Lág verðbólga einungis tryggð með einhverskonar „stéttasátt“

Nefnd um end­ur­skoðun pen­inga­stefnu Íslands gengur út frá því að krónan verði áfram gjald­mið­ill íslensku þjóð­ar­innar, leggst gegn mynt­ráði, leggur til víð­tækar breyt­ingar á hlut­verki Seðla­bank­ans og vill afnema bindi­skyldu á mögu­lega vaxta­muna­við­skipti.

Ísland á ekki að taka upp mynt­ráð, ekki að reka pen­inga­stefnu með stuðn­ingi hafta þótt að fyrir liggi að íslenska krónan verði gjald­mið­ill þjóð­ar­innar í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands á að und­an­skilja hús­næð­is­verð og fjár­mála­stöð­ug­leiki á að hafa for­gang á verð­stöð­ug­leika ef aðstæður koma upp að ógn skap­ist gegn hinum fyrr­nefnda. Þá eiga aðstoð­ar­seðla­banka­stjórar að vera tveir í stað eins og á annar að vera með áherslu á fjár­mála­stöð­ug­leika en hinn með áherslu á hefð­bundna pen­inga­stefnu. Auka þarf ábyrgð Seðla­bank­ans þannig að hann beri einn ábyrgð á þjóð­hags­varúð og enda­varúð í stað þess að ábyrgð­inni sé skipt milli Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits, eins og nú er.

Þetta eru helstu til­lögur sem nefnd um ramma pen­inga­stefnu, einnig þekkt sem starfs­hópur um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar, leggur til að verði inn­leiddar hér­lendis. Í nefnd­inni, sem skipuð var í mars í fyrra og skil­aði skýrslu sinni í dag, sátu hag­fræð­ing­arnir Ásgeir Jónsson, sem var for­maður hennar, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Illugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Til að nokkur pen­inga­stefna gangi upp hér­lendis þurfi hins vegar að stöðva hið svo­kall­aða höfr­unga­hlaup, þar sem nafn­laun hækka langt umfram fram­leiðni, að mati nefnd­ar­innar Nafn­launa­hækk­anir síð­ustu fimm ára hafi verið átta pró­sent á ári en mætti ekki vera meiri en 4-4,5 pró­sent til að jafn­vægi sé gagn­vart verð­bólgu­mark­miði (2,5 pró­sent) og fram­leiðni­vexti (1-2 pró­sent). „Lág verð­bólga á Íslandi verður aðeins tryggð til lang­frama með ein­hvers konar stétta­sátt um launa­á­kvarð­anir – þar sem stöð­ug­leiki á vinnu­mark­aði er und­ir­staða verð­stöð­ug­leika,“ segir í skýrsl­unni.

Krónan áfram gjaldmiðillinn

End­ur­skoðun nefnd­ar­innar á pen­inga­stefn­unni gekk út frá þeirri for­sendu að íslenska krónan verði gjald­mið­ill Íslands í nán­ustu fram­tíð og að fjár­magns­hreyf­ingar til og frá land­inu yrði eins frjálsar og kostur væri.

Í skýrslu nefnd­ar­innar segir: „Ef gengið er út frá þeirri for­sendu að krónan verði áfram gjald­mið­ill Íslend­inga í nán­ustu fram­tíð hefur þjóðin í raun aðeins tvo kosti:

  1. Að halda áfram með núver­andi fyr­ir­komu­lag sem felur í sér að fylgja sjálf­stæðri pen­inga­stefnu undir merkjum verð­bólgu­mark­miðs.
  2. Að hætta að reka sjálf­stæða pen­inga­stefnu og festa gengi krón­unnar var­an­lega niður með mynt­ráði sem felur í sér að öll inn­lend seðla­út­gáfa er tryggð með erlendum gjald­eyri.“

Nefndin segir að á síð­ustu fjórum til fimm árum hafi náðst mik­ill árangur við að fram­fylgja verð­bólgu­mark­miðum hér­lendis og að sú stefna hafi skilað íslenskum almenn­ingi „gríð­ar­legum ábata“ með mik­illi aukn­ingu kaup­máttar, sam­hliða því að almennt vaxt­ar­stig hafi lækkað. Nefndin leggur mikla áherslu á það í skýrslu sinni að þessum árangri verði fylgt eftir.

Telja myntráð ekki góða hugmynd

Upptaka mynt­ráð felur, að mati nefnd­ar­innar, í sér var­an­lega geng­is­fest­ingu og hafi þannig sömu kosti og galla og aðild að mynt­banda­lagi. Hins vegar sé einn meg­in­munur til staðar: „Við inn­göngu Íslands í mynt­banda­lag Evrópu myndi Seðla­banki Íslands áfram starfa sem útibú frá hinum evr­ópska seðla­banka. Sem slíkt útibú gæti hann ekki lengur ákvarðað sér­staka pen­inga­stefnu fyrir Ísland en gæti áfram þjónað sem lán­veit­andi til þrauta­vara fyrir íslenskt fjár­mála­kerfi. Í mynt­ráði getur Seðla­bank­inn ekki sinnt þessu hlut­verki sam­hliða því að tryggja fjár­mála­stöð­ug­leika.

Það hefur lengi verið við­ur­kennd stað­reynd að banka­kerfi án lán­veit­anda til þrauta­vara eru í grund­vall­ar­at­riðum óstöðug og geta fallið saman í áhlaupi. Aðlög­un­ar­ferli mynt­ráðs krefst þess að vextir þró­ist á frjálsum mark­aði eftir fram­boði og eft­ir­spurn eftir lausafé. Það hlýtur að setja gríð­ar­legan þrýst­ing á fjár­mála­kerfið sem verður að geta þolað lausa­fjár­þurrð og vaxta­toppa án þess að tapa trú­verð­ug­leika sínum inn­an­lands sem utan. Að mati starfs­hóps­ins er það eitt og sér gríð­ar­lega erfitt að tryggja efna­hags­legan stöð­ug­leika undir mynt­ráði sem getur aðeins gerst með miklum kerf­is­breyt­ingum hér inn­an­lands, svo sem á vinnu­mark­aði.“

Jafn­framt er það mat starfs­hóps­ins að upp­taka mynt­ráðs skapi óásætt­an­lega áhættu fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika þar sem íslenskar fjár­mála­stofn­anir standi eftir án lán­veit­anda til þrauta­vara. Af þessum ástæðum telur starfs­hóp­ur­inn sig ekki geta mælt með þeim kosti fyrir Ísland að taka upp mynt­ráð við núver­andi aðstæður.

Það sé hægt ef við förum ein­fald­lega eftir leik­regl­unum sem settar eru. Eða eins og segir í skýrslu nefnd­ar­innar: „Sú trú að Íslend­ingar geti staðið jafn­fætis öðrum þjóðum – ef þeir aðeins taka leik­inn nógu alvar­lega – ætti ekki að vera bundin við íþrótta­kapp­leiki. Íslend­ingar ættu að geta búið við trú­verð­uga efna­hags­stefnu líkt og þekk­ist ann­ars staðar á Norð­ur­löndum – ef þeir aðeins fara eftir leik­regl­unum. Það er því í þess­ari trú að starfs­hópur um end­ur­skoðun pen­inga­stefn­unnar leggur fram til­lögur til þess að end­ur­bæta núver­andi stefnu.“

Vilja fjölga aðstoðarseðlabankastjórum

Alls eru til­lög­urnar sem nefndin leggur til, og eiga að end­ur­bæta pen­inga­stefn­una, ell­efu tals­ins. Þrjár þeirra snúa að umgjörð var­úð­ar­tækja og að tryggja aukna sam­hæf­ingu milli fjár­mála­stöð­ug­leika og pen­inga­stefn­unnar. Sú fyrsta er að Seðla­banki Íslands skuli vera einn ábyrgð­ar­að­ili fyrir þjóð­hags­varúð og eind­ar­varúð, og hafa yfir­um­sjón með grein­ingu, ákvörðun og beit­ingu allra þjóð­hags­var­úð­ar­tækja.

Nefndin var skipuð þegar Bjarni Benediktsson var forsætisráðherra, eða í mars 2017.
Nefndin var skipuð þegar Bjarni Bene­dikts­son var for­sæt­is­ráð­herra, eða í mars 2017.

Þá er lagt til að skip­aðir verði tveir aðstoð­ar­seðla­banka­stjórar sem stafi undir seðla­banka­stjóra, nokk­urs konar for­stjóra bank­ans. Annar þeirra á að starfa á sviði pen­inga­mála en hinn á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika. Samhliða leggur nefndin til að ytri með­limum í fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd, sem komi í stað fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs, verði fjölgað og að hún taki end­an­lega ákvörðun um beit­ingu allra þjóð­hags­var­úð­ar­tækja. Nefndin leggur til að bæði seðla­banka­stjóri og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra gegni þar for­mennsku en að auk þeirra muni annar aðstoð­ar­seðla­banka­stjór­anna – sá sem starfi á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika – sitja í nefnd­inni auk tveggja ytri með­lima, þar sem að minnsta kosti annar hafi „reynslu úr fjár­mála­líf­inu“.

Verðbólgumarkmið á að undanskilja húsnæðisverð

Tvær til­lögur snú­ast um end­ur­bætt verð­bólgu­mark­mið til að tryggja að Seðla­bank­inn beiti stýri­vöxtum á áhrifa­rík­ari máta án þess að vegna að fjár­mála­stöð­ug­leika. Sú fyrri snýst u m að breyta sam­starfs­samn­ingi rík­is­stjórnar og Seðla­banka Íslands þannig að við­hald fjár­mála­stöð­ug­leika hafi for­gang yfir við­hald verð­stöð­ug­leika ef þær aðstæður skap­ast að ógn skap­ist gagn­vart hinum fyrr­nefnda. Í því til­viki skal pen­inga­stefnu­nefnd leyfa verð­bólgu umfram mark­mið til að gefa fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd svig­rúm til þess að beita þjóð­hags­varúð.

Sú síðar segir að verð­bólgu­mark­miðið eigi áfram að vera 2,5 pró­sent að að „sú verð­vísi­tala sem mark­miðið nær til skal ekki taka mið af kostn­aði vegna eigin hús­næðis. Verð­bólgu­mark­mið skal því und­an­skilja hús­næð­is­verð.“ Þetta er m.a. rök­stutt með því að ríf­lega fjórð­ungur vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, megi rekja til hús­næð­is­verðs. Það leiði af sér skamm­tíma­sveiflur í verð­bólgu sem Seðla­bank­anum er nú skylt að bregð­ast við, en þyrfti ekki að gera það ef hús­næð­islið­ur­inn yrði und­an­skilin í verð­bólgu­mark­miði hans.

Umferðaljósakerfi og afnám bindiskyldu

Tvær til­lög­urnar snúa að mark­viss­ari beit­ingu stjórn­tækja Seðla­bank­ans. Annars vegar er lagt til að Seðla­banki Íslands taki mið af „umferð­ar­ljósa­kerfi nýsjá­lenska seðla­bank­ans til þess að skapa skýrar leik­reglur í kringum ákvarð­ana­töku og miðlun upp­lýs­inga um gjald­eyr­is­inn­grip. Jafn­framt er þörf á skýrri og gagn­særri stýf­ing­ar­stefnu í tengslum við inn­gripin. Þá skal bank­inn birta mat á jafn­væg­is­raun­gengi með reglu­bundnum hætti.“

Síðari til­lagan í þessum lið myndi hafa nokkuð afger­andi bein áhrif á stöðu mála í dag. Samkvæmt henni er lagt til að inn­flæð­is­höft skuli vera á „for­ræði fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar sem hluti af þjóð­hags­varúð og verði afnumin í skrefum. Þegar til fram­tíðar er litið gildi skýrar reglur um hvenær þeim sé beitt.“

Lagt er til að Seðlabanki Íslands taki mið af „umferðarljósakerfi nýsjálenska seðlabankans“.
Lagt er til að Seðla­banki Íslands taki mið af „umferð­ar­ljósa­kerfi nýsjá­lenska seðla­bank­ans“.

Ef þessi til­laga yrði inn­leidd myndi það þýða að hin sér­stöku höft á inn­flæði fjár­magns, sem voru inn­leidd í júní 2016 til að koma í veg fyrir vaxta­muna­við­skipti sem gæti leitt til upp­bygg­ingar kerf­is­legrar áhættu í þjóð­ar­bú­skapnum, líkt og gerð­ist með myndum „snjó­hengj­unnar“ svoköll­uðu eftir banka­hrunið, yrðu afnumin. Eins og höft­unum er beitt í dag þurfa erlendir fjár­festar að binda 40 pró­sent þess sem þeir flytja inn til lands­ins til að kaupa í skráðum skulda­bréf­um, víxl­um út­gefn­um í krón­um auk há­vaxta­inn­stæðna, á fjár­streym­is­reikn­ingum á núll pró­sent vöxtum í eitt ár.

Veiti faglegt aðhald

Fjórar til­lögur snúa að ákvörð­un­ar­ferli pen­inga­stefn­unnar. Þar ber fyrst að nefna að Seðla­bank­inn á að birta stýri­vaxta­spá­feril í Pen­inga­málum fjórum sinnum á ári. Þannig sé unnt að styrkja mark­aðsvænt­ingar og auka gagn­sæi í lang­tíma vaxta­stefnu bank­ans.

Þá er lagt til að auka þurfi ábyrgð og stuðn­ing ytri með­lima í pen­inga­stefnu­nefnd. „Auka skal gagn­sæi við ákvörð­un­ar­töku með opin­berri birt­ingu atkvæða nefnd­ar­manna við vaxta­á­kvörðun. Nefndin hugi einnig betur að Delfískri lang­tíma­leið­bein­ingu vaxta.“

Einnig er lagt til að Seðla­bank­inn stuðli að auk­inni fræðslu um pen­inga­stefn­una og gildi verð­bólgu­mark­miðs með það að mark­miði að auka skiln­ing almenn­ings á þeim mögu­leikum og tak­mörk­unum sem eru til staðar og stuðla að auk­inni sátt um stefn­una.

Síðasta til­laga nefnd­ar­innar snýst svo um að reglu­leg ytri end­ur­skoðun fari fram á fimm ára fresti á pen­inga­stefnu lands­ins. Það veiti m.a. Seðla­banka Íslands fag­legt aðhald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár