Ríkisstjórn Katrínar frá miðju til vinstri langlíklegust

Mestar líkur eru á því að rík­is­stjórn undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, mynduð af Vinstri grænum og þremur miðju­flokkum, muni setj­ast að völdum eftir kosn­ing­arnar á morgun. Aukið fylgi Sjálf­stæð­is­flokks á loka­metr­unum gæti þó skapað stjórn­ar­kreppu.

Allar líkur eru á því að fjög­urra flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri verði mynduð eftir kosn­ing­arnar á morgun verði nið­ur­stöður þeirra í takt við það sem skoð­ana­kann­anir hafa sýnt á und­an­förnum dögum. Samkvæmt síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, eru Vinstri græn og Sam­fylk­ing með sam­an­lagt um 35 pró­sent fylgi og stefna að því að mynda rík­is­stjórn með tveimur af þremur flokkum: Fram­sókn­ar­flokknum, Pírötum eða Viðreisn.

Slík rík­is­stjórn myndi, sam­kvæmt þing­sæta­spá Kjarnans, hafa 34 til 35 þing­menn og rúman meiri­hluta á þingi. Nokkuð ljóst þykir að Katrín Jak­obs­dóttir yrði for­sæt­is­ráð­herra í slíkri rík­is­stjórn. Um það er raunar ekki deilt innan þeirra flokka sem gætu átt aðild að henni.

Það eru ekki bara kann­anir sem sýna þetta sem lík­leg­asta veru­leik­ann. Við­mæl­endur Kjarnans í lyk­il­stöðum innan ofan­greindra flokka eru nær allir á því að fyrsti kostur allra fimm sé að vinna með öðrum en Sjálf­stæð­is­flokki eða Mið­flokki Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Í raun virð­ist helsti mögu­leiki Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks, að óbreyttu miðað við kann­anir, að kom­ast í rík­is­stjórn vera sá að Viðreisn myndi fara með þeim og Fram­sókn­ar­flokki.

Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans er þó nær ómögu­legt að Viðreisn myndi líta á þann mögu­leika sem raun­hæfan, að minnsta kosti ekki fyrr en eftir langvar­andi stjórn­ar­kreppu. Reynslan af stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafi að mörgu leyti ekki verið góð og verið nálægt því að gera út um flokk­inn. Þá sé eng­inn stjórn­mála­flokkur fjær Viðreisn mál­efna­lega en Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs.

Auk þess þyrfti að takast á við það að leið­togar ann­ars vegar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hins vegar Fram­sókn­ar­flokks­ins eru þeir tveir menn sem Sig­mundur Davíð álítur að hafi að ósekju haft af sér ann­ars vegar for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn og hins vegar for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum. Það yrði flókið sam­starf á báða bóga.

Miðjan kemur sterk út

Miðjan í íslenskum stjórn­völdum verður sterkasta aflið í þeim að loknum kosn­ing­unum á morgun ef fram fer sem horfir, bæði út frá sam­an­lögðu fylgi og mögu­leikum í stjórn­ar­sam­starfi. Sam­fylk­ingin næstum þre­faldar sig, fær í kringum 15 pró­sent atkvæða og tíu þing­menn. Viðreisn, sem skil­greinir sig sem frjáls­lynt og alþjóð­lega sinnað miðju­afl sem vill umbætur á stjórn­kerfum lands­ins, vinnur varn­ar­sigur og fær að öllum lík­indum að minnsta kosti fimm þing­menn, eða tveimur færri en flokk­ur­inn hefur nú. Það er ansi mik­ill við­snún­ingur fyrir flokk sem nán­ast allan októ­ber­mánuð, og síð­ast fyrir tíu dögum síðan, mæld­ist með rétt um fjögur pró­sent fylgi.

Nokkrar breytur skipta umtals­verðu máli þegar horft er á þá aukn­ingu sem Viðreisn virð­ist ætla að ná í á loka­sprett­inum. Sú fyrsta eru for­manns­skiptin 11. októ­ber, þegar Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir tók við af Benedikt Jóhann­essyni. Á þeim degi mæld­ist fylgi flokks­ins 3,3 pró­sent en hefur verið 7-8 pró­sent í síð­ustu könn­unum. Til við­bótar má telja nokkuð lík­legt að hluti þeirra sem ætl­uðu sér að kjósa Bjarta fram­tíð, sem er líka frjáls­lyndur miðju­flokkur með að mörgu leyti sam­bæri­legar mál­efna­á­herslur og Viðreisn, séu að færa sig yfir til Við­reisnar eða Sam­fylk­ingar svo að atkvæði þeirra falli ekki niður dauð. Þá dregur aukin styrk­ing Við­reisnar úr vinstrislag­síðu á þeirri rík­is­stjórn sem er lík­leg­ust eftir kosn­ingar.

Á miðj­una rað­ast líka Píratar, bragð mán­að­ar­ins í aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra, sem munu tapa umtals­verðu fylgi en samt ná inn sex þing­mönnum. Fyrir liggur að Píratar munu ekki undir neinum kring­um­stæðum vinna með Sjálf­stæð­is­flokki eða Mið­flokknum í rík­is­stjórn og eini mögu­leiki þeirra til stjórn­ar­þátt­töku því sá að vera hluti af fjög­urra flokka stjórn með tveimur öðrum miðju­flokkum og Vinstri grænum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók við formannstaumunum í Viðreisn fyrir rúmum tveimur vikum. Fylgi flokksins hefur gjörbreyst síðan þá.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir tók við for­mann­s­taumunum í Viðreisn fyrir rúmum tveimur vikum. Fylgi flokks­ins hefur gjör­breyst síðan þá.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er síð­asti miðju­flokk­ur­inn. Hann mun bíða afhroð í kom­andi kosn­ingum í ljósi þess klofn­ings sem varð þegar Sig­mundur Davíð stofn­aði Mið­flokk­inn. Nið­ur­staðan verður versta útreið Fram­sókn­ar­flokks­ins í rúm­lega 100 ára sögu hans og allar líkur á að þing­menn flokks­ins verði ekki nema fimm. Mesta höggið verður að helsta von­ar­stjarna Fram­sókn­ar­flokks­ins, vara­for­mað­ur­inn Lilja Alfreðs­dóttir, á nán­ast engar líkur á því að ná inn á þing.

Samtals eru þessir fjórir flokkar á miðju íslenskra stjórn­mála með 22 þing­menn og í lyk­il­stöðu til að vinna til vinstri með Vinstri grænum eða til hægri með Sjálf­stæð­is­flokki.

Ekki margir sýnilegir samstarfskostir

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verður áfram sem oft­ast áður stærsti flokkur lands­ins að loknum kosn­ingum. Kosn­inga­spáin sýnir hann með tæp­lega 24 pró­sent atkvæða og þing­sæta­spá Kjarnans reiknar með að hann fái 16-17 þing­menn.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sá stjórn­mála­flokkur sem er með með skipu­lagð­asta flokks­starfið, sterk­ustu inn­við­ina og best smurðu kosn­inga­vél­ina. Und­an­farnar vikur hefur til að mynda fjöl­mennur hópur flokks­manna verið í úthring­ingum til að reyna að sann­færa sem flesta maður á mann að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé besti kost­ur­inn fyrir Ísland, og sá eini sem komi í veg fyrir vinstri­st­jórn. Þetta, ásamt því að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru að með­al­tali eldri en kjós­endur flestra ann­arra flokka og lík­legri til að skila sér á kjör­stað, er ekki óvar­legt að áætla að hann eigi lít­il­lega inni og muni enda með aðeins hærra fylgi en kann­anir segja til um.

En allt stefnir í að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að fara að tapa fylgi og að minnsta kosti nokkrum þing­mönnum, en flokk­ur­inn hefur 21 í dag. Hann er líka, að öllum lík­indum, að fara að fá sína næst verstu nið­ur­stöðu í kosn­ingum síðan að flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1929. Eina skiptið sem hann hefur áður fengið undir fjórð­ung atkvæða var vorið 2009 þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða. Þá voru kjós­endur að refsa flokknum fyrir hrunið.

Það eru ekki margir sýni­legir sam­starfs­mögu­leikar fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir kosn­ingar ef nið­ur­stöður þeirra verða í takt við kann­anir. Þótt nán­ast allir stjórn­mála­flokkar úti­loki ekk­ert fyrir fram þegar þeir eru spurðir að því opin­ber­lega er ljóst á við­mæl­endum Kjarnans í lyk­il­stöðum hjá miðju­flokk­unum og Vinstri grænum að lít­ill sem eng­inn vilji er þar til að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Hinn flokk­ur­inn sem hægt er að stað­setja í hægri­blokk­inni er Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Sá er raunar ekki með neina skýra stefnu­skrá sem hægt er að raða á vinstri-hægri eða frjáls­lyndis-for­ræð­is­hyggju kvarða heldur hverf­ist flokk­ur­inn fyrst og síð­ast í kringum sér­tækar hug­myndir leið­toga Mið­flokks­ins. En best heima í þess­ari blokk þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lík­leg­astur til að stofna til sam­starfs við hann af öllum flokk­unum sem í fram­boði eru, og eru lík­legir til að fá fólk kjörið á þing.

Einn flokkur á vinstri vængnum

Vinstri græn eiga vinstri væng stjórn­mál­anna skuld­laust um þessar mundir. Önnur fram­boð með sós­íal­ískar áherslur á borð við Alþýðu­fylk­ing­una ná engu flugi. Eftir að hafa mælst stærsti flokkur lands­ins lengi framan af kosn­inga­bar­átt­unni hefur fylgi Vinstri grænna lækkað nokkuð skarpt á síð­ustu metr­unum. Flokk­ur­inn mæld­ist með tæp­lega 28 pró­sent fylgi í kosn­inga­spá 10. októ­ber síð­ast­lið­inn en er nú, degi fyrir kosn­ingar að mæl­ast með 20,4 pró­sent. Mest af fylg­inu er að rata til þess miðju­flokks sem er næst Vinstri grænum í áherslum, Sam­fylk­ing­ar­innar. Þessir tveir flokkar eru líka alltaf með það sem fyrsta kost að vinna saman í rík­is­stjórn eins og sakir standa og því skiptir ekki öllu hvernig atkvæði skipt­ast á milli þeirri svo lengi sem að sam­an­lagt fylgi flokk­anna verði í kringum 35 pró­sent.

Við­mæl­endur Kjarnans innan Vinstri grænna segja að það sé nokkuð ljóst hver vilji flokks­ins sé í stjórn­ar­sam­starfi. Hann sé sá að mynda fjög­urra flokka stjórn sem inni­haldi þá flokka sem nú sitja í stjórn­ar­and­stöðu, eða að annað hvort Píratar eða Framsókn víki fyrir Viðreisn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður að öllum líkindum einn helsti sigurvegari kosninganna á morgun. Afar ólíklegt er þó að hann, og Miðflokkur hans, bjóðist ríkisstjórnarsamstarf. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verður að öllum lík­indum einn helsti sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna á morgun. Afar ólík­legt er þó að hann, og Mið­flokkur hans, bjóð­ist rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Tvennt muni skipta lyk­il­máli um hvaða mynstur verði ofan á, verði nið­ur­stöður kosn­ing­anna eins og kann­anir bendi til. Annað er það hversu mikið end­an­legt fylgi flokk­anna þriggja á miðj­unni verður. Ef Píratar fá til að mynda umtals­vert minna upp úr kjör­köss­unum en kann­anir benda til, sem varð til að mynda raunin fyrir ári síðan, þá veiki það stöðu flokks­ins. Hitt atriðið sem er mik­il­vægt er það að það muni skipta máli á hvaða stjórn­mála­leið­toga for­menn flokk­anna þriggja muni benda á þegar þegar þeir fara til fundar við Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, eftir helgi til að ræða stjórn­ar­myndun. Fyrir liggur að næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar verður annað hvort Katrín Jak­obs­dóttir eða Bjarni Bene­dikts­son. Ef einn flokk­anna þriggja myndi til að mynda leggja til að Bjarni fengi umboðið þá myndi það skipta máli fyrir Vinstri græn í stjórn­ar­myndun.

Lítið þarf að gerast til að myndin riðlist verulega

Hið mikla rót stjórn­mál­anna heldur því áfram og ljóst að flokk­arnir verða að finna nýjar leiðir til að vinna saman og mynda starf­hæfar rík­is­stjórnir. Allt er breytt og litlar sem engar líkur á því að gamla fjórir plús einn kerfið eigi aft­ur­kvæmt.

Þrjár af síð­ustu fjórum hafa sprungið áður en kjör­tíma­bil­inu lauk og sú eina sem hefur náð að klára kjör­tíma­bil eftir hrun gerði það sem eig­in­leg minni­hluta­stjórn. Nokkuð ljóst er að ein­ok­un­ar­tími fjór­flokks­ins,sem lengi vel var sam­an­lagt með yfir 90 pró­sent fylgi hér­lendis, er lið­inn. Í síð­ustu kosn­ingum fengu flokkar sem stofn­aðir voru 2012 eða síðar um 38 pró­sent atkvæða. Nú mæl­ast slíkir flokkar með 32 pró­sent atkvæða.

Sem stendur eru þeir flokkar sem hafa stýrt Íslandi þorra sjálf­stæð­is­tím­ans, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, óra­fjarri því að mynda sína upp­á­halds tveggja flokka rík­is­stjórn. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna er rétt um 30 pró­sent og sam­an­lagður fjöldi þing­manna sam­kvæmt þing­manna­spá Kjarnans ein­ungis 22. Þótt að klofn­ings­fram­boði Sig­mundar Davíðs, sem virð­ist ein­ungis taka fylgi frá ofan­greindum tveimur flokkum, sé bætt við er Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­blokkin ein­ungis með 28 þing­menn, eða einum færri en þau voru með í fyrra.

Það þarf hins vegar lítið að ger­ast í kosn­ing­unum á morgun til að ofan­greind mynd riðlist veru­lega. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti bætti við sig nokkrum pró­sentum og þing­mönnum og þá yrði myndin allt önnur.

Þá gæti Flokkur fólks­ins náð inn manni, eða jafn­vel mönnum, með smá­vægi­legri fylg­is­aukn­ingu sem gæti riðlað stöð­unni algjör­lega eftir því hver myndi detta út í stað­inn.

Nið­ur­staðan þá yrði nær örugg­lega stjórn­ar­kreppa ef stærstu flokk­arnir tveir, Vinstri grænir og Sjálf­stæð­is­flokkur, myndu ekki finna sér sam­starfs­grund­völl. Og fá ein­hvern til að vera þriðja hjólið undir þeim vagni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár