Hver á Tortólafélagið sem félög Samherja greiddu meira en 700 milljónir?

Banka­yf­ir­lit Samherja og tengdra félaga í DNB NOR bank­anum sýna milli­færslur til ýmissa félaga í skatta­skjólum. Meðal ann­ars félags­ins Hartly Business Limited sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyjum og óljóst er hver á.

Millifærslur til óþekktra aðila
Milli­færslur til óþekktra aðila Í Sam­herj­a­skjöl­unum eru milli­færslur til Totóla­fé­lags­ins Hartly Business Limited sem óljóst er hver á. Þá eru einnig milli­færslur frá Namib­íu­fé­lögum Samherja, sem Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri, til við­kom­andi félags. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Eitt af félög­unum sem vekur mikla athygli í gögn­unum um banka­reikn­inga Samherja hjá norska bank­anum DNB NOR er eign­ar­halds­fé­lagið Hartly Business Limited. Á árunum 2008 til 2018 voru milli­færðar alls tæp­lega 5 millj­ónir evra, um 700 millj­ónir króna, inn á reikn­inga þessa félags frá tveimur félögum á Kýpur sem Samherji á og eða teng­ist, Esju Seafood Limited ann­ars vegar og hins vegar JPC Ship Mana­gement. Einnig voru milli­færslur til þessa félags frá útgerð­ar­fyr­ir­tæki Samherja í Namibíu, Arcticnam Fishing. Þessar greiðslur eru óút­skýrðar. 

Hartly Business Limited er aflands­fé­lag, með eign­ar­haldi sem Stundin hefur ekki getað kort­lagt þrátt fyrir að hafa fengið aðstoð rann­sókn­ar­fyr­ir­tækis, sem var stofnað af fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Tortólu sem verið hefur til umfjöll­unar í erlendum fjöl­miðlum vegna tengsla við pen­inga­þvætti. Þessi aflands­þjón­usta heitir Commonwealth Trust Limited og var stofnuð af kanadískum auð­manni frá Toronto, Tom Ward. 

Félagið Hartly Business Limited var stofnað í júlí árið 2006, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem koma fram á heima­síðu blaða­manna­sam­tak­anna ICIJ, en nafn Hartly Business Limited dúkk­aði upp í einum af þeim lekum um félög í skatta­skjólum sem sam­tökin hafa tekið þátt í að greina frá á síð­ast­liðnum árum. Samkvæmt ICIJ er heim­il­is­fang Hartly Business Limited í Moskvu í Rúss­landi, hjá milli­lið eða þjón­ustu­að­ila sem heitir Hill Consulting Limited en félagið er skráð á Tortólu. Stjórn­ar­maður Hartly Business heitir Yuriy A. Skvortsov og hefur Stundin ekki getað kom­ist að því hver hann er eða hvort hann hafi tengsl við Samherja.  Samkvæmt ICIJ er félagið Hartly Business Limited ennþá starf­andi. Ekki liggur hins vegar fyrir hvað þetta fyr­ir­tæki gerir, hver starf­semi þess er. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur ekki gefið Stund­inni færi á við­tali um gögnin frá Namibíu sem Stundin fjallar um í sam­starfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár