Mynd: Bára Huld Beck

Barátta íslenskunnar upp á líf og dauða

Á dög­unum kynnti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra aðgerðir sem miða að því að styrkja stöðu íslenskrar tungu. Ráðu­neytið segir þær snerta ólíkar hliðar mann­lífs­ins en mark­mið þeirra allra beri að sama brunni.

Tungumál smátungu­þjóða týna töl­unni á miklum hraða, í hverri viku tap­ast tungu­mál – segja fróðir.

Ritað mál á íslensku er grund­völlur þess að tungu­málið lifi. Framundan er bar­átta upp á líf og dauða fyrir íslensk­una og það er tví­sýn bar­átta. Stundum er við­kvæði fólks að íslenskan muni lifa áfram – hún hafi jú lifað í þús­und ár! En nei. Það er ekki sjálf­gefið að hún lifi. Í dag eru allt aðrar aðstæður en áður. Við stöndum á þrös­k­uldi algjör­lega nýrra tíma bæði hvað varðar lífs­skil­yrði tungu­máls­ins og fjöl­miðla í þeirri mynd sem við höfum þekkt þá. Stafræn tækni, fals­fréttir, sam­fé­lags­miðlar, breytt rekstr­ar­skil­yrði bæði fjöl­miðla og bóka­út­gáfu og meira til – allt þetta hefur lúmsk en dramat­ísk áhrif á tungu­málið, mát­ann til að afla sér upp­lýs­inga og dag­legt líf. Breyt­ingar í fram­tíð­inni blasa við en eng­inn veit almenni­lega hvað bíður.

Inn í þennan heim rata ekki tungu­mál smá­þjóða – eins og staðan er – heldur aðeins tungu­mál á borð við ensku, kín­versku og önnur mál sem töluð eru af hund­ruðum millj­óna manna. Að halda að mál sem 300.000 manns tala fái þrif­ist í slíkum aðstæðum án þess að gripið verði til aðgerða er í besta falli óraun­sætt. Þetta eru gjör­breyttar aðstæður.

Aðgerðir stjórn­valda sem miða að því að styrkja stöðu íslenskrar tungu voru kynntar á fjöl­miðla­fundi Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, á dög­unum. Aðgerð­irnar snerta ólíkar hliðar þjóð­lífs­ins en sam­kvæmt til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu ber mark­mið þeirra allra að sama brunni; að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks sam­fé­lags. „Til grund­vallar aðgerð­unum er ein­dreg­inn vilji stjórn­valda til að tryggja fram­gang og fram­tíð íslenskrar tungu meðal ann­ars með stuðn­ingi við íslenska bóka­út­gáfu, einka­rekna fjöl­miðla, mál­tækni og menntun,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnir tillögurnar.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnir til­lög­urnar.

Ef ritað mál á íslensku veik­ist – og það veik­ist smám saman eftir því sem færri lesa það – þarf að snúa vörn í sókn og um það snú­ast að hluta til þessar til­lögur, sem ættu að geta orðið til mik­ils gagns, ef þær verða rétt útfærðar.

Þeim fjölgar sem lesa aldrei neitt og þá gefur auga leið að ritað mál veik­ist. Á sama tíma hefur bók­sala dreg­ist saman um þrjá­tíu og sjö pró­sent á örfáum árum. Hinn staf­ræni heimur og breytt atferli sem fylgir honum mun breyta öllu eins og t.d. heim­il­is­haldi – nú þegar við getum talað við heim­il­is­tækin. Átak þurfti til að koma íslensk­unni inn í tölvu­heim­inn og eins þarf átak í hinni staf­rænu ver­öld. Þessi þróun er sam­þætt því að æ færri lesa og þar með veik­ist grund­völlur tungu­máls­ins. Við þurfum að geta talað við heim­il­is­tækin á íslensku, að íslenska sé töluð á heim­il­inu. Annars fer hún að víkja.

Nú er stundum sagt að enskan sé fín til síns brúks, veru­leiki okkar sé það alþjóð­legur að okkur sé holl­ast að nota hana bara. En íslenskan er okkur einmitt mik­il­væg til að skilja umheim­inn á okkar for­sendum. Við verðum að geta feng­ist við og unnið úr hlutum með blæ­brigðum og dýpt okkar fyrsta tungu­máls; þýtt hið ytra yfir á það og notað íslensk­una sem verk­færi til að greina það og skilja.

Nauðsynlegt að koma á vitundarvakningu um gildi íslenskunnar

Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði, segir í sam­tali við Kjarnann að nauð­syn­legt sé að gera átak í því að efla eða koma á vit­und­ar­vakn­ingu um mik­il­vægi og gildi íslensk­unnar. Hann bendir á að til að við­halda íslensk­unni skipti við­horf mál­not­enda mestu máli, einkum við­horf ungs fólks. Hann segir jafn­framt að unga fólkið verði að geta notað málið á sviðum sem það hefur áhuga á. Ef sú verði ekki raunin sé hætta á að nei­kvætt við­horf skap­ist til tungu­máls­ins.

En er nóg gert til að hlúa að staf­rænu lífi íslensk­unnar?

Eiríkur segir að ekki hafi verið nóg gert hingað til, en ýmis­legt sé í far­vatn­inu. Mennta­mála­ráðu­neytið samdi til að mynda á dög­unum við sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina Almannaróm um rekstur mið­stöðvar mál­tækni­á­ætl­unar fyrir íslensku. Rúmir tveir millj­arðar króna verða lagðir í verkið á fimm árum. Eiríkur gerir sér vonir um að það átak skili miklu og seg­ist ekki verða var við annað en að stjórn­völd hafi vilja til að fylgja því eftir.

Hann seg­ist enn fremur hafa talað fyrir því í tutt­ugu ár að átak sé gert í að gera íslensku gjald­genga í tölvu­heim­inum, en sé nú kom­inn að þeirri nið­ur­stöðu að það sé aðeins önnur hlið máls­ins – það þurfi líka að hvetja fólk til að nota íslensku á öllum sviðum. „Það er alveg sama hversu þró­aðan mál­tækni­búnað við höfum – ef hann á að gagn­ast íslensk­unni verður fólk að nota hann,“ segir hann.

Sjálfstæð bókaútgáfa kraftaverk

Eins og áður sagði hefur bóka­sala dreg­ist saman um þrjá­tíu og sjö pró­sent á und­an­förnum árum. Útgef­endur og rit­höf­undar hafa ekki farið var­hluta af því og hafa því áhyggjur af fram­tíð útgáf­unnar. Að skrifa og gefa út bækur og rit á svo fámennu mál­svæði er jú bæði áhættu­samur og við­kvæmur bransi – eins mik­il­vægur og hann er fyrir sam­fé­lagið.

„Það er í raun­inni algjör­lega galið að í litlu mál­sam­fé­lagi eins og okkar, þar sem mark­að­ur­inn er jafn lít­ill og við­kvæmur, að það skuli vera svona íþyngj­andi skattur lagður á þessa grein og við verðum að athuga að það að það skuli þríf­ast sjálf­stæð bóka­út­gáfa í 300 þús­und manna sam­fé­lagi er talið krafta­verk hvar sem er í heim­inum.“ Þetta segir Einar Kárason, rit­höf­undur, í sam­tali við RÚV.

Lagt er til að útgef­endur fái tutt­ugu og fimm pró­sent af kostn­aði við útgáfu bóka á íslensku end­ur­greiddan. Hætt hefur verið við áform um afnám virð­is­auka­skatts á bækur – sem lofað var í sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar í lok síð­asta árs.

Einar segir til­lög­urnar um end­ur­greiðslu hluta af kostn­aði bóka­út­gáfu aðeins greiða götu útgef­anda og að rit­höf­undar beri skarðan hlut frá borði.

„Þetta er svona brauð­mola­kenn­ing sem hefur heyrst. Ef að þeir fái meiri pen­inga þá muni hugs­an­lega eitt­hvað hrjóta af borðum þeirra til okkar og jú það getur vel verið að þetta þýði það að Rit­höf­unda­sam­bandið þurfi að fara að krefj­ast þess að samn­ingar verði teknir upp þá þegar þeir renna út næst, og fara í ein­hvers konar bar­áttu. Þetta er ekk­ert auð­velt og mun örugg­lega taka mörg ár og ekk­ert er víst hvað kemur út úr því. Hins vegar að fella niður skatt­inn væri stór­kost­leg kjara­bót,“ álítur hann.

Verður að horfa heildrænt á málin

Til­lög­unum hefur verið tekið mis­jafn­lega, eðli máls­ins sam­kvæmt. Sitt sýn­ist hverjum, enda mis­jafnt hvar hags­mun­irnir liggja. Heiðar Ingi Svansson, for­maður Félags bóka­út­gef­anda, fagnar því að rík­is­valdið sé að veita þessum mála­flokki athygli.

Hann tekur sér­stak­lega fram að erfitt sé að leggja mat á til­lög­urnar núna. „Það er búið að gefa ákveðnar vænt­ingar og við bíðum spennt eftir því hvernig ráð­herra ætlar að útfæra þessar til­lögur,“ segir Heiðar Ingi og bætir því við að nauð­syn­legt sé að horfa heild­rænt á málin og í sam­hengi. Hann fagnar jafn­framt að til­lög­urnar séu undir hatti íslensk­unnar og bendir á að slíkt hið sama sé gert á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Heiðar Ingi segir að þrátt fyrir að stóra línan liggi fyrir í til­lögum ráð­herra, þá vanti tölu­vert inn í jöfn­una, til að mynda hvernig útgáfu­kostn­aður verði skil­greindur o.s.frv. „Við þurfum frek­ari upp­lýs­ingar til að vita hver áhrifin verða,“ útskýrir hann en bætir því við að auð­vitað hljóti þessi inn­spýt­ing að vera af hinu góða.

Hann telur vilja vera til staðar hjá ráð­herra að fram­fylgja bók­mennta­stefn­unni frá árinu 2017 – en þá skip­aði Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, starfs­hóp til að fjalla um bók­menn­ing­ar­stefnu á Íslandi. Heiðar Ingi segir að þar hafi komið fram áhuga­verðar til­lögur og einnig hafi verið rætt um stuðn­ings­kerfi rit­höf­unda, náms­efni og nám­efna­gerð, útgáfu barna­bóka og kaup bóka­safna. „Mér finnst áhuga­vert að verið sé að fylgja þess­ari stefnu og líta heild­rænt á hlut­ina,“ botnar hann.

Aðgerðir verða að gagnast öllum

Stjórn Rit­höf­unda­sam­bands Íslands lýsti von­brigðum með að stjórn­völd ætli að ganga gegn áður lof­aðri nið­ur­fell­ingu bóka­skatts­ins sem heitið var í stjórn­ar­sátt­mál­anum í til­kynn­ingu sem hún sendi til félags­manna í gær.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að stjórnin hafi fullan skiln­ing á erf­iðri stöðu á bóka­mark­aði en sú staða sé mun flókn­ari og erf­ið­leik­arnir víð­tæk­ari en svo að end­ur­greiðsla á hluta kostn­aðar til útgef­enda ein­göngu muni laga ástandið. „Mik­il­vægt er að ráð­ast í aðgerðir sem eru lík­legar til að gagn­ast öllum er koma að þessum geira; höf­undum, útgef­endum, bók­sölum, mennta­kerf­inu sem og les­endum. Undir er tungan, læsi og bók­menn­ing sem er ein af grunn­stoðum íslenskrar menn­ingar.“

Stjórnin bendir á að enn sé óljóst hvernig þeim end­ur­greiðslum sem ríkið hyggst veita bóka­út­gef­endum verði háttað og hvað eigi að falla undir fram­leiðslu­kostnað en hægt sé að draga upp sviðs­myndir þar sem hagur rit­höf­unda kynni að versna við slíkar aðgerðir. Í öllu falli sé ekki hægt að sjá að hann batni á nokkurn hátt, komi ekk­ert annað til.

„Rit­höf­unda­stéttin berst í bökkum eins og staðan er í dag. Ef renna á styrkum stoðum undir íslenska bóka­út­gáfu er ekki síst nauð­syn­legt að hlúa að grund­velli hennar, íslenskum rit­höf­undum.

Stjórn og starfs­fólk RSÍ hefur verið í góðu sam­bandi við Mennta­mála­ráðu­neytið und­an­farna daga og verður áfram. Stjórn RSÍ mun hvetja til þess að horft verði heild­stætt á vanda bóka­geirans með áherslu á lausnir sem lík­legar eru til að gagn­ast öllum er koma að sköpun, útgáfu, sölu og lestri bóka á íslensku og boð­aðar voru í skýrslu starfs­hóps um bók­menn­ing­ar­stefnu. Sá vandi verður ekki leystur nema með aðkomu höf­unda og þýð­enda,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fátt kemur á óvart í tillögunum

Til­lög­urnar lúta enn fremur að fjöl­miðlum – eins og fram hefur komið – og ekki er síður mik­il­vægt fyrir lífs­skil­yrði íslenskrar tungu að heil­brigt fjöl­miðlaum­hverfi fái að blómstra hér á landi, en það er jú einn helsti vett­vang­ur­inn þar sem dag­leg sam­fé­lags­um­ræða og úrvinnsla hennar á sér stað. Þar spila margir þættir inn í, enda er fjöl­miðla­notkun með ýmsu móti og því nauð­syn­legt að starfs­um­hverfi sé með besta móti. Ekki er ofsögum sagt að fjöl­miðlar þurfi að takast á við erfið rekstr­ar­skil­yrði en þau hafa versnað á síð­ustu árum og ára­tugum, m.a. vegna breyttra aðstæðna og tækni­fram­fara. Og til þess að þeir geti sinnt eft­ir­lits­hlut­verki sínu, sem og hinu menn­ing­ar­lega, þá þarf að hlúa að þeim með ein­hverjum leiðum.

Um 400 millj­ónum króna verður varið til þess að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi. Aðgerðir fel­ast meðal ann­ars í því að hluti rit­stjórn­ar­kostn­aðar rit- og ljós­vaka­miðla verður end­ur­greiddur, stutt verður við textun og tal­setn­ingu efnis í mynd­miðlum og virð­is­auka­skattur sam­ræmdur vegna sölu raf­rænna áskrifta. Því sam­hliða verður Rík­is­út­varp­inu gert að starfa innan þrengri ramma á aug­lýs­inga­mark­aði og þannig skapað aukið rými fyrir einka­rekna miðla til að afla sér tekna. Til stendur að minnka umsvif RÚV á sam­keppn­is­mark­aði um 560 millj­ónir.

Laga­frum­varp er í smíðum og verður lagt fram í jan­úar næst­kom­andi en ólíkar skoð­anir eru á þessum hluta til­lagn­anna – eins og hinum. Flestir fagna aðgerðum en hafa samt áhyggjur af því hvernig útfærsl­urnar verða.

Í sjálfu sér kemur ekk­ert á óvart í til­lögum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, að sögn Elfu Ýrar Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Fjöl­miðla­nefndar. Hún segir þær ríma við þær til­lögur sem komu fram í skýrslu nefndar sem gerði til­lögur að nauð­syn­legum aðgerðum til að bæta rekstr­ar­skil­yrði einka­rek­inna fjöl­miðla og skil­aði í jan­úar síð­ast­liðnum.

Varðandi deil­una um RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði segir Elfa Ýr að mis­mun­andi útfærslur og reglur séu á þessu í Evrópu. Hún segir að skoð­anir stjórn­mála­manna og ann­arra séu af ýmsu tagi og nú taki við póli­tískar ákvarð­anir. Fjöl­miðla­nefnd sé búin að leggja fram sína grein­ar­gerð.

Pólitísk ákvörðun hvernig fjármagna eigi RÚV

„Fyrst ber að nefna að það er afskap­lega jákvætt að verið sé að taka á stöðu einka­rek­inna miðla, það er stórt og jákvætt skref sem við hljótum öll að fagna,“ segir Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri Rík­is­út­varps­ins, þegar hann er inntur eftir við­brögðum við til­lög­unum. Hann bendir á að auð­vitað eigi eftir að útfæra þær og sjá hvernig fjár­munum verði dreift á milli miðl­anna.

„Þarna virð­ist sem verið sé að mæta ábend­ingum og óskum sem komið hafa frá einka­reknu miðl­unum. Í mínum huga er mik­il­vægt að rit­stjórnir séu styrktar til að stuðla að upp­lýstri umræðu og rækta lýð­ræð­is­hlut­verk miðl­anna. Það sama á við um textun og tal­setn­ingu en hvort tveggja er mik­il­vægt fyrir íslenska menn­ingu og tungu. Ég vona að tryggt verði að hinir smærri miðlar fái ekki síður stuðn­ing en hinir stærri.,“ segir hann. Magnús Geir telur jafn­framt mik­il­vægt að auð­velda miðlum að sinna barna­menn­ingu og að því leyti séu til­lög­urnar jákvæðar.

Hvað varðar RÚV þá segir Magnús Geir málin vera óljós­ari og að þau hafi ekki enn verið útfærð. Sú leið sem farin hafi verið við fjár­mögnun almanna­þjón­ust­unnar um ára­tuga skeið sé hin bland­aða leið, þ.e. opin­bert fram­lag að tveimur þriðju og aug­lýs­inga­tekjur að einum þriðja en það er sú leið sem algeng­ust er við fjár­mögnun almanna­þjón­ustu í Evrópu, að hans sögn.

„Það hefur ríkt sam­staða meðal þorra þjóð­ar­innar um mik­il­vægi öfl­ugs Rík­is­út­varps. Sú er líka raunin nú þar sem RÚV nýtur gríð­ar­legs stuðn­ings meðal þjóð­ar­innar sam­kvæmt könn­unum. Stuðn­ing­ur­inn hefur raunar ekki verið meiri um ára­bil. Það hafa hins vegar alltaf verið skiptar skoð­anir um hvaða blöndun fjár­mögn­unar henti best og á því hafa verið ólíkar pólítískar skoð­anir,“ segir hann.

Hann seg­ist ánægður með að sjá ráð­herra svo afger­andi í þeirri afstöðu að ef ein­hverjar tak­mark­anir á veru RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði gangi eftir, þá liggi alveg fyrir að það verði bætt upp að fullu með hækk­uðu útvarps­gjaldi eða með öðrum hætti. „Þetta er það sem mestu máli skiptir, ráð­herr­ann er sam­mála þjóð­inni í því að tekjur og þjón­usta RÚV verða ekki skertar frá því sem nú er. Svo þarf að skoða, ræða og útfæra hvernig það verði tryggt,“ segir hann.

Eins og fleiri við­mæl­endur Kjarnans bendir Magnús Geir á að það eigi eftir að koma í ljós hvernig útfærslur til­lagn­anna munu verða. Enn fremur að ef til tak­mark­ana á aug­lýs­inga­mark­aði komi þá eigi eftir að útfæra hvernig það tekju­tap verði bætt. „Nú hefst sam­tal og sam­ráð um það en ráð­herra var skýr. Hún er ekki að tala fyrir skerð­ingu á þjón­ust­unni eða tekjum heldur bara breyt­ingum á fjár­mögn­un­ar­leiðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár