Fyrir mánaðamót er von á frumvarpi sem ætlað er að stuðla að bættu rekstrarumhverfi ritstýrðra íslenskra fjölmiðla sem miðla fréttum, fréttatengdu efni og mikilvægu samfélagslegu hlutverki í samráðsgátt stjórnvalda. Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, hefur undanfarna mánuði unnið að því að reikna út kostnað við mismunandi sviðsmyndir þessu tengdu. Heimildir Kjarnans herma að þeir útreikningar hafi meðal annars snúist um hvort næði tilgangi frumvarpsins betur, að greiða einkareknum fjölmiðlum styrki úr ríkissjóði eða gera þeim kleift að fá hluta ritstjórnarkostnaðar endurgreiddan. Niðurstaðan er sú að dreifing þeirrar upphæðar sem til stendur að greiða til fjölmiðla sem frumvinna fréttir er mjög sambærileg í báðum leiðum. Því er líklegt að endurgreiðsluleiðin verði ofan á.
Það munu ekki allir fjölmiðlar geta fengið endurgreiðslur vegna ritstjórnarkostnaðar, verði frumvarpið að lögum óbreytt. Í því verða ströng skilyrði um t.d. rekstrarsögu til að koma í veg fyrir að nýir aðilar geti stofnað fjölmiðil og farið samstundis fram á greiðslur úr ríkissjóði, um gegnsæi eignarhalds og að öll opinber gjöld séu í skilum, svo fátt eitt sé nefnt.
Drög að frumvarpinu liggja fyrir og næsta skref er að Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynni það í ríkisstjórn og fái þar staðfestingu á boðuðum stuðningi við það. Í kjölfarið verður frumvarpið að öllum líkindum lagt fram til samráðs.
Ferli sem staðið hefur yfir í eitt ár
Lilja kynnti þær tillögur sem frumvarpið á að meginuppistöðu að byggja á á fréttamannafundi í september 2018. Þær byggðu meðal annars á skýrslu nefndar sem falið var að koma með tillögur um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, sem gerð var opinber fyrir einu ári síðan. Frá þeim tíma hefur verið unnið að útfærslu sem nú stendur til að kynna á næstu vikum.
Í tillögum Lilju kom fram að áætlaðar endurgreiðslur til þeirra einkareknu fjölmiðla sem munu uppfylla sett skilyrði verði alls 350 milljónir króna á ári. Ráðgert er að fyrst endurgreiðslan komi til vegna rekstrarársins 2019, og yrði því til útgreiðslu í byrjun árs 2020.
Auk þessa sagði Lilja að til stæði að samræma skattlagningu á auglýsingum svo íslenskir fjölmiðlar standi jafnfætis erlendum netmiðlum og með því að auka gagnsæi í opinberum auglýsingakaupum. Mikið ójafnræði er í slíkum auglýsingakaupum en á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs borguðu ráðuneyti, ríkisstofnanir og fyrirtæki á vegum hins opinvera alls tæplega 190 milljónir króna fyrir birtingu auglýsinga. Tvö fjölmiðlafyrirtæki, útgáfufélag Fréttablaðsins og Árvakur útgefandi Morgunblaðsins, fengju samtals tæplega þriðjung fjárins sem hið opinbera eyddi í auglýsingabirtingar.
Brugðist við til að koma í veg fyrir einsleitni
Samkvæmt heimildum Kjarnans munu endurgreiðslurnar einungis standa þeim fjölmiðlum sem frumvinna fréttaefni til boða. Þeir sem að uppistöðu taka upp fréttir annarra miðla og endursegja þær munu ekki uppfylla þau skilyrði sem sett verða.
Þá á að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði og skapa með því svigrúm fyrir aðra til að auka sínar tekjur. Alls er búist við því að umsvif RÚV á samkeppnismarkaði muni dragast saman um 560 milljónir króna á ári með því að kostun dagskrárliða verði hætt og með lækkun hámarksfjölda auglýsingamínútna úr átta í sex á klukkustund. Lilja hefur margoft látið hafa það eftir sér opinberlega síðan að RÚV verði bætt upp þetta tekjutap með öðrum hætti. Samhliða verði metið hvað RÚV þurfi að kosta til að geta sinnt því hlutverki sem fyrirtækinu er ætlað samkvæmt þjónustusamningi sem er í gildi milli ríkisins og RÚV, en sá samningur er til endurskoðunar í ár.
Þegar samráði um frumvarpið er lokið verður það lagt fram á Alþingi og síðan vísað til allsherjar- og menntamálanefndar til meðferðar. Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi útvarpsstjóri RÚV, er formaður þeirrar nefndar. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið 4. janúar síðastliðinn að hann geri ráð fyrir því að frumvarpið verði töluvert átakamál, bæði á milli flokka og innan flokka. „Þótt flestir séu sammála um að það verði að huga að þessum málum ef menn ætla ekki að sitja bara uppi með einn ríkisfjölmiðil í landinu, eins og þróunin hefur verið, þá er ég jafn viss um að tekist verði á um aðferðirnar við að ná því markmiði.“
Bylting og aðgerðarleysi
Það sem Páll á við með því að án aðgerða gæti þjóðin setið uppi með einungis einn fjölmiðil, RÚV, er að rekstraraðstæður einkarekinna fjölmiðla hafa versnað gríðarlega hratt síðastliðinn áratug. Á sama tíma hefur rekstrarstaða RÚV haldist nokkuð svipuð, líkt og rakið er í hliðarefni.
Að hluta til er það vegna þess að upplýsinga- og tæknibyltingin hefur gjörbreytt heiminum og öllum neytendavenjum. En að hluta til er það vegna þess að stjórnmálamenn á Íslandi hafa ekki skilgreint fjölmiðla sem nægilega nauðsynlegan hluta, jafnvel hornstein, lýðræðisins til að grípa inn í þróunina og tryggja fjölbreytni fjölmiðla.
Raunar hafa þeir ekkert gert til að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla þrátt fyrir augljós viðvörunarljós sem blikkað hafa stanslaust ár frá ári. Afleiðingin er sú að flest allir einkareknir fjölmiðlar landsins hafa verið reknir með tapi á undanförnum áratug. Samhliða hefur átt sér stað atgervisflótti úr stétt fjölmiðlamanna vegna kjara og starfsaðstæðna, hlutur falsfrétta, áróðurs og rangfærslna í umræðunni hefur stóraukist og árásir stjórnmálamanna og annara áhrifamanna á fjölmiðla hafa orðið mun tíðari.
Eftirbátur Norðurlanda
Það rekstrarumhverfi sem íslenskum einkareknum fjölmiðlum er sniðið er í andstöðu við það sem tíðkast víðast hvar í Evrópu. Þannig eru beinir ríkisstyrkir til einkarekinna fjölmiðla á öllum Norðurlöndunum, í Frakklandi, Lúxemborg, Lettlandi og Ítalíu. Á hinum Norðurlöndunum, sem eru þau samfélög sem Ísland ber sig mest saman við, má rekja rekstrarstuðning hins opinbera til einkarekinna fjölmiðla aftur til ársins 1990. Í Noregi og Svíþjóð hefur stuðningurinn verið aukinn umtalsvert undanfarin misseri. Dönsk stjórnvöld kynntu einnig aðgerðir til að bregðast við rekstrarstöðu fjölmiðla í fyrra, sem fólust meðal annars í því að draga saman umfang DR, danska ríkissjónvarpsins.

Undirliggjandi er að tryggja að gagnrýnin umræða, aðhald, fjölbreyttar skoðanir og sjónarmið, menningarleg fjölbreytni, rannsóknarblaðamennska séu grundvöllur hvers lýðræðisríkis. Til þess að ná því markmiði þurfa fjölmiðlar að vera fjölbreyttir og í eigu ólíkra aðila.
Gagnrýnendur þess að ríkið styrki einkarekna fjölmiðla halda því fram að slíkir styrkir geti grafið undan sjálfstæði fjölmiðlanna. Að þeir muni ekki bíta hendina sem fóðrar þá og þar af leiðandi muni þeir ekki sinna aðhaldshlutverki sínu nægilega vel.
Íslenskt fjölmiðlaumhverfi veikt með algjöru afskiptaleysi
Fjölmiðlaumhverfi Íslands er mun óþroskaðra en á hinum Norðurlöndunum. Skipta má sögu einkarekinna fjölmiðla sem sinna fréttavinnslu gróflega upp í þrjú tímabil: það fyrsta þegar stjórnmálaflokkar voru allsráðandi í yfirráðum yfir fjölmiðlum, annað þegar viðskiptablokkir réðu öllum einkareknum fjölmiðlum á árunum 2002-2008 og svo hið þriðja, sem er áratugurinn sem er liðinn frá hruni.
Öll tímabilin eiga það sameiginlegt að þorri þeirra fjölmiðla sem starfræktir voru á þeim þurftu ekki að sýna rekstrarlega sjálfbærni. Tilgangurinn með útgáfu þeirra var annar en að láta þá standa undir sér. Auðvitað voru undantekningar frá þessari stöðu, og var þá sérstaklega um að ræða smærri miðla sem lifðu í skemmri tíma eða síðdegisblöð.
Síðustu tíu árin eru líklega sérstaka tímabilið. Sjaldan eða aldrei í Íslandssögunni hefur þörfin fyrir stönduga fjölmiðla verið jafn mikið og á þeim árum til að upplýsa almenning og setja atburði í samhengi fyrir hann. Ástæðuna fyrir því má finna í fordæmalausu efnahagshruni, allsherjarendurskipulagningu samfélagsins, milliríkjadeilum, dómsmálum, einstæðum pólitískum óstöðugleika, hneykslismálum sem hafa ítrekað vakið heimsathygli og einhverjum mestu samfélagsbreytingum sem þjóðin hefur upplifað, meðal annars vegna fjölgunar á erlendum ríkisborgurum og margföldunar á fjölda ferðamanna sem heimsækja landið.
Þessi þörf hefur þó ekki orðið til þess að rekstrarumhverfi frjálsu fjölmiðlanna hafi verið styrkt. Þvert á móti hefur það veikst mjög.
Sérhagsmunir greiða fyrir taprekstur
Birtingarmynd þess er sú að stærstu fjölmiðlafyrirtæki landsins á einkamarkaði hafa verið í rekstri sem er ósjálfbær á undanförnum árum. Þ.e. þau hafa verið í eigu aðila sem eru tilbúnir að borga gríðarlegan taprekstur ár eftir ár og því liggur fyrir að ekki hefur verið að reka samsteypurnar á viðskiptalegum forsendum.
Árvakur, sem gefur út Morgunblaðið, heldur úti stærsta fréttavef landsins, mbl.is, á Eddu útgáfu og útvarpsstöðina K100 hefur til að mynda tapað um 1,8 milljarði króna frá árinu 2009, þegar nýir eigendur, að mestu úr íslenskum sjávarútvegi, keyptu fyrirtæki. Samhliða hafa þessir eigendur sett 1,4 milljarða króna inn í reksturinn.

Hinn risinn á einkareknum íslenskum fjölmiðlamarkaði var lengst af 365 miðlar, sem hefur verið í eigu Ingibjargar Pálmadóttur og stýrt af eiginmanni hennar Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. 365 miðlar gáfu út Fréttablaðið, áttu Stöð 2 og Vísir.is og flestallar einkareknar útvarpsstöðvar landsins. 365 miðlar töpuðu 348 milljónum króna á árinu 2017 og hafa í heild tapað hátt í tveimur milljörðum króna frá árinu 2014.
Í desember 2017 seldi fyrirtækið Stöð 2 og tengdar sjónvarpsstöðvar, útvarpsrekstur fyrirtækisins (t.d. Bylgjan, X-ið og FM957) og Vísir.is til fjarskiptafyrirtækisins Fjarskipta. Fréttastofa 365 fylgdi með í kaupunum, en hún er ein stærsta fréttastofa landsins og sú eina sem heldur úti daglegum sjónvarpsfréttatíma utan fréttastofu RÚV. Eftir inni í 365 miðlum var einungis Fréttablaðið og tímaritið Glamour.
Kaupin hafa ekki reynst happadrjúg fyrir Fjarskipti, sem hafa nú breytt nafni sínu í Sýn. Kostnaður við samþættinguna hefur reynst meiri en reiknað var með og Sýn hefur tvívegis sent frá sér afkomuviðvaranir þar sem áætlaður rekstrarhagnaður vegna ársins lækkaði um samtals 550 milljónir króna. Ástæða þessa var meðal annars sú að dagskrárkostnaður var hærri en gert hafði verið ráð fyrir en auglýsingasala og sala sjónvarpsáskrifta lægri. Samhliða hrapaði markaðsvirði félagsins, en ekkert félag í íslensku kauphöllinni lækkaði meira í verði á árinu 2018 en Sýn. Alls dróst markaðsvirði félagsins saman um 38,3 prósent. Í vikunni voru tveir stjórnendur Sýnar látnir fara. Annar þeirra var Björn Víglundsson, sem leitt hefur miðla félagsins.
Gjörbreyting á einu ári
Önnur birtingarmynd er sú að fjölmiðlar eru sífellt að týna töluna, eða ganga í gegnum eigendaskipti í kjölfar mikilla rekstrarerfiðleika. Þetta var sérstaklega sýnilegt árið 2017. Fyrir utan söluna á flestum ljósvakamiðlum 365 miðla hóf Árvakur samstarf við Símann, annað fjarskiptafyrirtæki, um efnisframleiðslu. Fréttatíminn fór á hausinn á því ári og Pressusamstæða Björns Inga Hrafnssonar, sem hafði farið mikinn árum saman og safnað að sér allskyns fjölmiðlum með fjármagni sem ekki var gerð grein fyrir hvaðan kæmi, gerði það sömuleiðis síðar á því ári og miðlar í kjölfarið seldir til annars félags, Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. Í ljós kom að Pressumiðlarnir höfðu ekki skilað háum upphæðum í opinber gjöld og þar af leiðandi tekið ólögleg rekstrarlán hjá hinu opinbera sem hlupu á tugum milljóna króna hið minnsta. Rekstur miðlanna er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara vegna grunsemda um lögbrot. Auk þess eru á dagskrá riftunarmál þar sem rökstuddur grunur er um að kröfuhöfum hafi verið mismunað.
Minni fjölmiðlar sem hafa ekki aðgengi að lánsfjármagni eða djúpum vösum hafa upplifað miklar þrengingar á auglýsingamarkaði, bæði vegna þess að hann hefur í heild skroppið saman en ekki síður vegna þess að sífellt stærri hlutur hans ratar í auglýsingar hjá erlendum stórfyrirtækjum á borð við Facebook, Google og Youtube. Þeir miðlar hafa tekið út rekstraraðlögun í gegnum rekstrarreikninginn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir