Átta flokkar næðu inn í borgarstjórn samkvæmt nýjustu kosningaspánni.
Átta flokkar næðu inn í borg­ar­stjórn sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Mynd: Samsett

Sjálfstæðisflokkurinn í frjálsu falli og Samfylkingin mælist stærst í Reykjavík

Sitjandi meiri­hluti í Reykja­vík bætir við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og gæti setið áfram kjósi hann svo. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stefnir í að verða sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og tekur nýtt fylgi sitt að mestu frá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur áfram að dala í fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Fylgi hans mælist nú 21,9 pró­sent, sem er 3,1 pró­sentu­stigi minna en það mæld­ist fyrir tveimur vikum og 8,9 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum vorið 2018, síð­ast þegar kosið var til borg­ar­stjórnar. Frá því að síð­asta kosn­inga­spá var keyrð hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, líkt og aðrir flokkar, kynnt stefnu­mál sín í borg­inni fyrir kom­andi kosn­ingar, sem fara fram eftir rúmar tvær vikur, eða laug­ar­dag­inn 14. maí.

Fylgis­tap Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist gagn­ast Fram­sókn­ar­flokknum mest, en hann mælist nú með 12,6 pró­sent fylgi. Það er aðeins minna en hann mæld­ist með í síð­ustu kosn­inga­spá en marg­falt það sem flokk­ur­inn fékk 2018, hann hlaut ein­ungis 1.870 atkvæði og 3,2 pró­sent atkvæða.

Í nýj­ustu könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið voru þátt­tak­endur spurðir hvaða flokk þeir kusu 2018 og þar kom í ljós að aukið fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins kemur einkum frá fyrr­ver­andi kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Núver­andi meiri­hluti í Reykja­vík, sem sam­anstendur af Sam­fylk­ing­unni, Pírötum, Viðreisn og Vinstri grænum, bætir við sig milli kosn­inga­spáa. Alls segj­ast 51 pró­sent kjós­enda í borg­inni ætla að kjósa ein­hvern þeirra flokka nú. Það er tæp­lega tveimur pró­sentu­stigum fleiri en sögð­ust styðja þá í kosn­inga­spánni sem birt var um miðjan apr­íl­mánuð og 4,6 pró­sentu­stigum fleiri en kusu þá í kosn­ing­unum 2018.

Sam­fylk­ingin mælist nú stærsti flokk­ur­inn í borg­inni sam­kvæmt kosn­inga­spánni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er stærstur í borg­ar­stjórn eins og er, hefur verið í því sæti síð­ustu mán­uði. Alls segj­ast 23,5 pró­sent kjós­enda að þeir ætli að kjósa flokk Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra. Það er nán­ast sama hlut­fall og í síð­ustu spá en 2,4 pró­sentu­stigum færri en kusu Sam­fylk­ing­una 2018.

Píratar bæta mest við sig af meiri­hluta­flokk­unum. Þeir njóta nú stuðn­ings 14,6 pró­sent kjós­enda sem er 1,8 pró­sentu­stigi fleiri en í síð­ustu kosn­inga­spá og næstum tvisvar sinnum fleiri en kusu flokk­inn í síð­ustu kosn­ingum, þegar hann fékk 7,7 pró­sent atkvæða.

Stöð­ug­leiki er í fylgi Við­reisnar, sem mælist með 6,7 pró­sent fylgi. Það er 1,5 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk síð­ast þegar kosið var. Vinstri græn, sem biðu afhroð 2018 og fengu ein­ungis 4,6 pró­sent atkvæða, mæl­ast nú með 6,2 pró­sent fylgi.

Sam­an­dregið tapa því Sam­fylk­ing og Viðreisn lít­il­lega frá síð­ustu kosn­ingum, Píratar bæta veru­lega við sig og Vinstri græn hress­ast aðeins.

Sósíalistaflokkurinn stærri en Viðreisn

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist nú með meira fylgi í kosn­inga­spánni en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Alls segj­ast 6,8 pró­sent kjós­enda ætla að setja X við J en flokk­ur­inn fékk 6,4 pró­sent atkvæða fyrir fjórum árum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist nú stærri en bæði Viðreisn og Vinstri græn og yrði fimmti stærsti flokk­ur­inn í borg­ar­stjórn ef staðan í kosn­inga­spánni nú yrði nið­ur­staða kosn­ing­anna eftir rúmar tvær vikur.

Flokkur fólks­ins bætir líka við sig frá síð­ustu kosn­ingum og mælist nú með 5,9 pró­sent fylgi, en fékk 4,3 pró­sent árið 2018. Hann bætir við sig pró­sentu­stigi milli spáa.

Mið­flokk­ur­inn, sem hefur skipt um odd­vita, er sá flokkur fyrir utan Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem tapað hefur mestu fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn fékk 6,1 pró­sent atkvæða síð­ast þegar kosið var sem skil­aði þáver­andi odd­vita, Vigdísi Hauks­dóttur, örugg­lega inn í borg­ar­stjórn. Ómari Má Jónssyni, sem tekið hefur við sem odd­viti, virð­ist ekki vera að takast að hressa upp á ásýnd Mið­flokks­ins, að minnsta kosti enn sem komið er, en fylgið mælist 1,8 pró­sent og hefur ekki kom­ist yfir tvö pró­sent síðan um miðjan mars.

Ómar Már Jónsson, fyrir miðju, leiðir Miðflokkinn í Reykjavík. Mynd: Miðflokkurinn aðsend
Ómar Már Jónsson, fyrir miðju, leiðir Mið­flokk­inn í Reykja­vík. Mynd: Mið­flokk­ur­inn aðsend

Önnur fram­boð sem skil­uðu inn gildum fram­boðs­listum, Ábyrg fram­tíð og Reykja­vík – besta borgin, mæl­ast ekki með fylgi.

Tveir flokkar fá meirihluta borgarfulltrúa

Ef fram fer sem horfir munu Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokkur fá sex borg­ar­full­trúa hvor. Sjötti maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er hins vegar síð­asti maður inn eins og stendur.

Það þýðir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar tveimur milli kosn­inga en Sam­fylk­ingin einum. Flokk­arnir gætu því tækni­lega myndað tveggja flokka meiri­hluta, en engar praktískar líkur eru á því þar sem þeir stilla sér upp sem póli­tískum and­stæðum í höf­uð­borg­inni.

Píratar myndu fá fjóra borg­ar­full­trúa og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn að óbreyttu þrjá. Viðreisn, Vinstri græn, Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins næðu inn einum hver. Bæðir Sós­í­alistar og Viðreisn eru hárs­breidd frá því að fella sjötta mann Sjálf­stæð­is­flokks og ná inn öðrum manni sínum.

Sitjandi meiri­hluti fær tólf borg­ar­full­trúa kjörna sam­kvæmt kosn­inga­spánni líkt og hann hefur nú og gæti því haldið sam­starfi sínu áfram ef þetta yrðu nið­ur­stöður kosn­inga. Þau þrjú sæti sem fær­ast til í minni­hlut­anum og á meðal flokka utan borg­ar­stjórnar rað­ast þannig að þau fara öll til Fram­sóknar.

Líkurnar á því að núver­andi meiri­hluti haldi mæl­ast nú 61 pró­sent og hafa auk­ist milli spáa. Ef Sam­fylk­ingin, Píratar og Vinstri græn vildu skipta Viðreisn út fyrir hefð­bundn­ari félags­hyggju­flokk í Framsókn eru 91 pró­sent líkur á að sú blanda fái meiri­hluta. Það væri líka hægt að setja Viðreisn til hliðar fyrir Sós­í­alista­flokk­inn fyrir meiri vinstrislag­síðu, en 62 pró­sent líkur eru á að slíkur meiri­hluti náist. Hins vegar er nokkuð langt í land að Sam­fylk­ingin, Píratar og Vinstri græn nái þriggja flokka meiri­hluta. Líkurnar á því eru 25 pró­sent.

Vænt­ingar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa staðið til þess að hægt verði að mynda meiri­hluta án Sam­fylk­ingar, Pírata og Vinstri grænna. Líkurnar á slíkum meiri­hlutum eru ekki góðar sem stendur. Einungis tíu pró­sent líkur eru á að hægt verði að mynda meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og Við­reisnar eða fjög­urra flokka meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar, Flokks fólks­ins og Mið­flokks. Líkurnar batna ef Viðreisn er skipt inn fyrir Miðflokk í fjög­urra flokka lausn­inni en eru samt ein­ungis 32 pró­sent sem stendur.

Lík­urnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Kann­anir í nýj­ustu kosn­inga­spá fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 14. maí:

  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 22. – 29. mars (15,7 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 14. mars. – 10. apríl (28,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósents 13. - 26. apríl (55,9 pró­sent)

Hvað er kosn­­­inga­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­ar­­legt magn af upp­­lýs­ing­­um. Þessar upp­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­leg­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­lifir stjórn­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­ast svo við að túlka nið­­ur­­stöð­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­anir og allar mög­u­­legar túlk­­anir á nið­­ur­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­ari? Hverri skal treysta bet­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­andi hefur ekki for­­sendur til að meta áreið­an­­leika hverrar könn­un­­ar.

Þar kemur kosn­­inga­­spáin til sög­unn­­ar.

Kosn­­­­inga­­­­spálíkan Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­lýs­ing­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­inga. Nið­­ur­­stöður spálík­­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­­anum reglu­­lega í aðdrag­anda kosn­­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár