Rennsli um foss­inn Dynk í ÞJórsá myndi skerð­ast veru­lega með Kjalöldu­veitu. Auk þess yrði hann fyrst og fremst bergvatns­foss þar sem jök­ul­vatni yrði veitt annað. Mynd: Árni Tryggvason

Rammaáætlun samþykkt: Virkjanir í Héraðsvötnum og við Þjórsárver aftur á dagskrá

Atkvæða­greiðsla um ramma­á­ætlun á Alþingi kom ekki stór­kost­lega á óvart. Kosið var nokkurn veg­inn eftir flokkslínum ef undan er skil­inn Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna.

Tillaga um að færa Hvamms­virkjun úr nýt­ingu í bið­flokk: Felld (Já: 13, nei: 37).

Tillaga um að færa Hval­ár­virkjun úr nýt­ing­ar­flokki í bið: Felld (Já: 17, nei: 32).

Tillaga um að halda virkj­unum í Hér­aðs­vötnum og Kjalöldu­veitu í vernd­ar­flokki: Felld (Já: 21, nei: 33).

Breyt­ing­ar­til­laga meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar: Samþykkt (Já: 33, nei: 13).

Breytt þings­á­lykt­un­ar­til­laga að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar í heild: Samþykkt (Já: 34, nei: 7, greiddu ekki atkvæði: 15).

Þá er hún loks afgreidd á Alþingi, til­laga að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar um vernd og nýt­ingu land­svæða. Í tæp sex ár hefur hún þvælst á milli umhverf­is­ráð­herra, alls fjög­urra tals­ins, til­lagan sem upp­runa­lega var alfarið byggð á til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar sem lauk störfum haustið 2016.

Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið.

Það er þó ekki lengur stór­iðjan sem kallar á fleiri virkj­anir líkt og var fyrir nokkrum árum og ára­tugum heldur orku­skiptin svoköll­uðu sem eru áherslu­at­riði íslenskra stjórn­valda í við­brögðum við lofts­lags­vánni. Hvort að virkja þurfi sér­stak­lega vegna þeirra er hins vegar umdeilt.

Sú ramma­á­ætlun sem sam­þykkt var á Alþingi í dag er tals­vert frá­brugðin upp­runanum. Í takti við til­lögur meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar eru þrír virkj­un­ar­kostir færðir úr nýt­ing­ar­flokki til­lög­unnar í bið­flokk og fimm úr vernd­ar­flokki í bið. Einn kostur, vind­orku­verið Búr­fellslundur, er færður úr bið í nýt­ing­ar­flokk. Þá hafa verið felldar út úr áætl­un­inni tæp­lega þrjá­tíu virkj­ana­kostir sem Orku­stofnun lagði fram á sínum tíma en eng­inn ákveð­inn virkj­un­ar­að­ili hafði sóst eftir að nýta.

Ramma­á­ætlun er stjórn­tæki, byggt á lögum um vernd og nýt­ingu land­svæða, þar sem verk­efn­is­stjórn hvers áfanga og fag­hópar hans, skip­aðir sér­fræð­ingum úr ýmsum áttum, meta fram­lagða virkj­un­ar­kosti og flokka þá í þrennt. Í orku­nýt­ing­ar­flokk fara þeir kostir sem talið er ásætt­an­legt að verði að veru­leika. Í vernd­ar­flokk fara þeir kostir og þau land­svæði sem þeir til­heyra sem talið er að beri að vernda fyrir orku­vinnslu. Í bið­flokk­inn fara svo þeir kostir sem upp­lýs­ingar og gögn um skortir áður en ákveðið verður í hvorn hinna tveggja flokk­anna þeir skip­ast.

Með breyt­ing­unum sem gerðar voru enda sextán virkj­ana­kostir í nýt­ing­ar­flokki, sautján í bið­flokki og níu í vernd­ar­flokki.

Atkvæðagreiðslan um rammaáætlun með orðum ráðherra og þingmanna

„Þing­mað­ur­inn segir nei.“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, svarar í nafnakalli í afgreiðslu á tillögu um að halda Héraðsvötnum og Kjalölduveitu í verndarflokki.

„Já ... Nei!“

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hann var að greiða atkvæði um sömu tillögu og Katrín.

„Þingmenn sem greiða atkvæði með því að að taka Hér­aðs­vötn og Kjalöldu­veitu úr vernd munu ekki koma vel út í ljósi sög­unnar.“

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar.

„Ég legg til að þing­menn meiri­hlut­ans fletti orð­inu vernd upp í orða­bók. Ég kýs með nátt­úr­unni og ég kýs með nátt­úr­unni á Vest­fjörðum og þeirri feg­urð sem er á Ströndum.“

Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata.

„Sá partur sem fær kannski mestu vernd­ina í gegnum rammann er kannski bara rík­is­stjórnin sjálf.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.

„Það er engum blöðum um það að fletta að í Hér­aðs­vötnum er um mikil nátt­úru­verð­mæti að ræða. Þau nátt­úru­verð­mæti eru ekk­ert að fara. Þetta er bið­leikur í nátt­úru­vernd.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og fyrrverandi umhverfisráðherra.

„Annað hvort er fólk, virð­ist vera uppi á hálendi að gróð­ur­setja eða uppi á hálendi með gröfu. Eins og það sé aldrei neinn milli­vegur þar á milli. Ef menn ætla að spila ein­hverja bið­leiki þarf að gera það með rökum. Rök skortir. Þess vegna leika menn ekki bið­leiki.“

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.

„Nei, við þurfum ekki að leika þann bið­leik. Við getum staðið í lapp­irnar með nátt­úru Íslands“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

„Það má vera að Kaup­fé­lag Skag­firð­inga sé í sér­stökum vernd­ar­flokki hjá þess­ari rík­is­stjórn en ég tel að þessar nátt­úruperlur megi vera það líka.“

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

„Meiri­hluti stjórn­ar­flokk­anna vil láta athuga hvort ekki sé í lagi að láta þurrka upp foss­inn Dynk.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, um þá ákvörðun að færa Kjalölduveitu í biðflokk.

„Hér erum við með skóla­bók­ar­dæmi um pólun sam­fé­lags­ins, þessi atkvæða­greiðsla sem hér fer fram ætti að vera að kennd í félags­fræð­inni uppi í háskóla. Þeir sem eru ekki allir alfarið með kostum til frið­unar, þeir eru gjör­nýt­ing­ar­sinnar.“

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

„Við Vinstri græn gætum að [nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­miðum], það er eitt af okkar brýn­asta erindi í stjórn­málum, hér eftir sem hingað til.“

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra.

„Með stærri bið­flokki erum við ein­ungis að leggja til að hlutir séu skoð­aðir betur.“

Orri Páll Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna.

„Að lokum vil ég spyrja: Hvar er hæst­virtur umhverf­is­ráð­herra?“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar er atkvæðagreiðsla var að hefjast.

„Hæst­virtur umhverf­is­ráð­herra er með fjar­vist í dag.“

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis.

„Mín kyn­slóð eru nátt­úru­sóðar. Ég ætla að kjósa með mínum barna­börnum. Ég tel að í þess­ari ramma­á­ætlun séu ákveðin atriði sem er alls ekki hægt að styðja.“

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins.

„Með Kjalöldu­veitu er látið undan dylgjum Lands­virkj­unar. [...] Það er hlustað á vælið í Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga því það vill fá sína virkjun.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata. Kaupfélag Skagfirðinga á mikinn meirihluta í Héraðsvötnum ehf. sem standa að virkjanahugmyndum á svæðinu.

„Ég hélt að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hefði verið stofnuð til að end­ur­spegla breidd­ina í sam­fé­lag­inu – alla leið frá vinstri til hægri. Alla leið frá vernd yfir í þaul­nýt­ingu. Í dag kemur í ljós að það er ekki erindi þess­arar rík­is­stjórnar. Hún end­ur­speglar sinn innri berg­máls­helli. Og þar heyr­ast köllin úr Skaga­firð­inum hæst, köllin frá þeim sem vilja færa auð­mönnum og stór­fyr­ir­tækjum nátt­úru­ger­semarnar okkar á silf­ur­fati.“

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

„Ég segi: Til ham­ingju Ísland.“

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, er rammaáætlun hafði verið samþykkt.

„Fyrir er tekið annað dag­skrár­málið, pakka­ferðir og sam­tengd ferða­til­högun.“

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, er atkvæðagreiðslu vegna rammaáætlunar lauk. Yfir fjörutíu mál voru á dagskrá þingsins á síðasta starfsdegi þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár