„Allir eiga skilið að vera með hreinan kodda undir höfðinu“

Viðbragð Póllands við einni stærstu flótta­manna­bylgju frá seinna stríði hefur verið borið uppi af almenn­ingi og hjálp­ar­sam­tökum. Katarzyna Skopiec leiðir ein slík sam­tök. Kjarninn ræddi við hana og Nilofar Ayoubi frá Afganistan í Varsjá á dög­unum.

Nilofar Ayoubi og Katarzyna Scopiek.
Nilofar Ayoubi og Katarzyna Scopiek. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

„Amma mín hýsti 39 manns, gyð­inga, á meðan á Hel­för­inni stóð. Þau voru ann­arrar trúar og höfðu aðra siði. En það skipti engu, mann­eskja er mann­eskja,“ segir hin pólska Katarzyna Skopiec í sam­tali við Kjarnann. Blaða­maður ræddi við hana og Nilofar Ayoubi, flótta­konu, frum­kvöðul og mann­rétt­inda­frömuð frá Afganistan, á rólegum veit­inga­stað í úthverfi Varsjár undir lok mars­mán­aðar.

Katarzyna stendur ásamt eig­in­manni sínum í stafni fyrir mann­úð­ar­sam­tökin Humanosh, sem hafa starfað árum saman við að aðstoða flótta­fólk í Póllandi. Samtökin eru stofnuð í minn­ingu ömmu hennar og afa, Słöwu og Isydor Wołosiański sem földu 39 gyð­inga í kjall­ar­anum hjá sér í heila 22 mán­uði á meðan nas­istar voru með Pólland á sínu valdi í síð­ari heimst­styrj­öld.

Á und­an­förnum þremur árum hefur starf­semi sam­tak­anna farið vax­andi og Katarzyna og sam­starfs­fólk hennar hafa helst unnið að mál­efnum flótta­fólks frá Belarús, fólks sem hefur flúið ofsóknir Alex­and­ers Lúk­asjenkós – síð­asta ein­ræð­is­herr­ans í Evrópu.

Einnig vinna sam­tökin með flótta­fólki frá öðrum ríkjum, eins og Nilofar, eig­in­manni hennar og þremur börnum, sem komust til Varsjár í fyrra eftir að talí­banar náðu völdum í Afganistan. Vest­rænir fjöl­miðlar fjöll­uðu um flótta hennar og fjöl­skyldu hennar til Póllands í fyrra, en hún var á svörtum lista talí­bana, ver­andi kona sem átti fyr­ir­tæki og vann að kven- og mann­rétt­inda­bar­áttu. Nú leggur hún sjálf Úkra­ínu­mönnum í Póllandi lið og vinnur meðal ann­ars með sam­tökum Katarzynu.

Fyrir rúmum tveimur árum opn­uðu Humanosh fyrsta skýlið fyrir ofsótta Hví­trússa og hefur síðan þá hýst yfir 500 manns í athvörfum í Varsjá og suð­ur­hluta Póllands; boðið upp á tíma­bundna griða­staði þar sem flótta­fólk getur dvalið og komið sér á fætur á meðan það leitar atvinnu, var­an­legs dval­ar­staðar og skóla­vistar fyrir börnin.

Að aðstoða um 600 Úkraínumenn frá degi til dags

Fyrir rúmum mán­uði umturn­að­ist svo starf­semi sam­tak­anna, er inn­rás Rússa í Úkraínu sendi af stað hol­skeflu fólks, aðal­lega kvenna og barna yfir landa­mærin til Póllands og ann­arra landamæra­ríkja.

„Núna frá því að stríðið braust út höfum við end­ur­skipu­lagt skýlið okkar, til þess að geta tekið á móti fleira fólki. Þar geta nú 25 dvalið í einu. Svo opn­uðum við líka annað skýli, þar sem einnig geta dvalið 25 flótta­menn. Skýlunum er stýrt af konum, bæði frá Belarús og Úkraínu,“ segir Katarzyna í sam­tali við Kjarnann.

Hún býr í Varsjá en starf­semi sam­tak­anna er þó að mestu í suð­ur­hluta Póllands. Alls segir hún að sam­tökin séu þar að aðstoða um 600 manns í dag. „Þau eru í mis­mun­andi húsum, en við önn­umst þau að mestu. Við færum þeim mat, veitum þeim aðstoð í sam­skiptum við yfir­völd og gefum þeim ráð um hvað skuli gera,“ segir Katarzyna.

Sjálf var hún með alls sex flótta­menn inni á heim­ili sínu þegar blaða­maður ræddi við hana undir lok mars, fjögur sem nýlega höfðu komið frá Úkraínu og tvær afganskar stúlkur að auki.

Katarzyna segir að fyrstu dag­arnir eftir að flótta­fólk tók að streyma til Póllands hafi verið erf­iðir, en fjöldi sjálf­boða­liða á vegum sam­taka hennar var starf­andi í grennd við landa­mærin.

„Við buðum fram aðstoð í Premyzl og á landa­mær­unum og þetta var mjög erfitt og mjög pirr­andi, því það var engin aðstoð og engar upp­lýs­ingar í upp­hafi. Fólk var að bíða klukku­stundum saman eftir rútum og var að stíga upp í rútur án nokk­urra skíl­ríkja og án þess að vita nokkuð hvert það væri að fara. Það var ískalt, en við komum með mat­ar­að­stoð og reyndum að hjálpa yfir­völdum í landamæra­bæj­unum,“ segir Katarzyna.

Þrótturinn gæti fjarað út

Hún sagði það hafa verið ótrú­legt að sjá hvernig fólk skipu­lagði sig undir eins, til þess að takast á flótta­mannaflaum­inn. „Fólk tók saman höndum og það var magnað að sjá sam­taka­mátt pólsku þjóð­ar­innar. En nú er staðan aðeins farin að versna. Flótta­fólk er fast í húsum ein­hvers ókunn­ugs fólks og það er þreyt­andi að búa með ein­hverjum sem þú þekkir ekki,“ segir Katarzyna og á þá við að það sé bæði þreyt­andi fyrir þá sem hafa boðið fram gist­ingu og flótta­fólkið sjálft.

„Þú hefur séð fjölda flótta­fólks­ins á lest­ar­stöðv­unum hérna í Varsjá,“ segir Nilofar. „Þetta er eins í Kraká, og í Szczecin. Í öllum hornum Póllands er fólk að hýsa flótta­fólk. Og andi góð­gerða svífur yfir vötnum,“ segir hún.

„En við erum kannski ekki góð í að veita stöðuga hjálp yfir lengri tíma,“ segir Katarzyna og Nilofar segir að það sé eins alls staðar í Evrópu.

Nilofar Ayoubi ræðir við blaðamann Kjarnans í Varsjá á dögunum.
Nilofar Ayoubi ræðir við blaða­mann Kjarnans í Varsjá á dög­unum.

„Þegar það er stríð ein­hvers­staðar þá er allt blásið upp og umræðan er á þá leið að fólk ætli að hjálpa, taka við flótta­mönnum. En svo fjarar áhug­inn út. Og það sama finnst mér vera að ger­ast með Úkraínu. Það verða færri og færri og færri fréttir og færri fylgj­ast með tíst­unum hans Zelenskís [Úkra­ínu­for­seta] og þau fá minni við­brögð,“ segir Nilofar.

Telur þörf á betri upplýsingum um ferðir til annarra ríkja

Samtök Katarzynu voru undir lok mars að fá afhent stórt atvinnu­hús­næði í mið­borg Varsjár, sem þau ætla að breyta í mót­töku­mið­stöð fyrir Úkra­ínu­menn, þar sem boðið verður upp á mat, sál­fræði­að­stoð og aðstoð af ýmsu tagi. Meðal ann­ars verða veitt ráð um hvernig kom­ast megi áfram til ann­arra ríkja og hvað geti beðið fólks þar, en Katarzyna segir að flótta­fólk frá Úkraínu sé margt hvert smeykt við að setj­ast upp í rútur til fjar­lægra landa.

Hún telur líka að upp­lýs­inga­flæði til Úkra­ínu­manna um hvernig sé hægt að kom­ast annað og hvað geti beðið á áfanga­stað sé ábóta­vant, þrátt fyrir að fjöldi evr­ópskra hjálp­ar­sam­taka vinni að því að flytja fólk frá Póllandi og til ann­arra landa, eins og Kjarninn fjall­aði nýlega um.

„Fyrir nokkrum dögum síðan sagði vinur minn við mig að ann­ars vegar væru sumir Úkra­ínu­menn að fara aftur yfir landa­mærin bara vegna þess að það væri ekki hægt að finna neinn stað hér, en á sama tíma vissi hann til þess að hálf­tóm rúta væri á leið­inni til Noregs. Ég held að það sé skortur á upp­lýs­ingum um þetta og ég vil reyna að beita mér í því. Ég held að þetta muni ganga hjá okkur,“ segir Katarzyna.

„Á einhvern hátt gerum við upp á milli flóttafólks“

Blaða­maður spurði hvort við­brögð pólsks almenn­ings við komu flótta­fólks frá Úkraínu hefðu komið henni á óvart.

„Já! Af því að ég er búin að vera að hjálpa Hví­trússum og það hefur stundum verið erfitt að útskýra fyrir fólki af hverju við þurfum að hjálpa því fólki. En þar er búið að vera að þagga niður í fólki sem mót­mælir stjórn­völdum, þau hafa verið send í gúlög og drepin. En það var erfitt að útskýra það fyrir pólsku fólki,“ svarar Katarzyna.

Hún nefnir einnig þá atburða­rás sem fór af stað við landa­mæri Póllands og Belarús síð­asta haust, er fjöldi flótta­fólks, aðal­lega frá Mið­aust­ur­löndum, reyndi að kom­ast yfir til Póllands, sem harð­neit­aði þeim inn­göngu og gerir enn. Pólska rík­is­stjórnin hefur meinað bæði læknum og hjálp­ar­sam­tökum að kom­ast að landa­mær­unum, þar sem koma flótta­mann­anna að landa­mærum Evr­ópu­sam­bands­ins var runnin undan rifjum stjórnar Lúk­asjenkós.

Börn í flóttamannabúðum í Belarús í nóvember. Þar eru enn þúsundir manna sem vilja sækja um vernd í ríkjum Evrópusambandsins, en hafa verið hrakin á brott.
Börn í flótta­manna­búðum í Belarús í nóv­em­ber. Þar eru enn þús­undir manna sem vilja sækja um vernd í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, en hafa verið hrakin á brott.

Þrátt fyrir mann­úð­ar­krís­una sem skap­að­ist og varir enn við landa­mærin í kjöl­far þessa alls segir Katarzyna að það hafi ekki verið mikil samúð á meðal pólsks almenn­ings í garð fólks­ins sem þarna, þó að flestum megi vera ljóst að þær þús­undir sem leit­uðu inn­göngu til Póllands séu peð í aðgerðum Lúk­asjenkós. Nýlegar fréttir hafa borist af því að her­menn í Belarús hafi neytt flótta­fólk til þess að fara yfir til Úkraínu síðan að inn­rás Rússa hófst.

„Á ein­hvern hátt gerum við upp á milli flótta­fólks, þeim sem okkur líkar við og þeim sem okkur líkar ekki við. Mín leið til að hugsa um þetta er sú að mann­eskja sé mann­eskja og að allir eiga skilið að vera með hreinan kodda undir höfð­inu. Öll börn ættu að njóta mennt­unar og vera örugg. Úkraínsk, hví­trúss­nesk, afgönsk, sýr­lensk. Þau þurfa það sama og við og við ættum ekki að gera upp á milli fólks,“ segir Katarzyna.

Spurð um fram­tíð­ina, og hvort hún telji að hjálp­semi pólsk almenn­ings muni fara þverr­andi ef stríðið dregst á lang­inn, seg­ist hún óviss. „Hjá sumum kannski, en sumum ekki. Ég held að í öllum málum hér í Póllandi sé þetta svona 50/50. Vonandi geta þau sem eru áfram um að hjálpa tekið á móti fleira fólki, eða þá að flótta­fólk finni aðrar lausnir,“ segir Katarzyna.

Við ræðum aðeins pólsku rík­is­stjórn­ina, sem Katarzyna telur að muni ekki gera neitt í mál­efnum Úkra­ínu­manna, umfram algjöran lág­marks fram­færslu­stuðn­ing við fólk. Stuðn­ingur stjórn­valda við hjálp­ar­sam­tök sem eru að veita flótta­mönnum lið er í algjöru skötu­líki, segir Katarzyna.

„Ég er búin að vera í tvö og hálft ár að hjálpa fólki frá Belarús og hef ekki fengið svo mikið sem penní. Ég hef átt í vand­ræðum með að skaffa mat fyrir flótta­fólkið mitt og þau sögð­ust ætla að hjálpa og ég sótti um en það gerð­ist ekk­ert. Það er engin hjálp frá rík­is­stjórn­inni. Ég held að það trúi því ekki nokkur maður að rík­is­stjórnin muni hjálpa neinum.“

Flótta­fólk á þó að fá ákveð­inn lág­marks fram­færslu­styrk. „Þau munu fá fram­færslu, en þetta gengur allt rosa­lega hægt. Sumt fólk á bók­aðan tíma hjá hinu opin­bera til þess að skrá sig fyrir fram­færslu og kenni­tölu í maí. Þau geta ekki beðið fram í maí. Þau þurfa ein­falda hluti, skjól, rúm til að sofa í, mat og ein­hvern félags­skap til þess að líða vel. Þess vegna reyni ég að koma eins mörgum fyrir og mögu­legt er heima og í mínum skýlum,“ segir Katarzyna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár