað í sam­fé­lag­inu og nei­kvæðra áhrifa strax farið að gæta. Virkj­ana­á­formin voru fljótt sett á ís og við tók vinna við áætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða, betur þekkt sem ramma­á­ætlun, þar sem virkj­ana­kostir eru flokk­aðir í orku­nýt­ingar-, bið- og vernd­ar­flokk. Árið 2013 fóru allar þrjár virkj­an­irnar í bið­flokk og sama ár var svokölluð Norð­linga­öldu­veita, sem reisa átti í nátt­úruperlunni Þjórs­ár­verum, sett í vernd­ar­flokk ram­m­á­ætl­unar.

And­stæð­ingar virkj­an­anna gátu andað léttar. Um stund.

Í byrjun sum­ars 2015 sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis að færa Hvamms­virkjun eina og sér í orku­nýt­ing­ar­flokk.

Umhverfis- og samgöngunefnd vill skoða betur sam­fé­lags­leg áhrif á nær­sam­fé­lagið

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem lögð var fram á Alþingi í febr­úar er lagt til að allar virkj­an­irnar þrjár verði í nýt­ing­ar­flokki. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, er fjórði umhverf­is­ráð­herr­ann á rúm­lega fimm árum sem leggur til­lög­una fram.

Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lögum meiri­hluta­á­lits umhverfis- og sam­göngu­nefndar á að færa Holts- og Urriða­foss­virkjun úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk. Í áliti nefnd­ar­innar segir meðal ann­ars að óhætt sé að segja að til­lögur um flokkun Holta­virkj­unar og Urriða­foss­virkj­unar í nýt­ing­ar­flokk hafa vakið upp reiði í nær­sam­fé­lag­in­u, enda sé um að ræða „stórar virkj­un­ar­hug­myndir í byggð“.

Meiri­hlut­inn telur ljóst að „hluti af sjálfs­mynd margra íbúa í sveit­inni er sam­býlið við Þjórsá og þær breyt­ingar sem virkj­un­ar­fram­kvæmdir hefðu á umhverfið þar eru í huga margra íbúa óásætt­an­leg­ar,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu. „Mætti því færa rök fyrir því að sú nið­ur­staða sem aðferða­fræðin leiðir af sér um flokkun virkj­un­ar­kosta í neðri hluta Þjórsár í nýt­ing­ar­flokk sam­rým­ist ekki þeim sam­fé­lags­legu við­horfum sem eru und­ir­liggj­andi í nær­sam­fé­lag­in­u.“

Vegna þessa telur meiri­hlut­inn nauð­syn­legt að leggja til þá breyt­ing­ar­til­lögu að Holta- og Urriða­foss­virkjun verði flokk­aðar í bið­flokk þar til umfjöllun um sam­fé­lags­leg áhrif á nær­sam­fé­lagið á grund­velli nýrrar nálg­unar í aðferða­fræði verði lok­ið. Mik­il­vægt sé að horfa á neðri hluta Þjórsár „sem eina heild“ og því er beint til ráð­herra og verk­efn­is­stjórnar að horft verði til „allra þriggja virkj­un­ar­kosta“ í neðri hluta Þjórsár við það mat.

Fólki í sveitinni haldið í heljargreipum

Anna Björk gerir sér­stak­lega athuga­semd við þetta mat meiri­hluta nefnd­ar­innar. „Þau segja að það beri að líta á neðri hluta Þjórsár sem eina heild en samt er það ekki gert.“ Með því að halda Hvamms­virkjun í nýt­ing­ar­flokki er í raun og veru, að mati Önnu Bjarkar, verið að halda fólki í sveit­inni í helj­ar­g­reipum og koma í veg fyrir fjár­fest­ingar til atvinnu­upp­bygg­ingu, til að mynda í ferða­þjón­ustu á svæðum í nágrenni virkj­un­ar­innar.

„Við erum búin að gera allt sem í okkar valdi stendur í þessu mats­ferli. Við höfum skilað inn mörgum umsögnum á mörgum, mörgum blað­síðum þar sem við listum upp í mjög mörgum liðum af hverju Hvamms­virkjun ætti ekki að vera,“ segir Anna Björk, sem er hóf­lega bjart­sýn á að áform um „umfjöllun um sam­fé­lags­leg áhrif á nær­sam­fé­lagið á grund­velli nýrrar nálg­unar í aðferða­fræði á sam­fé­lags­legum áhrifum“, líkt og lagt er til í meiri­hluta­á­lit­inu, muni hafa áhrif.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvað þarf til að stoppa þá. Ég velti fyrir mér hvaða áhrif það hefur að það eigi að rann­saka sam­fé­lags­á­hrif. Hvaða áhrif hefur það ef að nið­ur­staðan verði nei­kvæð áhrif. Halda þeir bara samt áfram?“

Fyrrverandi umhverfisráðherra hafnar því að verið sé að drekkja Þjórsárverum

Þingmenn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, meðal ann­ars vara­for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, lögðu fram breyt­ing­ar­til­lögu við breyt­ing­ar­til­lögu umhverfis- og sam­göngu­nefndar á ramma­á­ætlun, þar sem lagt er til að horfið verði frá því að færa fimm virkj­ana­kosti úr vernd­ar­flokki ramma­á­ætl­unar líkt og meiri­hluti nefnd­ar­innar vill.

I nefnd­ar­á­liti sem Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, und­ir­ritar segir að minni­hlut­inn styðji þá til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar að færa Holta­virkjun og Urriða­foss­virkjun úr orku­nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk, en telur að ef ekki verði gengið lengra muni lítið fara fyrir heild­stæðu end­ur­mati á öllum þremur virkj­un­ar­kostum í Neðri-Þjórsá. Í til­lög­unni er lagt til að allir þrír virkj­un­ar­kostir í Neðri-Þjórsá verði færðir úr orku­nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk.

Tillagan var felld á Alþingi á mið­viku­dag. Að því loknu var þriðji áfangi ram­m­á­ætl­unar sam­þykktur með 34 atkvæðum. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagð­ist eiga erfitt með að sitja undir því að verið sé að drekkja Þjórs­ár­verum, líkt og hann sagði stjórn­ar­andtöðu­þing­menn halda fram í umræðu um ramma­á­ætlun.

„Það sem að hér er verið að gera, það er ein­fald­lega verið að stækka bið­flokk­inn, það er verið að fresta ákvörðun, rétt eins og það er verið að fresta ákvörðun um að taka Skrokköldu og neðri hluta Þjórsár til skoð­unar eða til ákvörð­unar núna og ég verð hér að lokum að hafna því að það sé verið að drekkja Þjórs­ár­verum,“ sagði fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra.

Inntakslón á stærð við tvö Seltjarnarnes

Anna Björk segir að verið sé að draga úr áhrif­unum sem Hvamms­virkjun mun hafa með því að leggja áherslu á að um rennsl­is­virkjun verði að ræða. Miðl­un­ar­lón, þar sem vatni er safnað og notað eftir þörfum þegar rennsli minnkar, muni því ekki mynd­ast heldur inn­takslón. „Þetta er samt fjög­urra þver­kíló­metra inn­takslón,“ bendir hún á.

Inn­takslónið, Hagalón, verður í raun mann­gert stöðu­vatn og með til­komu þess myndi fjöl­breytt lands­lag við ána og bakka henn­ar breyt­ast.

„Þegar var byrjað að tala um virkj­anir í neðri hluta Þjórsár var alltaf talað um rennsl­is­virkj­anir. Þegar þú hugsar um rennsl­is­virkj­anir þá hugsar þú að það sé ekki lón. En það er helst lónið sem er að valda þessum nei­kvæðu áhrifum. Það er ekki útlitið á virkj­un­inni sjálfri,“ segir Anna Björk, sem hefur borið stærð lóns­ins saman við þekktar svæði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Útsýnið frá bænum Fossnesi þar sem Anna Björk er uppalin. Áin Þverá rennur út í Þjórsá og mun fyrirhugað lón ná upp að mynni gljúfursins sem er við hliðina á bænum þannig að áin og allt flatlendið í kringum hana færi á kaf.
Útsýnið frá bænum Fossnesi þar sem Anna Björk er upp­alin. Áin Þverá rennur út í Þjórsá og mun fyr­ir­hugað lón ná upp að mynni gljúf­urs­ins sem er við hlið­ina á bænum þannig að áin og allt flat­lendið í kringum hana færi á kaf.

„Sel­tjarn­ar­nesið er tveir fer­kíló­metrar. Ef þú myndir draga línu frá Suð­ur­göt­unni og taka allt sem er vestan við hana þá ertu komin með fjóra fer­kíló­metra. Þetta er ekk­ert smá. Það er verið að taka land af fólki.“

Hélt að Þjórsárverin væru komin í örugga höfn

Virkj­an­irnar þrjár eru ekki þær einu á Þjórs­ár­svæð­inu sem fjallað er um í ramma­á­ætlun. Kjalalda er virkj­un­ar­hug­mynd Lands­virkj­unar skammt sunnan Þjórs­ársvera. Verk­efna­stjórn ramma­á­ætl­unar vildi setja hana í vernd­ar­flokk en meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar leggur til að hún fari í bið­flokk.

„Maður hélt að Þjórs­ár­verin væru komin í örugga höfn. Fólk er slegið,“ segir Anna Björk um áform nefnd­ar­innar að taka Kjalöldu úr vernd­ar­flokki. „Ég hef ekki tekið beinan þátt í þessum slag, ég hef ákveðið að taka slag­inn um neðri hluta Þjórsár út frá sam­fé­lags- og atvinnu­upp­bygg­ingu,“ segir Anna Björk, sem ver fyrst og fremst frí­tím­anum í þessi bar­áttu­mál. „Og maður er að berj­ast á móti fólki sem er að þessu í vinn­unni með sér­fræð­inga á bak­við sig.“

Sambandið við Landsvirkjun orðið óheilbrigt

Anna Björk er samt sem áður kunnug starf­sem­inni sem hún er að berj­ast á móti en hún starf­aði hjá Lands­virkjun á sumrin sem ung­lingur, auk þess sem hún starf­aði í mötu­neyti orku­fyr­ir­tæk­is­ins með­fram námi. „Ég þekki fyr­ir­tækið og Lands­virkjun hefur gert rosa­lega margt gott fyrir sveit­ina en þetta er orð­inn svo­lít­ill yfir­gangur, þetta er orðið óheil­brigt sam­band. Þetta er valda­ó­jafn­vægi og yfir­gangur.“

Anna Björk ætlar að halda bar­átt­unni áfram, ekki síst nú þegar útlit er fyrir að Hvamms­virkjun sé á meðal næstu virkj­ana­á­forma sem Lands­virkjun ætlar að ráð­ast í

„Það er að flagga þessum málum og fræða fólk, fá fólk á stað­inn og sýna þeim hvað er að fara undir,“ segir hún, aðspurð um verk­efnin fram undan.

„Þetta er ekk­ert smá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvammsvirkjun

Mest lesið undanfarið ár