„Þá sagði Aðalsteinn við mig að alltaf þegar gæfist tækifæri til að borga sjávarútvegsráðherra þá ætti ég að borga sjávarútvegsráðherra, hann orðaði þetta einhvern veginn svona.“
Þetta sagði Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja, sem steig fram í gærkvöldi og lýsti vafasömum viðskiptaháttum fyrirtækisins í Namibíu á þeim tíma sem hann starfaði þar. Maðurinn sem um ræðir, er Aðalsteinn Helgason, sem var á þeim tíma framkvæmdastjóri Kötlu Seafood, dótturfélags Samherja. Hann hafnar frásögn Jóhannesar og segir að þetta séu lygar án þess að gefa frekari skýringar á því.
Greiddu hundruð milljóna í mútur
Frá því í ársbyrjun 2012 greiddi Samherji hundruð milljóna króna í mútur til stjórnmálamanna og tengdra aðila í Namibíu til að fá kvóta sem lagði grunn að hagnaði félagsins undanfarin ár. Hagnaðurinn rann síðan í gegnum net skattaskjóla. Þetta kemur fram í gögnum sem Stundin, Kveikur og Al Jazeera hafa unnið upp úr í samstarfi við Wikileaks. Jóhannes Stefánsson, steig einnig fram í gærkvöldi og í samtali við bæði Stundina og Kveik lýsti hann aðferðum Samherja.
Í máli hans kom fram að árið 2012, þegar Samherji var að hefja veiðar í Namibíu, hefði tengdasonur sjávarútvegsráðherrans, Fitty Tamson Hatuikulipi, farið fram á greiðslu til ráðherrans. Fitty var einn þremenninga sem þáði mútugreiðslur frá Samherja fyrir að vinna að hag fyrirtækisins í Namibíu og tryggja ódýran hestamakrílkvóta við strendur Namibíu. En nú átti að greiða sjávarútvegsráðherranum, Bernhard Esau.
„Ég man hvað Aðalsteinn var ákveðinn í þessu“
Þegar farið var fram á þessar greiðslur segist Jóhannes hafa hringt í Aðalstein og spurt hvað hann ætti að gera.
„Ég hringdi í Aðalstein og sagði honum að það hafi komið ósk um að borga sjávarútvegsráðherranum 500 þúsund Namibíudollara,“ eða tæplega tíu milljónir íslenskra króna. „Þá sagði Aðalsteinn við mig að alltaf þegar gæfist tækifæri til að borga sjávarútvegsráðherra þá ætti ég að borga sjávarútvegsráðherra, hann orðaði þetta einhvern veginn svona. Ég tók þetta út í peningum og lét Tamson hafa þetta. Tamson var milliliður í þessu. Ég gerði þetta tvisvar,“ segir Jóhannes sem segir að samtals hafi verið um að ræða 1 milljóna Namibíudollara eða ríflega 18 milljónir króna. „Þetta situr í mér, af því ég man hvað Aðalsteinn var ákveðinn í þessu. Það var eins og hann væri ekki að gera þetta í fyrsta skiptið. Ég labba bara inn í hringiðu efnahagsbrota og spillingar. Ég fékk orderur frá þeim og gerði bara mitt besta í því. Miðað við hvernig þeir greiddu mútur þá var eins og þeir væru ekki að gera þetta í fyrsta skipti.“
Neitar að svara fyrir þetta
Í samtali við Stundina neitar Aðalsteinn Helgason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kötlu Seafood á Kanaríeyjum sem í upphafi var einnig framkvæmdastjóri Namibíuútgerðarinnar, því að hafa átt í þessum orðaskiptum við Jóhannes Stefánsson. Aðalsteinn sat meðal annars fund á búgarði sjávarútvegsráðherra Namibíu, Bernhards Esau, árið 2012 með Þorsteini Má Baldvinssyni meðal annarra. Hann var því innvinklaður inn í stofnun útgerðarinnar í Namibíu og fyrstu skrefin sem Samherji tók í landinu enda leit Jóhannes Stefánsson á hann sem sinn næsta yfirmann.
Í símasamtali við Stundina, sem átti sér stað þann 31. október, segir Aðalsteinn að þessi orð Jóhannesar séu „lygar“, en útskýrir það ekki nánar. Samtalið er birt hér í heild sinni:
Blaðamaður: Aðalsteinn? Ingi heiti ég Vilhjálmsson og er blaðamaður á Stundinni.
Aðalsteinn: Sæll.
Blaðamaður: Blessaður. Ég er að hringja í þig af því mig langar til að spyrja þig aðeins um starfsemi Samherja í Namibíu. Og ég er að hringja fyrir…
Aðalsteinn: Ég veit ekkert um hana.
Blaðamaður: Veist þú ekkert um hana?
Aðalsteinn: Ég er á áttræðisaldri og er hættur að vinna þarna. Ég kom ekki nálægt því eftir 2012, fyrir sex árum síðan eða eitthvað.
Blaðamaður: Mig langar að spyrja þig um vitneskju þína um þessa starfsemi á þeim tíma sem þú varst að vinna þarna.
Aðalsteinn: Nei, ég hef ekki áhuga á að svara því.
Blaðamaður: Ha?
Aðalsteinn: Ég hef engan áhuga á að tala um það.
Blaðamaður: Af hverju ekki?
Aðalsteinn: Ég er bara gamall maður og vil bara fá að vera í friði.
Blaðamaður: Þú ert bara tiltölulega nýhættur að vinna er það ekki?
Aðalsteinn: Nei, ég er löngu hættur að vinna.
Blaðamaður: Ertu ekki sjötugur?
Aðalsteinn: Jú, jú ég hætti að vinna 67 ára.
Blaðamaður: En sko, ég þarf eiginlega að fá að ræða við þig um þessi mál af því að þú…
Aðalsteinn: Ingi, vandamálið er að ég þarf ekki að ræða við þig. Hvað gerum við þá?
Blaðamaður: Eh… það er ákveðið vandamál þar sem þú kemur mikið fram í þeim gögnum sem við höfum um þessi viðskipti…
Aðalsteinn: Ég veit alveg að Jóhannes [Stefánsson] er að tala við þig og það verður bara að hafa það. Þú verður bara að hafa þinn sögumann og treysta honum.
Blaðamaður: Við erum náttúrulega með fullt af gögnum líka.
Aðalsteinn: Já, já, já.
Blaðamaður: Ha?
Aðalsteinn: Já, já, já.
Blaðamaður: Og hann vísar meðal annars í samskipti sem hann átti við þig…
Aðalsteinn: Já, já, já.
Blaðamaður: … þar sem að þú gafst honum grænt ljós á að greiða sjávarútvegsráðherranum í Namibíu fjármuni.
Aðalsteinn: Það eru lygar.
Blaðamaður: Eru það lygar?
Aðalsteinn: Og vertu sæll.
Aðalsteinn skellti því næst á blaðamann og lauk þannig samtalinu.
Hann hefur ekki brugðist við umfjöllun Stundarinnar, Kveiks og Al Jazeera með neinum hætti, en umfjöllunin byggir sem fyrr segir á gögnum frá Wikileaks.
Bernhard Esau sagði af sér í dag vegna málsins, líkt og dómsmálaráðherra Namibíu, Sacky Shangala, eftir að upp komst að hann hafði þegið mútugreiðslur frá Samherja. Héraðssaksóknari vinnur að málinu með namibískum yfirvöldum, sem hafa einnig komið gögnum til skattrannsóknarstjóra hér á landi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir