Reykvíkingar með félagsþjónustu höfuðborgarsvæðisins á herðunum

Íbúar í Reykja­vík borga hver og einn sjö sinnum hærri fjár­hæð í fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda en íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi. Þeir greiða tvö­falt meira fyrir alla veitta félags­þjón­ustu en íbúar í Kópavogi og Garðabæ.

Á árinu 2019 fóru 26 pró­sent af þeim skatt­tekjum sem Reykja­vík­ur­borg inn­heimti í að standa undir ýmis­konar félags­þjón­ustu. Ekkert hinna sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemst nálægt því að nota jafn mikið af inn­heimtum skatt­tekjum sínum í þann mála­flokk. Mos­fells­bær kemst næst því, þar fór 20 pró­sent af inn­heimtum skatt­tekjum í félags­þjón­ustu. Í Kópavogi (14 pró­sent) og Garðabæ (15 pró­sent) var hlut­fallið hins vegar lægst.

Þetta má lesa út úr lyk­il­tölum úr rekstri sveit­ar­fé­laga á árinu 2019 sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga birti í lok nóv­em­ber.

Þar kemur fram að hver íbúi í Reykja­vík greiddi 256 þús­und krónur í fyrra í kostnað vegna félags­þjón­ustu sem borg­inn veitti. Um er að ræða fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda, þjón­ustu við börn og ung­linga, þjón­ustu við fatlað fólk og aldr­aða og ýmis­legt annað sem fellur undir mála­flokk­inn.

Það er mun meira en íbúar allra nágranna­sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­innar greiddu. Mos­fells­bær kemst næst því að axla álíka hluta af félags­legu þjón­ust­unni en kostn­aður á hvern íbúa þar var 219 þús­und krónu í fyrra. Hver íbúi í Kópavogi borgar um helm­ing þess sem íbúi í Reykja­vík borgar í félags­þjón­ust­una, eða 130 þús­und krónur á ári. Íbúi í Garðabæ borgar litlu meira, eða 136 þús­und krónur.

Reykja­vík er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem inn­heimtir hámarks­út­svar, 14,52 pró­sent. Hafn­ar­fjörður, Kópa­vogur og Mos­fells­bær eru ekki langt undan, þau rukka 14,48 pró­sent í útsvar, en í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi er útsvarspró­sentan 13,7 pró­sent.

Það þýðir á manna­máli að íbúar í Reykja­vík borga hærra hlut­fall af launum sínum í skatta til að standa undir rekstri sveit­ar­fé­lags­ins en þeir sem búa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar. Stór ástæða þess er sú að Reykja­vík axlar langstærstan hluta þess kostn­aðar sem fellur til vegna félags­legrar þjón­ustu sem sveit­ar­fé­lögum er gert að veita.

Sjö sinnum hærri fjárhæð vegna fjárhagsaðstoðar

Það er sama hvar er drepið niður, Reykja­vík er alltaf að veita lang­mestu félags­legu þjón­ust­una. Mest slá­andi er mun­ur­inn þegar kemur að fjár­hags­að­stoð sem sveit­ar­fé­lögin veita íbúum. Sveit­ar­fé­lögum er skylt að veita fjár­hags­að­stoð til fram­færslu ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem ekki geta séð sér og sínum far­borða án aðstoðar. Í Reykja­vík getur fjár­hags­að­stoð til ein­stak­lings verið allt að 207.709 krónur á mán­uði og hjón eða sam­búð­ar­fólk getur fengið sam­tals allt að 332.333 krónur á mán­uði. Í öðrum sveit­ar­fé­lögum eru greiðslur að jafn­aði lægri. Það þýðir að það borgar sig bein­línis fyrir þá sem þurfa á fjár­hags­að­stoð að halda að flytja sig til Reykja­víkur. Þar af leið­andi eru mun fleiri sem þurfa á henni að halda búsettir þar en í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar.

Hver íbúi í Reykja­vík­ur­borg borg­aði 21 þús­und krónur með sköttum sínum í fjár­hags­að­stoð í fyrra. Á sama tíma greiddi íbúi á Sel­tjarn­ar­nesi þrjú þús­und krónur vegna fjár­hags­að­stoðar og hver íbúi í Garðabæ greiddi fjögur þús­und krónur. Með öðrum orðum borg­aði hver Reyk­vík­ingur sjö sinnum meira fyrir félags­lega fram­færslu þeirra íbúa borg­ar­innar sem þurftu á henni að halda en íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi gerðu.

Mos­fells­bær, það sveit­ar­fé­lag Kragans svo­kall­aða sem kemst næst Reykja­vík í hlut­falls­legri eyðslu í félags­lega þjón­ustu, stendur sig vel þegar kemur að kostn­aði við fatl­aða. Kostn­aður vegna hennar tekur til útgjalda vegna stuðn­ings­þjón­ustu, ferða­þjón­ustu fatl­aðra, frek­ari lið­veislu, búsetu, skamm­tíma­vist­unar fyrir fatl­aða, dag­þjón­ustu og ann­arrar þjón­ustu fyrir fatl­aða. Hver íbúi í Mos­fellsbæ greiðir 139 þús­und krónur á ári vegna þess­arar þjón­ustu. Íbúar í Reykja­vík greiða næst mest á mann, eða 108 þús­und krónur og íbúar í Hafn­ar­firði greiða 100 þús­und. Íbúar í Kópavogi greiða minnst, eða 60 þús­und krónur hver, og íbúar Sel­tjarn­ar­ness koma þar skammt á eftir með 76 þús­und krónur hver.

Þegar kemur að kostn­aði vegna þjón­ustu við aldrað fólk, sem felur í sér útgjöld vegna dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ila, dagdvalar, stuðn­ings­þjón­ustu, tóm­stunda­starf og ann­arrar þjón­ustu við aldr­aða íbúa, standa Mos­fells­bær (59 þús­und krónur á íbúa) og Reykja­vík (56 þús­und krónur á íbúa) áfram upp úr. Minnstur er kostn­að­ur­inn vegna þjón­ustu við aldr­aða í Garðabæ (17 þús­und krónur á íbúa) og í Hafn­ar­fjarð­arbæ (18 þús­und krónur á íbúa).

36 prósent íbúa en byggja 73 prósent almennra íbúða

Reykja­vík dregur líka vagn­inn í upp­bygg­ingu á hús­næði fyrir þá hópa sem eru með lægstu tekj­urnar. Síðar þegar birtar voru tölur um félags­legt hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, fyrir tveimur árum síðan, voru þrjár af hverjum fjórum slíkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í Reykja­vík. Kjarninn hefur ítrekað kallað eftir upp­færðum tölum um félags­legar íbúðir frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun síðan þá, en án árang­urs.

Kjarninn greindi síðan frá því fyrir um mán­uði síðan að íslenska ríkið hafi alls úthlutað 15,3 millj­örðum króna í stofn­fram­lög vegna almennra íbúða á land­inu öllu frá árinu 2016, þegar lög um slík fram­lög voru sett.

Þar af hafa 11,2 millj­arðar króna farið í fram­lög vegna upp­bygg­ingar á íbúðum í Reykja­vík sem nýtt hafa verið til annað hvort að kaupa eða byggja alls 1.923 íbúðir.

Allt í allt þá hafa verið veitt stofn­fram­lög úr rík­is­sjóði til að byggja 2.625 íbúðir á land­inu öllu, sem þýðir að 73 pró­sent af almennu íbúð­unum sem hafa annað hvort verið keyptar, byggðar eða eru í bygg­ingu eru í Reykja­vík.

Alls búa 133.109 manns í höf­uð­borg­inni, eða 36 pró­sent lands­manna. Það þýðir að Reykja­vík er að taka á sig næstum tvö­faldan hluta af upp­bygg­ingu almenna íbúða­kerf­is­ins en hlut­fall íbúa borg­ar­innar segir til um.

Lög um almennar íbúðir voru sam­þykkt sum­arið 2016. Hið nýja íbúða­­kerfi er til­­raun til að end­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­lega hús­næð­is­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­legum íbúðum fækk­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Markmið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­ar­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leigu­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­aði ekki yfir 25 pró­sent af tekjum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið undanfarið ár