Lagt til við landsfund Sjálfstæðisflokks að bankar, Íslandspóstur, flugvellir, ÁTVR og mögulega RÚV verði selt

Í drögum að mál­efna­á­lykt­unum sem lagðar verða fyrir fyrsta lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan 2018 er lagt til að ríkið selji fjöl­mörg fyr­ir­tæki og eignir sem það á í dag.

Í drögum að mál­efna­á­lykt­unum sem unnar hafa í aðdrag­anda fyrsta lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fjögur og hálft ár er meðal ann­ars lagt til að klára sölu á hlutum í Íslands­banka og hefja sölu­ferli á Lands­bank­anum. Þar er líka lagt til að selja Íslands­póst og kanna hvort rekstri RÚV sé ekki „að öllu leyti eða hluta betur komið í höndum einka­að­ila.“ RÚV á einnig að fara af aug­lýs­inga­mark­aði.

Þá vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skoða sölu rík­is­ins á versl­unum ÁTVR sam­hliða afnámi á ein­ok­un­ar­stöðu rík­is­ins á sölu áfengis og færa áfeng­is­kaupa­aldur niður í 18 ár. Flokk­ur­inn vill líka selja Frí­höfn­ina, dótt­ur­fé­lag Isavia, enda sé „engin þörf á því að ríkið standi í sæl­gætis- og ilm­vatns­sölu.“

Mál­efna­nefndir flokks­ins, sem unnið hafa drögin, leggja einnig til að eignir Eign­ar­halds­fé­lags Suð­ur­nesja, félag í eigu rík­is­ins sem á eignir upp á rúman hálfan millj­arð króna, verði seldar, að ríkið eigi að selja rekstur og eign­ar­hald flug­stöðva og flug­valla og selja jarðir og lóðir í eigu rík­is­ins þar sem því verður við­komið.

Vilja stytta grunnskólann og koma krökkum úr menntaskóla 18 ára

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins mótar stefnu hans. Kosið er í stjórnir mál­efna­nefnda á fund­inum sem vinna með þau drög sem unnin voru í aðdrag­anda fund­ar­ins. Drögin verða kynnt lands­fund­ar­gestum nú í morg­unsárið.

Eftir að lands­fundi lýkur munu liggja fyrir sam­þykkar lands­fund­ar­á­lykt­anir sem kjörnum full­trúum flokks­ins ber að vinna eftir. Í ljósi þess hversu langt er síðan að lands­fundur fór síð­ast fram, sá síð­asti var í mars 2018, er tölu­vert um upp­færslu­hug­myndir á stefnu­málum í þeim drögum að álykt­unum sem mál­efna­hópar innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa unnið í aðdrag­anda fund­ar­ins.

Í mennta­málum er meðal ann­ars lagt til að sveit­ar­fé­lögum verði auð­velduð útvistun verk­efna til einka­að­ila í leik- og grunn­skólum og að skóla­árum í grunn­skóla verði fækkað úr tíu í níu sam­hliða leng­ingu skóla­árs­ins „þannig að ung­menni útskrif­ist að jafn­aði úr fram­halds­skóla 18 ára, eins og tíðkast í flestum löndum í kringum okkur. Löng sum­ar­frí hafa slæm áhrif á náms­ár­angur, einkum þeirra sem standa höllum fæti.“

Þá leggur mál­efna­hóp­ur­inn sem skrif­aði drögin að skoðað verði hvort hægt sé að stytta bók­legt kenn­ara­nám og fjölga körlum í grein­inni. Hann vill líka að sjálf­stætt starf­andi háskólar fái tæki­færi til að bjóða upp á kenn­ara­nám.

Lagt er til að háskólar lands­ins taki upp aðgangs­stýr­ingu til að tryggja að tíma nem­enda og skól­anna sé betur varið. „Ísland er eitt fárra Evr­ópu­ríkja án slíkrar stýr­ingar. Skoða ætti skóla­stigið í heild og kanna hvar tæki­færi eru til auk­ins einka­rekstrar, sam­starfs og sam­ein­ingar, nem­endum og vís­indum til heilla, og styrkja stofn­anir á lands­byggð­inni.“

Í menn­ing­ar­málum er að finna til­lögu um end­ur­skoðun á starfs- og heið­urs­launa­kerfi lista­manna „þannig að það sé sann­gjarnt, hvetj­andi, ýti undir grósku í menn­ing­ar­starfi og styðji við upp­renn­andi lista­fólk.“

Vilja afnema bankaskatt að fullu og hækka lífeyrisaldur í 70 ár

Miklu púðri er að venju eytt í efna­hags- og atvinnu­mál og áherslan áfram sem áður á skatta­lækk­anir, skattaí­viln­anir og sam­drátt í rík­is­rekstri. Á meðal sér­tækra hug­mynda sem er að finna í drög­unum eru inn­leið­ing skatt­afslátta fyrir ein­stak­linga vegna kaupa á hluta­bréfum, að hækka líf­eyr­is­aldur í 70 ár og rýmka heim­ildir þeirra sem hafa náð þeim aldri til að vinna hjá hinu opin­bera og taka upp eitt skatt­þrep með stíg­lækk­andi per­sónu­af­slætti. Þá er lýst yfir vilja til að taka upp „barna­per­sónu­af­slátt“ í stað barna­bóta sem á að tryggja læggri skatt­byrði og „stuðn­ing fyrir þá sem sér­stak­lega þurfa á honum að halda.“

Vilji er til að afnema banka­skatt­inn að fullu og til þess að „bæta vaxta­kjör fólks og fyr­ir­tækja“. Inn­heimtur banka­skattur í fyrra.Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2023 er gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs vegna banka­skatts nemi 5,9 millj­örðum króna. Ef hann hefði ekki verið lækk­aður árið 2020 myndu þær vera 15,3 millj­arðar króna. Vaxta­munur stærstu banka lands­ins hefur auk­ist, ekki dreg­ist saman, á þeim tíma sem lið­inn er frá því að banka­skatt­ur­inn var lækk­aður. Hann er nú um og yfir þrjú pró­sent, sem er mun hærra en í löndum sem Ísland ber sig saman við.

Mál­efna­hóp­arnir leggja líka til að virð­is­auka­skatts­kerfið verði ein­faldað, að launa­greið­endum og stétt­ar­fé­lögum verði tryggt raun­veru­legt félaga­frelsi á vinnu­mark­aði.

Áfram sem áður er það stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins að stilla eigi gjald­heimtu í sjáv­ar­út­vegi í hóf til að „hún dragi ekki úr sam­keppn­is­hæfni á alþjóða­mark­aði og fjár­fest­ingu í grein­inni“ og að virða beri „eignar- og nýt­ing­ar­rétt ein­stak­linga á auð­lindum og ekki grípa til þjóð­nýt­ingar eða skerð­ingar á rétt­indum ein­stak­linga.“

Þá fjalla ýmsar greinar í drög­unum fjalla um frek­ari einka­væð­ingu og einka­rekstur í heil­brigð­is­geir­anum.

Á móti ESB en vilja skattaafslætti fyrir einkarekna fjölmiðla í stað styrkja

Í fjöl­miðla­málum er aðal­lega lagt til að bæta skattaum­hverfi fjöl­miðla og, líkt og áður sagði, að RÚV veðri tekið af aug­lýs­inga­mark­aði. „Þannig verður styrk­ari stoðum rennt undir til­vist einka­rek­inna fjöl­miðla í stað beinna rík­is­styrkja.“

Í utan­rík­is­málum er sagt að brýnt sé að tryggja áfram „opinn og frjálsan aðgang að innri mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) á grund­velli samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) og treysta jafn­framt við­skipta­sam­bönd við Banda­ríkin og Bretland.“ Tengsl Íslands við ESB séu almennt í far­sælum far­vegi með EES-samn­ingnum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn áréttar að „þá stefnu sína frá 2009 að hag þjóð­ar­innar og yfir­ráðum hennar yfir auð­lindum sínum sé best borgið utan ESB. Ekki verði sótt aftur um aðild að sam­band­inu nema Íslend­ingar hafi áður sam­þykkt það í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“

Fíkn heilbrigðismál og fólki frjálst að skilgreina kyn

Í drögum að álykt­unum um dóms- og lög­gæslu­mál, og ýmsum álykt­unum sem snúa að mann­rétt­indum, kennir ýmissa grasa. Þar er meðal ann­ars sagt að neysla fíkni­efna og varsla neyslu­skammta ætti ekki að vera refsi­verð. Fíkn sé heil­brigð­is­mál, ekki lög­gæslu­mál.

Formannsslagur verður á landsfundinum um helgina. Bjarni Benediktsson hefur verið formaður frá 2009 og vill vera það áfram. Guðlaugur Þór Þórðarson vill hins vegar fella hann og leiða sjálfur flokkinn. Þeir tókust á í Kastljósi á fimmtudag.
For­manns­slagur verður á lands­fund­inum um helg­ina. Bjarni Bene­dikts­son hefur verið for­maður frá 2009 og vill vera það áfram. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son vill hins vegar fella hann og leiða sjálfur flokk­inn. Þeir tók­ust á í Kast­ljósi á fimmtu­dag.

Kallað er eftir því að stjórn­völd móti sér heild­ræna stefnu í mál­efnum hinsegin fólks þar sem sér­stak­lega verði „skoðað að styrkja stöðu hinsegin fjöl­skyldna, einkum með til­liti til ætt­leið­inga, skrán­ingar og sjálf­krafa við­ur­kenn­ingar sam­kynja for­eldra.“ Þá eigi fólki að vera frjálst að skil­greina kyn sitt að vild.

Lagt er til að aðskiln­aður ríkis og kirkju verið klár­aður að fullu og að Ísland sýni frum­kvæði að því að bjóða fleiri kvótaflótta­mönnum til lands­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill hins vegar taka vernd­ar­kerfið í inn­flytj­enda­málum til end­ur­skoð­unar þannig að ferlar séu styttir og ein­fald­aðir. Þá vill flokk­ur­inn að því fólki sem kemur utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES), og er með hreint saka­vott­orð, verði gert kleift að koma til Íslands og starfa.

Í drög­unum er sagt að engin knýj­andi þörf sé á því að umbylta efni stjórn­ar­skrár Íslands. „Heild­ar­end­ur­skoðun sem umturnar öllum ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar sam­ræm­ist illa sjón­ar­miðum um réttar­ör­yggi og fyr­ir­sjá­an­leika. Að sama skapi telur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mik­il­vægt að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá séu gerðar í víð­tækri póli­tískri sátt og að und­an­geng­inni vand­aðri og mál­efna­legri umræðu.“ Þá sé óþarft er að gera grund­vall­ar­breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi kosn­inga­mála.

Hér er grænt, um grænt, frá grænu til einkaframtaksins

Ein af helstu kosn­inga­á­herslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar voru orku­mál. Eða rétt­ara sagt orku­skipti. Senni­lega hafa fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks aldrei klifað jafn mikið á for­skeyt­inu „grænt“ og þeir gerðu í aðdrag­anda þeirra.

Þessi umbreyt­ing end­ur­spegl­ast ágæt­lega í drögum að lands­fund­ar­á­lyktun flokks­ins. Þar segir meðal ann­ars að í „þágu orku­skipta og í ljósi nið­ur­stöðu græn­bókar um orku­mál er nauð­syn­legt að afla nýrrar grænnar orku, bæta nýt­ingu núver­andi raf­orku­kerfis og fram­leiða grænt raf- og líf­elds­neyti. Hags­munum Íslands er best borgið með því að byggja upp grænan iðnað í tengslum við orku­skipti hér á landi og flytja ekki græna orku úr landi með sæstreng. Lands­fundur stendur heils­hugar á bak við hug­myndir um atvinnu­upp­bygg­ingu inn­an­lands á grunni hag­kvæmrar nýt­ingar orku­auð­linda. Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggur áherslu á að hlúa enn frekar að upp­bygg­ingu grænna iðn­garða enda styðja þeir við sjálf­bærni með því að inn­leiða félags­leg, efna­hags­leg og umhverf­is­leg sjón­ar­mið í skipu­lagn­ingu, í stýr­ingu og fram­kvæmd.“

Þá segir að nauð­syn­legt sé að ríkið setji skýra eig­enda­stefnu gagn­vart orku­fyr­ir­tækjum og og raf­orku­flutn­ings­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins „sem tryggi m.a. að þau styðji stjórn­völd í að ná mark­miðum sínum í lofts­lags­málum.“ Í öðrum kafla, sem snýr að nýt­ingu nátt­úru­auð­linda, sem orku­auð­lindir eru sann­ar­lega, segir síðan að það hafi reynst vel að nýt­ingar- og afnota­réttur þeirra sé í höndum einka­að­ila. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur líka nauð­syn­legt að nýta einka­fram­takið eins og hægt er þegar kemur að upp­bygg­ingu flutn­ings­kerfis orku, sem er nú að öllu leyti í opin­berri eigu.

Þegar kemur að umhverf­is­málum eru skila­boðin ein­fald­ari. Í drög­unum segir að einka­fram­takið og einka­rétt­ur­inn séu besta nátt­úru­verndin.

Einkafjármagn í samgöngur og skattalegir hvatar

Að lokum eru það sam­göngu­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er á þeirri skoðun að ráð­ast þurfi í flýtifram­kvæmdir í sam­göngum og til þess þurfi „fjöl­breytt­ari fjár­mögnun“. Það þýðir á manna­máli að hið opin­bera eigi að hleypa einka­að­ilum í meiri mæli inn í upp­bygg­ingu sam­göngu­mann­virkja og Sunda­braut nefnd sem aðkallandi dæmi.

Í drög­unum er því sér­stak­lega fagnað að fram­lög til sam­göngu­fram­kvæmda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði stór­aukin á grund­velli sam­göngusátt­mála milli ríkis og sveit­ar­fé­laga á svæð­inu sem und­ir­rit­aður var 2019. Stærsta sam­göngu­verk­efnið sem ráð­ist verður í á grunni þess sátt­mála er hin svo­kall­aða borg­ar­lína. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur áherslu á að þetta mik­il­væga verk­efni sé und­ir­búið vel, kynnt vel fyrir íbúum og um það sköpuð góð sátt. Mik­il­vægt er að tryggja arð­bæra nýt­ingu fjár­muna þannig að mark­mið um greið­ari sam­göngur, aukin lífs­gæði og val­frelsi í sam­göngum náist.“

Til að orku­skipti í sam­göngum geti gengið greið­lega í náinni fram­tíð segir flokk­ur­inn að til þurfi „alvöru skatta­lega hvata fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki.“

Þá er að finna ályktun um flug­tengd mál­efni og meðal ann­ars sagt að stefna skuli að orku­skiptum í inn­an­lands­flugi á Íslandi fyrir árið 2030, eða eftir rúm­lega sjö ár. Að sjálf­sögðu er minnst á Reykja­vík­ur­flug­völl, sem mikið hefur verið rif­ist um á síð­ustu ára­tugum. Tillagan er þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn árétti „að Reykja­vík­ur­flug­völlur gegnir mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir allt landið og er því brýnt að hann verði óskertur í Vatns­mýri þar til annar jafn góður eða betri kostur er til­bú­inn til notk­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landsfundur

Mest lesið undanfarið ár